Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2004, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2004, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2004 Fréttir DV ..... ■, Sigríður Anna Þórðardóttir, til- vonandi umhverf- isráðherra „Jafn- réttismál eru mér mjög hugfólgin." Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð- herra Ólgan innan Framsóknar virðist ekki ætla að hjaðna. Sleginn á Lundanum Nokkur erill var hjá lög- reglunni í Vestmannaeyj- um í síðustu viku eftir nokkrar rólegar vikur. Ein líkamsárás var kærð eftir skemmtanahald helgarinn- ar og átti hún sér stað á veitingastaðnum Lundan- um. Þarna hafði gestur á Lundanum ráðist að manni og slegið hann í andlitið. Ekki var um alvarlega áverka að ræða. Árásar- maðurinn var handtekinn og fékk að gista fanga- geymslu lögreglu þar til víman rann af honum en hann var nokkuð við skál. Góð ávöxtun hjá Framsýn Raunávöxtun Lífeyr- issjóðsins Framsýnar fyrstu sex mánuði ársins 2004 nam 18,4% á árs- grundvelli og hefur hrein eign sjóðsins hækkað um tæplega 7,8 milljarða króna frá áramótum. Góða ávöxtun má rekja til góðrar ávöxtunar á hlutabréfamörkuðum en einnig hefur náðst ár- angur við að stýra geng- isáhættu í tengslum við erlendar eignir sjóðsins. Rekstrarkostnaður sjóðs- ins lækkaði milh ára, var 0,8% af eignum fyrri hluta síðasta árs en 0,6% fyrstu sex mánuði þessa • árs og er það með því lægsta sem þekkist hjá íslenskum lífeyrissjóð- um. SPRON slær afkomumet Sparisjóður Reykjavikur og nágrennis tilkyimti um afkomumet í gær. „Afkoma SPRON fyrstu sex mánuði ársins 2004 er sú besta í sögu sjóðsins", segir Guð- mundur Hauksson spari- sjóðsstjóri SPRON. „Starf- semi SPRON hefur styrkst mikið undanfarin ár og er eigið fé nú að nálgast 6 mUljarða króna. Utíán hafa aukist um 18% og innlán um 12% það sem af er ár- inu. VanskilahlutfaU SPRON er nú mun lægra en síðustu ár, þannig að þróun mála hefur verið SPRON einkar hagstæð. Fjárfest- ingar sparisjóðsins í hluta- bréfum eru þó sá liður sem mestri ávöxtun skilar." Framsóknarkonur eru æfar yfir því að Siv Friðleifsdóttir var rekin úr umhverfis- ráðuneytinu. Sigríður Anna Þórðardóttir mun taka við embætti hennar. Hún segir að ekki megi gleyma því að þótt Siv fjúki þá fækki ekki konum í ríkisstjórn. Deil- urnar innan Framsóknar séu innanflokksmál og hún óttist ekki að þær muni skaða ríkisstjórnarsamstarfið. Ekki gleyma því að ég er kena „Jafnréttismál eru mér ofarlega í huga,“ segir Sigríður Anna Þórðardóttir tilvonandi umhverfisráðherra. Ólgan innan Fram- sóknarflokksins með brottfall Sivjar Friðleifsdóttur stigmagnast enn. Lítið hefur samt heyrst í Sigríði Önnu sem mun í næsta mánuði verma hið umdeilda sæti kynsystur sinnar í Framsókn- arflokknum. „Mér finnst mjög gott að það fækki ekki konum í ríkisstjórn. „Það gleymist kannski í umræð- unni að það fækkar ekki konum í ríkisstjórn," segir Sigríður. „Það er bara þannig og þetta snertir ekki neitt hvernig ég kem inn í ráðuneyt- ið. Þarna eru menn að ræða saman innan flokks. Þetta er mál framsókn- armanna." Sigríður vill ekki tjá sig um hvort hún hefði viljað sjá annan ráðherra Qúka en Siv Friðleifsdóttur. Hún tek- ur hins vegar skýrt fram að jafnrétt- ismál séu eitthvað sem stjórnmála- flokkar þurfi að hafa í huga. Jafnrétti mikilvægt „Jafnréttismál eru mér mjög hug- fólgin. Ég var kosin í sveitarstjórn árið 1978 þegar mun færri konur voru í stjórnmálum en í dag. það hafa oröið miklar breytingar en menn verða samt alltaf að halda vöku sinni." Spurð um ástandið í Sjálfstæðis- flokknum segir Sigríður að þar hafi skipst á skin og skúrir. „í dag eru samt færri konur í þingflokknum eftir síðustu kosning- ar en á kjörtímabilinu þar á undan," segir hún. „Það er eitthvað sem við þurfum að bæta.“ Ríkisstjórnin í hættu Ástandið í Framsóknarflokknum hefur ekki verið upp á marga fiska. Óánægjuþingmenn eins og Kristinn H. Gunnarsson og Jónína Bjartmarz hafa sett spennu í ríldsstjórnarsam- starfið. Er Sigríður Anna hrædd við að Siv muni bætast í þennan hóp og setja ríkisstjórnarsamstarfið íhættu? „Nei, ég hef ekki trú á því að þetta skaði ríkisstjórnarsamstarfið," segir Sigríður. „Þetta er innanflokksmál hjá Framsókn og þeir takast á við það á sínum forsendum. Mér finnst Siv hafa staðið sig afar vel og mun taka við ágætu búi." Það verður því öflug kona sem kemur inn fyrir konu í umhverfis- ráðuneytið. Jafnrétti verður því við- haldið þrátt fyrir að innan Fram- sóknarflokksins kraumi eldar. „Mér finnst mjög gott að það fækki ekki konum í ríkisstjóm," seg- ir Sigríður. „Það hefði verið áhyggu- efni ef það hefði gerst." simon@dv.is Björn Bjarnason svarar engu um hæfnisskilyrði hæstaréttardómara Björn taldi sig og Jón Steinar í sama liði „Starfið hefur verið auglýst, ferliö við skipun dómara er ljóst, ég tek mína ákvörðun í samræmi við það." Þannig svaraði Bjöm Bjamason dómsmálaráðherra sex spumingum DV um hvað hann myndi hafa að leið- arljósi við skipan hæstaréttardómara. Umsóknarfrestur um stöðu dóm- ara rennur út á morgun. Aðeins einn hefur tilkynnt að hann hafi sent inn umsókn um starfið, Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður. í Ijósi þess hversu umdeild síðasta Hvað liggur á? skipan Bjöms í embætti hæstaréttar- dómara var, hafði DV áhuga á að spyrja Bjöm hvaða sérþekkingu hann teldi nú að nauðsynlegt væri að nýr dómari tæki með sér inn í Hæstarétt. Síðast skipaði hann Ólaf Börk Þor- valdsson þvert á álit Hæstaréttar og fór á svig við bæði jafnréttislög, að mati kærunefndar jafméttis- mála, og góða stjómsýslu að mati umboðsmanns alþingis. Þá rétt- lætti hann ákvörðunina með því að hann hefði talið rétt að fá inn þekkingu á Evrópurétti, v „Það liggur á að vinna tvær heimildarmyndir sem ég er að gera, “ segir Þorsteinn Jónsson kvikmyndagerðarmaður.„Önnur heitir Annað lifÁstþórs og fjallar um ungan bónda á Rauðasandi sem missti fæturna I umferðarslysi fyrir tveimur árum. Flann er búinn að vélvæða allt hjá sér með nútímagræjum og stendur sig rosalega vel í búskapnum; er að heyja hund- rað hektara i sumar. Hin myndin er um gamla fólkið inni á vistheimilinum og ergerð í sam- vinnu við Hrafnistu. Svo er ég að fara að kenna í Kvikmyndaskólanum í vetur. * sem Ólafur Börkur hefði eftir Meist- aranám við háskólann í Lundi. Meðal þeirra sem komu frarn til að verja ákvörðun Bjöms var Jón Steinar Gunnlaugsson. Sérstaklega var hann harður í vöminni gegn kærunefnd —-i.. 0g vitnar Bjöm til þess á heimasíðu sinni. Bjöm vildi ekki svara spum- ingum DV um til hvaða sjónar- miða hann liti við skipan dómara að þessu sinni eða að hve miklu leyti hann myndi taka tillit til umsagnar Hæstarétt- UL Jón Steinar Gunn- laugsson Sá eini sem hefur sótt um starf hæstaréttar- dómara. Umsóknar- frestur rennur út á morgun. ar í þetta sinn. Hann vildi heldur ekki svara því hvort það væri lík- legra en síðast að hann skip- aði konu í embættið. Þá spurði DV hvort til greina kæmi að hann viki sæti við skipunina vegna tengsla við Jón Steinar. Bjöm svaraði því ekki. í hita fjölmiðlamálsins skrif- aði Bjöm á heimasíðu sína um um- fjöllun fjölmiðla: „Höggin á okkur Davíð, Hannesi Hólmsteini og Jóni Steinari em líklega látin dynja til að hafa áhrif á sáiir í liði stuðningsmanna okkar." kgb@dv.is Björn Bjarnason Taldi að skrif Frétta- blaðsins og DV væru til þess fallin að hafa áhrifá sálir íliði stuðningsmanna Davíðs Oddssonar, Hannesar Hólmsteins, Jóns Steinars og sinna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.