Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2004, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2004, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST2004 Sport DV Þórey Edda Elís- dóttir komst í góöan hóp í fyrra- kvöld en sjö ís- lenskir íþrótta- menn í einstak- lingsíþróttum og eitt landslið hafa náð svo langt á ólympíuleikunum í sögunni. ísland hefur þar af unnið þrenn verðlaun. Silfur 1956 Þrístökkvarinn Vilhjálmur Einarsson varð fyrstur íslendinga til að vinna verðlaun á ólympíu- leikuin og engin hefur jafnaö hans árangur síðan. Villijálnrur vann silfur í þrístökki á leikunum í Mel- bourne í Ástralíu 1956. Hann var lengi með gullið innan seilingar eftir að hafa stokkið 16,26 metra og sett nýtt ólympíumet en vtirð á endanum aö sætta við silfrið og er enn þann dag í dag eini íslenski íþróttamaðurinn sem hefur staðið svo hátt á verðlaunapalli á ólym- píuleikunum. 5.sæt Vilhjálnmr Einarsson mætti aftur á ólympíuleikana fjömm árum eftir að hann vann silfur- verðlatui með svo eftirminnileg- um hætti. Vilhjálmur setti pressu á sjálfmi sig fyrii leikana og ætíaði sér verðlaun og byrjaði lika vel þegnr hann stökk 16,37 rnetra í fyrsta stökki, Það var hans lengsta stökk í kepppninni, 11 sm lengra en ijórum ámm áöur og var hann iengi vel í fjórða sætirm eða allt þar til að Sovétmanni tókst að skjótast upp fyrir liimn í sfnu lokastökki. VUitjálmtu endaði þvi -4 Brons1984 Júdómaðurinn Bjarni Frið- riksson varð annar Islending- urinn til þess að vinna tU verð- launa á ólympíuieikiun þegar hann hlaut brons í -95 kg flokki á ólympíuleikunum í Los Angeles 1984. Bjami var náiægt því að komast í glímuna um gullið og hefur látið hafa eftir sér að þangaö hefði hann komist hefði veriö dæmt með sama hætti og f dag. Bjami vann bronsglímuna glæsflega en hann er samt eini verðlaunahafinn á ólympíu- leikunum sem ekki hefur hlotið útnefninguna íþró ttamaður ársins. Brons 2000 Stangarstökkvarinn Vaia Flosadóttir varð fyrsta og eina íslenska konan tU að vinna verðlaun á ólympíuleikum þegar hún stökk 4,45 metra í stangar- stökki kvenna og tryggði sér bronsverölaun í Sydney 2000. Vala sýndi enn einu sinni hversu mikU stórkeppnamanneskja hún var og sló við nokkrum konum sem höfðu stokkið mun hærra en hún á árinu. Lokastökk henn- ar var íslands- og Norðurlanda- met. Vala var í framhaldinu seinna á árinu aðeins þriðja konan sem fær útnefninguna fþróttamaður ársins. * Sundmaðurinn Örn Arnarson stefndi hátt og stóð sig frábærlega í 200 metra baksundi á ólympíuleikunum í Sydney árið 2000. örn setti glæsilegt ísiandsmet í milli- riðU og náði síðan tjórða sæt- inu í úrsiitasundinu. Örn komst einnig í undanúrslit í 200 metra skriðsundi þar sem hann varð tíundi og eru það mestu afrek fslensks sund- manns frá upphafi á leikunum. 5. sæti 1992 Spjótkastarinn Sigurður Einarsson fylgdi eftir góðum árangri Einars \rilhjálmssonar átta árum áður (6. sæti 1984) með því að næla í 5. sætið í spjótkasti þegar hann kastaði spjótinu 80,34 metra. Sigurður náði á þeim tíma öðrum besta árangri íslendings í frjálsíþrótta- keppni ólympíuleikanna. Sig- urður hafði alltaf verið annar í goggunarröðinni á eftir Einari en nú náði hann bestum árangri íslensks spjótkastara frá upphafi. Sigurður var í kjölfarið vaiinn íþróttamaður ársins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.