Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1908, Síða 44
hin mestu framfaraár í sögu Noregs. Pvi þótt fram-
farir Normanna byrjiþegar eftir 1814, er þeir losna úr
sambandinu við Dani, þá fer ekki að verða verulegt
skrið á þeim í framfara-áttina fyr en eftir 1872. A
þeim árum, sem liðin eru síðan, hafa samgöngurnar
innanlands tekið stórfeldum umskiftum, akvegir og
járnbrautir verið lagðar um þvert og endilangt land-
ið, skijmstóllinn vaxið stórkostlega og auðlegð þjóð-
arinnar margfaldast. Hið andlega líf hefir verið með
þeim blóma að dæmafátt er með jafn fámennri þjóð.
Skáld, listamenn og rithöfundar hafa borið nafn
þjóðarinnar út um heiminn og aukið henni virðingu
og aðdáun meðal stórþjóðanna. Petta kannast Norð-
menn þá og fúslega við, enda mun þeim ekki koma
til hugar að gefa Oskari sök á því, hve erfitt þeim
veitti að ná fullu jafnrétti við Svía, eins og sambands-
lögin gjörðu ráð fyrir, heldur gefa þeir það fvrst og
fremst að sök ráðaneyti konungs hinu sænska (eink-
um Boström) og sænska ríkisþinginu.
Eftir að stjórn Oskars í Noregi var lokið, breytti
konungur titli sínum svo að hann er síðan: »kon-
ungur Svia, Gauta og Vinda« og tók sér nýtt einkunn-
ar-orð »Heill Svíþjóðar« í stað þess, sem áður liafði
verið: »Heill bræðraþjóðanna«.
Þótt ekki hafi alt af ríkt friður í landi heima
fyrir síðan Oskar tók konungdóm, liafa Sviar yfirleitt
unað stjórn hans hið bezta og ekki sízt eftir skilnað
landanna látið ásþart í ljósi kærleiks- og samúðar-
þel til konungs síns, enda er þar yfir hin mestu
blóma- og framfaraár að líta, sem eru stjórnarár
Oskars konungs. Efnahagur þjóðarinnar stendur nú
með svo miklum blóma, sem nokkurs annars ríkis í
Norðurálfu; atvinnuvegirnir hafa aukist stórkostlega
og iðnaðurinn sérstaklega margfaldast á síðustu ára-
tugum; samgöngur bæði á sjó og landi tekið algjör-
um stakkaskiftum og verzlunin eflst stórkostlcga bæði
innanlands og utan. Einnig vísindi og listir hafa