Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2004, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2004, Blaðsíða 13
DV Fréttir Frítt í strætó á Akureyri Allir Akureyringar fá ókeypis mánaðarkort í strætó sent á heimili sín næstu daga. Með þessu er verið að vekja athygli á hagkvæmni þess að nýta sér strætóferðir. Mánaðar- kort í vagnana kostar 3.500 krónur en fastur kostnaður við lítinn einkabíll er 4-500 þúsund krónur á ári. Þar að auki hafa sum heimili aukabíl. Á sama tíma og gefins er í strætó tilkynnist að leiðum verður fækkað úr 10 í 4, mörgum stoppi- stöðvum lokað og að einn strætó verður á ferð á kvöldin í stað tveggja áður. Póstkortvar 42 árá leiðinni Póstkort sem sent var frá París fyrir 42 árum hefur loks borist réttum viðtakanda í Þýskalandi. Fyrir mistök setti send- andinn írskt frímerki á póstkortið og er það talin orsök þess að kortinu seinkaði svo mikið. Þýski sjómaðurinn Klaus Phil- ippi sendi systur sinni kortið sem ber mynd af Eiffel-turninum. Móðir Klaus hefur enn sama heimilisfangið og var á kortinu en systir hans er flutt í aðra borg. Móðirin hringdi í Klaus um leið og kortið barst og þakk- aði honum sendinguna fyrir hönd systurinnar. Bakarífyrir hunda Bakarí í Sao Paulo í Brazilíu selur, kökur, brauð og snúða fyrir hunda. Panetteria di Canni-bakarí- ið er orðið geysivinsælt meðal hundaeigenda og selur um 8.000 kökur og snúða í hverjum mánuði. Allar uppskriftirnar eru með súkkulaði og hunangi en án sykurs og hveitis. Dýra- læknar hafa lagt blessun sína yfir afurð- imar. Eigand- inn Angelo Carotta Neto segir í samtali við blaðið Estado de Sao Paulo að bakkelsið sé einnig borðað af hundaeig- endunum sjálfum. „Sumir viðskiptavinimir deila snúð með besta vini sínum." —---— Hass í Njarðvík I upphafi vikunnar var tvítugur karlmaður hand- tekinn af lögreglunni í Keflavík þar sem hann var í bifreið sinni í Njarðvík. Við leit í bifreiðinni fundust 68 grömm af hassi og þá hafði hann einnig lítilræði af hassi innanklæða. Að sögn lögreglunnar telst málið upplýst. Fólk í lautarferð gekk fram á hross sem gengu hreinlega á beininu vegna ofvaxinna hófa sem voru farnir að klofna og brettast upp. Hestarnir farnir að beita fætinum rangt og orðn- ir hjólbeinóttir og skakkir. Illa hirt hross en feit og pattaraleg Þau fá nóg aö bíta og brenna en ekki er hugsað um þau að öðru leyti en eins og sjá má er faxið farið að trosna og lafa. Hófarnir farnir að springa og fótur- inn skakkur Hérmá sjá h ve illa hófarnir eru vaxnir fram og hesturinn gengurá beininu. Gunnar Jónsson var með fólki í lautarferð í Hvalfirði þegar hann gekk fram á illa hirt og kvalin hross. Hófar þeirra voru ofvaxnir og hestarnir farnir að ganga á beininu. Helgi Sigurðsson dýralæknir í Mosfellsbæ segir það gígantískt sárt fyrir hrossin. „Okkur blöskraði gjörsamlega og ekkert annað okkar hafði séð nokkxu þessu l£kt áður á hrossum. Það var greinilegt að þeim leið ekki vel því fætur þeirra voru farnir að beygjast inn og þeir áttu ekki gott með gang,“ segir Gunnar Jónsson sem var á ferð innst í Brynjudalnum um liðna helgi. Hann var þar ásamt fleira fólki í góða veðrinu þegar þau komu auga á hross á beit. Þegar hestarnir nálguðust sáu þau hvernig hófarnir vom ofvaxnir, klofnir og farnir að brettast upp. „Við gáfum þeim brauð sem við vomm með þannig að þeir vom augljóslega vanir mönnum og gæflr. Þetta voru ekki nein stóðhross og því mætti enn frekar ætla að eigendur þeirra vissu af ástandi þeirra," segir Gunn- ar sem sjálfur er alinn upp norður í Húnavatnssýslu og vanur þaðan að umgangast hross. Hann segir að hestamenn sem hann hafi talað við hafl allir verið sammála um að for- kastanlegt væri að láta hófana vaxa svona og skafa þá ekki þannig að hestarnir gætu gengið eðlilega. Gunnar segir að hrossin hafi verið vel í holdum, en fax hafi líka verið illa hirt og farið að lafa neðan úr því. Helgi Sigurðsson dýralæknir í bergljot@dv.is Gunnar Jónsson Hon- um blöskraði alveg að sjá hvernig hrossin voru og þekkti ekki slika með- ferð úr sinni heimasveit. Mosfeilsbæ tekur undir skoðun Gunnars og segir að menn verði að sinna hrossunum sínum. „Ef þetta er eins slæmt og sagt er þá er þetta afleitt fýrir dýrið og biðji menn fyrir sér, hestarnir kenna til,“ segir Helgi. Hann bendir á að það þurfi að skafa hófana og snyrta þá en oft hlaupi of- vöxtur í hófana vegna hóf- sperm, sem er sjúkdómur sem erfitt sé að eiga við. „Ég veit ekki hvort sú er raunin í þessu tilfelli en ofvaxnir hófar valda því að hesturinn fer að beita fótunum á annan hátt og hann finnur gígantískt til,“ segir Helgi. Ekki náðist í Gunnar Örn Guðmundsson héraðsdýralækni í gær, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Sameining Háskólans í Reykjavík og Tækniháskólans veldur deilum. Þorgerður gælirvið skólagjöld Háskólinn í Reykjavík og Tækni- háskólinn hafa hafið viðræður um sameiningu. Háskólinn í Reykjavík er einkaskóli en hinn ríkisskóli. í há- degisfréttum Bylgjunnar í gær játaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra því að trúlega þyrftu nemendur hins sameinaða skóla að borga skólagjöld. Þessu mótmælir Björgvin G. Sig- urðsson alþingismaður sem segir Þorgerði vera að lauma skólagjöld- um inn bakdyramegin. „Hún hrpkklaðist ffá því að setja á skólagjöld í Háskóla íslands en nú virðist annað uppi á teningnum," segir Björgvin sem finnst sameining Þorgerður Katrín Björgvin G. Sig- Gunnarsdóttir urðsson alþingis- menntamálaráð- maður Vill ekki herra Er sökuð um að skólagjöld iháskóla. koma að skólagjöld- um bakdyramegin. skólanna ágætur kostur en tekur fram að það komi ekki til greina að setja á skólagjöld. „Ef af verður þyrflu nemendur að borga 200.000 krónur í stað 35.000," segir Björgvin. „Það er óásættan- legt." Stríðssýning á Akureyri Á laugardag verður opnuð í Minjasafninu á Akureyri sýning á munum og ljósmyndum úr leið- öngrum að flaki breskrar sprengju- flugvélar af gerðinni Fairey Battle sem fórst 26. maí 1941 á hálendinu milli Eyjafjarðar og Öxnadals. Þetta voru einshreyfils sprengjuflugvélar og úreltar nánast áður en þær voru teknar í notkun. Þær biðu oft mikið afliroð í árásarferðum sínum og eru kannski frægastar fyrir það, sem og að flugmenn þeirra sýndu oft á tíðum mikið hugrekki. Sýningin stendur einungis þessa helgi. IRKUIV ÖGUM Heimilislæknirinn Þriðjudagar Fjölskyldumaðurinn Miðvikudagar Sálfræðingahjónin Kynlífsráðgjafinn Neytendamál

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.