Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1908, Page 36
háskólakennararnir Kristján Jakob Boström, er síðar
ávann sér nafnfrægð sem einn af helztu heimspek-
ingum Svía, og Friðrik Ferdínand Carlson, sagnfrseð-
ingurinn, er seinna varð tvívegis kirkju- og kenslu-
máiaráðgjafi Svía. I sönglist og hljóðfæraslætti, seiu
liin mesta rækt var lögð við á heimili Oskars I., fékk
liann sérstakan kennara A. F. Lindblad, tónskáldið.
Tíu ára gamall var Oskar hertogi settur i skóla
fyrir sjóliðsforingjaefni, lauk liðsforingjapróti sumarið
1845 og Arar sama ár skipaður undirliðsforingi í sj°'
liði Svía og Norðmanna, jafnframt því sem honuni
voru veitt liðsforingjametorð í landher beggja ríkj'
anna. Undir árslok sama ár var hann prófaður i
öllum skólanámsgreinum, sem kendar eru í lærðuiu
skólum og síðan ritaður í stúdentatölu við háskólann
í Uppsölum. Dvaldi hann í Uppsölum fyrri heliuing
ársins 1846 og hlýddi á fyrirlestra ásamt öðrum stúd-
entum; en lengra varð háskólanámið ekki í það sinn,
því að þá um sumarið tókst hann á hendur fyrstu
langferð sína á sjó með freigátunni »Eugeníu«
heimsótti á þeirri ferð Pétursborg, Lundúnaborg,
Rómaborg, Neapel, Aþenuborg og Alexandríu. Nokkr-
um árum seinna var hann aftur við nám í Uppsöl'
um og kjmti sig bæði þá og í fyrra skiftið sem hann
dvaldi þar, mjög vel meðal stúdenta, sem hann uiu-
gekst cins og jafningja sína, bæði á háskólanum og
utan hans. En svo mjög sem hugur hans hneigðist
til vísindaiðkana þessi árin, var það þó einkum sigj'
inga- og sjóhernaðar-fræði, sem hann lagði stuiU,
enda var það vilji föður hans, að hann sérstaklegu
lielgaði sig því námi. Og Oskar hertogi lét sér ekki
nægja hina bóklegu þekkingu eina, því að á hverju
sumri var hann á sjónum, og hækkaði ár frá ari
metorðastiganum, unz hann 1858 varð aðmíráll.
svo mikillar og grundaðrar þekkingar hafði hann
atlað sér á þessum efnum, að hann þegar sem ung1'
liðsforingi hafði talsverð álirif á skipun þeirra nW a
(26)
J