Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2004, Blaðsíða 21
DV Sport
FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST2004 27
Síðusi en alls ekki síst til þess
að koinast i hóp bestu öiympíu-
fara sögunnar var stangarstökk-
\-arinn Þórey Edda Elísdóttir sem
uyggöi sér 5. sætið i stangar-
stökkskeppni dlvmpMeikanna i
Aþenu í fyrrakeöld þegar hún
stökk 4,55 metra. Þetta var
aðeins fumn senrimetrum
styttra en íslands- og Norður-
iandamet hennar frá því f\Tr um
sumarið. Þórey Edda revndi sið
ba’ði 4,65 metra og 4,70 metra
en mistókst að baria inetið sitt
og varð á endanum í fimnrta
sæti, stökk jafnhátt og su i fjorða
sætinu en notaði ril þess fleiri
tiiramiir.
Þegar íslenska handboita-
landsliðið náði sínum besta
árangri á ótynipíuleikum kom
það ölium að óvönim. Iiðið áttí
ekki einu sinni að vera með á
ieikunum i Barvelona 1992 en
hrotthvarf Irigósiava gaf liftinu
kost á særinu sem þaft greip og
náfti aft komast í undanúrsiirin.
ísienska liftift tapaði reyndar
tveimur stftustu ieikjum sfnum.
undanúrshtaieik f\-rir verðandi
óÍTOipiumeisturum frá sovéska
Samveldinu og svo hronsleikn-
um gegn Frökkuin setn áttu á
næstu árum eftir aft verða besta
handhoitalandslift heims og
heimsmeistarar 1995.
■p ■ m f ■ ■
Tveir frabærir
fulltrúar
fslenskir keppendur á ólympíuleikunum hafa lokið keppni og eins og
við mátti búast var árangurinn ansi misjafn. Engin verðlaun féllu í
okkar hendur að þessu sinni en tveir frábærir fulltrúar íslands sáu
til þess að þessir leikar vérða lengi í minnum hafðir fyrir magn-
aða frammistöðu þeirra.
Fyrstur til þess að slá í gegn var
fimleikakappinn Rúnar Alexand-
ersson. Hann gerði sér vonir um að
komast í úrslit í fjölþraut en gerði
sér litlar vonir um að komast f úr-
slit á sfnu uppáhaldsáhaldi, boga-
hestinum. Lífið er furðulegt og því
fékk Rúnar að kynnast er hann
komst ekki í úrslit í fjölþraut en
komst þess í stað í úrslit á boga-
hesti.
Þar stóð hann sig frábærlega,
lenti í sjöunda sæti en átti meira
skilið miðað við frammistöðuna.
Engu að síður'stórkostlegur árang-
ur og ísland er loksins komið á
kortið í fimleikaheiminum.
Stangarstökkskeppni kvenna
var einhver æsi-
legasta
keppni
leikanna
það sem
af er og
þar
blómstr-
aði
lenskur
stangar-
stökkvari
aðra leik-
ana í
röð.
;
8§j
Okkar maður í Aþenu
Henry Birgir Gunnarsson
henry@dv.is
í Sydney var það Vala Flosadóttir
sem vann hug og hjörtu þjóðarinn-
ar er hún nældi í brons í stönginni
en að þessu sinni var það Þórey
Edda Elísdóttir.
Mun sterkari keppni
Stangarstökkskeppnin var klár-
lega mikið sterkari í ár en hún var í
Sydney og því var það mikið afrek
hjá Þóreyju Eddu að ná fimmta
sætínu. Rússnesku stúlkurnar Isin-
bayeva og Feofanova léku á als
oddi á ólympíuleikvanginum og
Þórey Edda gaf þeim ekkert eftir á
tímabili. Hún sýndi frábæra takta
er hún fór yfir 4,55 metra og sýndi
síðan mikla keppnishörku og
sjálfstraust er hún kýldi á það og
reyndi að blanda sér í baráttuna
um bronsið í sínu lokastökki. Það
vantaði örlítið upp á hjá henni en
fimmta sætið í þessari sterku
keppni er stórkostlegur árangur.
Handboltalandsliðið byrjaði
ágætlega í Aþenu en það fjaraði
fljótt undan leik liðsins og ekki
hægt að segja annað en að þeir hafi
valdið vonbrigðum á ÓL. Þeir ætl-
uðu sér meira og ollu sjálfum sér
vonbrigðum því þeir geta meira en
þeir sýndu í Aþenu.
Tvö íslandsmet stóðu upp
úr
Smidfólkið stóð fæst undir
væntingum en íslandsmet Jakobs
Jóhanns og Hjartar Más björguðu
sundhópnmn frá druklcnun. Sigl-
ingalcappinn Hafsteinn Ægir gerði
litlar rósir en náði þó að standa sig
vel á tveim leggjum eins og hann
stefridi að.
Ekki er síðan hægt annað en að
vorkenna aumingja Jóni Arnari
sem enn og aftur meiddist á stór-
móti og það þrátt fyrir að hann hafi
mætt heill heilsu tU leUcs í fyrsta
sinn síðan 1998. Það á ekki af
blessuðum kaUinum að ganga.
Þegar á heildina er litið er ár-
angur íslenska hópsins
þokkalegur og þessara leika
verður ætíð minnst fyrir
frábæra frammistöðu
þeirra Þóreyjar Eddu og
Rúnars Alexanders-
sonar. Þau björguðu
leikunum fyrir okkur.
Þegar á heUdina er litið er ár-
angur íslenska hópsins þokkalegur
og þessara leika verður ætíð
minnst fyrir frábæra frammistöðu
þeirra Þóreyjar Eddu og Rúnars Al-
exanderssonar. Þau björguðu leik-
unum fyrir olckur.
Handboítastrákar-
nir ollu sjálfum sér
vonbrigðum því þeir
geta meira en þeir
sýndu í Aþenu.
íslendingar hafa lokið keppni á 28. ólympíuleikunum og
árangurinn var misjafn. Handboltaliðið og sundfólkið stóð
ekki undir væntingum en Þórey Edda Elísdóttir og Rúnar
Alexandersson björguðu leikunum fyrir okkur.
- >