Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1908, Síða 86
Um myndirnar.
Miinnsíefln.
Myndin hjer að framan er frönsk, og á að sýna
hvernig franskir menn í meðalstjettinni verja 70 ára
sefi sinni.
Til náms er ætluð 3 ár, skemtana 8 ár, hreinlætis
3 ár, máltíða 6 ár, gangs 5 ár, samtals 3 ár, herpjón-
ustu 1 ár, til lesturs 6 ár, vinnu 11 ár og loks til svefns
24 ár.
Ef gjöra ætti mynd af íslenzku bændalífi í sveit,
þá yrði su mynd talsvert ólík pessari frönsku mynd.
Pað mun ekki fara langt frá rjettu, pegar litið er til
liðna tímans, að 70 ára æíi sveitamanns, að meðal-
tali, sje skipt pannig niður:
Til náms (lestur, skrift og kristindómur) 1*2 ár,
til skemtana (leikir á yngri árum og smáferðir á
fullorðinsárum) 2*/2 ár, til hreinlœtis (pvottur m. m.)
*/4 árs, til lesturs */2 ár, til máltíða (par með hvíld á
eptir) 4'/i ár, iðjiilcijsis (par með talin barns og ung-
lingsárin) 15 ár, til vinnn 21 ár og svefns 25 ár.
Hjer er gjört ráð fyrir manni, sem alltaf er heil-
brigður, en peir eru fæstir, sem pví láni getafagnað,
parf pví að draga frá fyrir veikindum af hverjum
kafla æfinnar, pó mest gangi á vinnutímann, svefn
og skemtanir.
Sjálfsagt eru peir margir, sem sofa minna og
vaka lengur en hjer er ráðgjört, en pó munu peir
ekki færri, sem nota tímann ver en hjer er gjört ráð
fyrir, pví hjer er ekki talinn sá tími að eins, sem
maðuriun sefur, heldur frá pví hann afklæðir sig og
par til hann er klæddur aftur. Sjeu tölurnar nálægt
rjettu, pá ganga 25 ár til svefns og 15 ár í iðjuleysi,
en pað er 4/7 hlutir af æfi sjötugs manns. Jeg býst
við að margur hafi ekki tekið eptir pessu, og pv1
síður að fyrst petta er svona, pá veitir ekki af að
nota vel hina 8/7 æflnnar.
(76)