Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1908, Page 48
norska stjórnin sér til Dana og leitaði par hófanna,
hvort Karl, næst elzti sonur Friðriks ríkisarfa, nú
konúngs VIII. mundipiggja vilja konungdóm í Noregi,
cf stórpingi Norðmanna litist að bjóða honum pá
tign. En Karl prins hafði pað tvent til síns ágætis,
sem vænlegt konungsefni, að hann var danskur
að uppruna, barn peirrar pjóðar, sem Norðmenn
liöfðu um svo langan aldur verið sameinaðir og stóðu
enn í dag í meira og nánara andlegu sambandi við
en jafnvel bræðurna austan megin Kjalar, og pví næst
pað, að hann var tengdasonur hins volduga Breta-
konungs Játvarðar VII.
Þegar fengin var vissa fyrir pví, að hinn danski
prins mundi tilleiðanlegur að taka konungdóm í
Noregi, lagði norska stjórnin málið fyrir stórpingið
og sampykti pingið með mjög miklum meiri hluta
atkvæða að bjóða Karli prins konungdóm. Einir 29,
sem allir voru lýðveldismen, greiddu atkvæði á móti.
En pegar til kom selti Karl prins pað skilyrði, að
leitað væri áður álits norsku pjóðariiuiar með al-
mennri atkvæðagreiðslu, hvort hún óskaði hans fyrir
konung yíir sig. Er mælt, að prinsinn haíi í pessu
fylgt viturlegu ráði afa sins, Kristjáns IX. konungs;
en hvort sem svo er eða ekki, pá mæltist hið bezta
fyrir pessu meðal Norðmanna, og' var pegar stofnað
til atkvæðagreiðslu um land alt. Fór pessi atkvæða-
greiðsla fram dagana 12. og 13. nóv. og lauk, eins og
kunnugt er, á pá leið, að mikill meiri liluti pjóðar-
innar kaus Karl Danaprins til konungs yflr sig og
ákvað með pví, að konungdæminu skyldi haldið
framvegis.
Stórpingið kaus síðan sendinefnd til pess að fara
á fund hins háaldraða Danakonungs, tjá honum óskir
og vilja pjóðarinnar og bjóða sonarsyni hans, Karli
prins, konungdóminn. Berner stórpingsforseti, hinn
ágætasti maður, var formaður sendinefndar pessarar,
en annars voru i lienni menn af öllum stéttum, par
(38)