Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2004, Blaðsíða 23
DV Fókus
FIMMTUDACUR 26. ÁGÚST2004 23 *
Hórur hafna
samningi
Vændiskonur í Þýska- «>
landi hafa hafnað starfs-
samningi sem þeim var .-j ' I m
boðinn. Samningurinn
gerði ráð fyrir að þær
fengju sex vikna leyfi frá
störfum á hverju ári auk Kj
ellilífeyris. Verícalýðsfélag
vændiskvenna var stofn-
að ekki alls fyrir löngu í
Þýskalandi og var mark-
miðið að fá sem flestar
vændiskonur til að taka H
þátt í uppbyggingu þess
en það hefur nú mistekist. Talið er að um
400 þúsund vændiskonur starfi í Þýskalandi
en aðeins um 100 skráðu sig í verkalýðs-
félagið sem nú hefur hafnað starfssamning-
um. Ástæða þess hversu fáar konur hafa
skráð sig í verkalýðsfélagið er líklega sú að
konurnar skammast sín fyrir starfið.
Marta María Jónasdóttir
blaðamaður Mun skrifa
bókina um Nylonstúlkurnar.
Bróðir Britney leikur í
nýja myndbandinu
Poppprinsessan BrttneySpeais hefur
svo mikla trú á leiklistarhæfileikum 4
bróður síns að hún hefur fengið 1
honum hlutverk í nýjasta mynd- 1
bandinu sínu. Bryan, sem er 27 Jp
ára, mun koma fram í mynd-
bandi við lagið My Preroga- tfeí—
tive. Samkvæmt móður söng- I flH
konunnar Unne er Britney ' W
að jafna sig af hnémeiðslum *
en vegna þeirra verður hún 0
ekki hlaupandi og skoppandi fl
um allt í myndbandinu. „Þetta jB
verður öðruvísi en allt annað. I
Myndbandið verður mjög
glamúrlegt og ég veit að allir
eiga eftir að elska það."
,Ætli þetta verði ekki Nylon-jól,“
segir Einar Bárðarson, umboðsmað-
ur stúlknabandsins Nylon. Um jólin
kemur út bók um þær stúlkur sam-
hliða útgáfu fyrstu breiðskífú þeirra.
Vinnsla við bókina er þegar hafin.
Vaka Helgafell gefur bókina út og
ber Marta María Jónasdóttir,
stjömublaðamaður Séð og Heyrt,
hitann og þungann af verkinu.
,Ætli ég hafi ekki verið fengin til
að sjá um verkið því ég er stelpa og
ekkert rosalega mikið eldri en þær,“
segir Marta María. „Ég get sett mig f
þeirra spor og innst inni vonast
maður náttúrlega til þess að verða
fimmta Nylonstúlkan."
Bókin verður í veglegri kantinum
og mun spanna tímann frá stofnun
hljómsveitarinnar til dagsins í dag.
Meginþunginn verður svo sumarið í
ár sem hefur án vafa verið sumar
Nylonstúlknanna.
„Þetta verður kostagripur fyrir
aðdáendur Nylon,“ segir Einar Bárð-
arson. „Það verður skyggnst bak við
tjöldin og fjöldi mynda gefur innsýn
í líf stúlknanna. Þetta er einskonar
yfirlitsmynd af erfiðu sumri."
Þær verða því á mörgum víg-
stöðvum um jólin - Nylonstúlkum-
ar. Dröfn Þórisdóttir, útgáfustjóri
Vöku Helgafells, segir að á þeim
bænum lítist þeim vel á framtakið.
„Þetta verður frábær bók fyrir aðdá-
endur stúlknanna," segir hún.
Einar Bárðarson sem er með
mörg járn í eldinum segir óþarfa aö
láta bókaflóðið vera.
Hann segir: „Aðdáendurnir vilja
bara meira."
simon@dv.is
Ekkja Johns Lennon, hin misskilda.japanska
listakona Yoko Ono, hefur samþykkt að íþrótta-
vöruframleiðandinn Nike muni hefja framleiðslu
á skófatnaði í nafni Johns Lennon. Margir mua
eftir Jordan-skónum sem njóta mikilla vinsælda
en það næsta sem á eftir að slá í gegn er án efa
Lennon-skórnir. Skórnir verða hvítir, svipaðir
þeim sem John klæddist framan á Abbey Road-
plötuumslaginu, og á þeim munu verða texti úr
frægasta lagi kappans, Imagine. Mörgum þykir
þetta uppátæki ekki vera til fyrirmyndar fyrir
Yoko Ono sem hingað til
hefur látið sig góðgerðar-
mál miklu varða. Nike hef-
ur nefnilega verið harð- r >,,
iega gagnrýnt fyrir '—‘
barnaþrælkun og annað flK: JBy
slíkt en samkvæmt
upplýsingum frá ^ W g*
íþróttavörufyrirtæk- % %.J?'
inu mun allur ágóði : jj§§ • i
afsölu skóna renna • j|j.
til góðgerðarmála, I ! . V
hvað svo sem það } f -fj
Hljómsveitin Mínus hefur verið tilnefnd til Kerrang-verðlaunanna sem sanvy
^jnefnt tímarit stenduTfyrir. Strákarnir eru tilnefndir í flökknumBesBI
Ifc^lnternational Newcomer eða besti erlendi nýliðinn, en Kerrang er breskt
^blað.Það eru engar smáhljómsveitir sem eru þarna í hópnum með
Sa ^MÍnus en þeir munu berjast við sveitir á borð við Velvet Revolver,The
K, ^Rasmus, Brand New og My Chemical Romance um verðlaunin. Þettaj
þykir vera mikill heiður fyrir Minus sem hefur eins og kunnugt er|
averið að gera það gott á Bretlandseyjum upp a siðkastið. Strák-
^arnir eru einmitt staddir þar nuna þar sem þeir munu meðaffl
Mký. !jannarsleikaáReading-tónlistarhátíðinninúumhelgina.Æjj^É
-r
1