Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2004, Blaðsíða 12
7 2 FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST2004
Fréttir DV
Ali G hent út
af Andy Rooney
Breska spaugfuglinum
Ali G var hent út af skrif-
stofu hins þekkta sjón-
varpsmanns Andys Rooney
nýlega eftir að Ali G hafði
gabbað Rooney með einu
af sínum fölsku viðtölum.
Rooney mun hafa misst
stjórn á skapi sínu er upp
komst um spaugið. í miðju
viðtalinu mun Ali G hafa
kallað Rooney rasista þar
sem Rooney var stöðugt að
gera athugasemdir við mál-
far Ali G. Rooney stóð í
þeirri meiningu í upphafi
að viðtalið væri fyrir
„breskan fræðsluþátt um
ungt fólk" og að þeir vildu
ræða við Rooney um popp-
menningu nútímans. Sá
gamli, sem unnið hefur við
60 minutes í 37 ár, hafði
víst engan húmor fyrir upp-
átækinu.
Mótmælir
ólympíuklámi
Trúarleiðtogi einn í
Kúveit hefur gagnrýnt sjón-
varpið þar í landi fýrir að
sýna fþróttakonur á ólymp-
íuleikunum í „afhjúpandi
og ósiðlegum klæðum".
Klerkurinn Awaad Barad al
Enezi segir að sjónvarpsút-
sendingar frá kvennaíþrótt-
um í Aþenu séu „klúrar og
klámfengnar". Raunar gekk
klerkurinn svo langt að
segja að íþróttakonurnar
sem sýndar eru í sjónvarp-
inu væru svo léttklæddar
að þær hefðu slæm áhrif á
siðgæði alls samfélagsins í
Kúveit. Sennilega hefur
klerkurinn algerlega farið
úr límingunum þegar
strandblakið var sýnt þar í
landi.
’„Viö Vestmannaeyingar erum
ánægöir núna enda tókum viö!
þátt ímenningarnótt um síð- \
ustu helgi," segir Andrés Sig- '■
urvinsson, framkvæmdastjóri,
fræðslu- og menningarsviös
Vestmannaeyja.„Viö settum
upp sýningu I salnum I Ráð-
húsl Reykjavíkur og helmingur
hennar
veröur
Landsíminn
opmn
fram á mánudag. Liöiö er á
pysjutlmann í Eyjum og menn
hafa veriö aö bjarga pysjun-
um, vigta þær og skrá og
börnin hafa aö venju séð um
að sleppa þeim. Stöö 2 ætlar
aö halda Idol-keppni I bænum
i næstu viku.í tengslum við
það húllumhæ stendur
fræöslu- og menningarsviö
bæjarins fyrir upphitun fyrir
keppnina."
MarkThatcher sonur járnfrúarinnar Margaret Thatcher hefur verið handtekinn í
Suður-Afríku vegna meintrar aðildar sinnar að valdaránstilraun í olíuríkinu Mið-
baugs-Gíneu. Sagður hafa styrkt málaliðanna sem ætluðu að steypa stjórn landsins
með fé og vistum.
í Hér er Mark ásamt móður sinni,
Margreti barónessu, við útförföður
sins Dennis fyrr íár. Handtaka
Marks kemur á sama tlma og rétt-
arhöld standa yfir i tveimur löndum
vegna tilraunarinnar til að steypa
stjórninni í Miðbaugs-Glneu.
Mark Thatcher sonur Margretar Thatcher fyrrum forsætisráð-
herra Bretlands og nú barónessu hefur verið handtekinn af
lögreglunni í Suður-Afríku vegna meintrar aðildar að valda-
ránstilraun í olíuríkinu Miðbaugs-Gíneu í Afríku en tilraunin
fór út um þúfur í mars á þessu ári. Thatcher er sagður hafa
styrkt málaliða þá sem stóðu að hinu misheppnaða valdaráni
með fé og vistum.
Talsmaður lögreglunnar, Maka-
hosini Nkosi, segir að verið sé að
undirbúa ákæru á hendur Mark um
að hann hafi brotið gegn lögum um
vopnaaðstoð við erlenda aðila sem er
í gildi í landinu. „Þetta er í tengslum
við hugsanlega fjárhagsaðstoð og
vistaflutninga í valdaránstilrauninni í
Miðbaugs-Gíneu," segir Nkosi. „Við
höfum þegar útvegað okkur húsleit-
ar- og upptökuheimild og rannsakað
heimili hans í Höfðaborg."
Réttarhöld í tveimur löndum
Handtaka Marks kemur á sama
tíma og réttarhöld standa yflr í
tveimur löndum vegna tilraunarinn-
„Þetta er í tengslum
við hugsanlega fjár-
hagsaðstoð og vista-
flutninga í valda-
ránstilrauninni i Mið-
baugs-Gineu."
ar til að steypa stjórninni í Mið-
baugs-Gíneu. I höfúðborginni Mala-
bo berst meintur höfuðpaur valda-
ránsins, suðurafríski vopnasalinn
Nick du Toit, fyrir h'fi sínu í réttar-
salnum. Hann hefur reynt að bera
blak af þeim málaliðum sem þátt
tóku í valdaránstilrauninni og segir
að þeir hafi ekki vitað til hvaða verks
þeir voru ráðnir. Alls eru 18 evrópsk-
ir og suðurafrískir menn fýrir rétti í
Malabo og eiga þeir yfir höfði sér allt
að 86 ára fangelsi.
Sjöú'u aðrir málaliðar eru í öðrum
réttarhöldum sem fram fara í
Simbave. Þar voru þeir allir hand-
teknir í mars sl. um það bil sem þeir
stigu upp í flugvél sem áttí að flytja þá
til Miðbaugs-Gíneu. Einn málaliði
enn, Þjóðveiji, lést í fangelsi í landinu
fyrr á þessu ári en Amnesty Inter-
national segir að grunur leiki á að
hann hafi verið pyndaður í hel.
Þriðji stærsti olíuframleiðand-
inn
Oh'uvinnsla hófst undan strönd-
um landsins á miðjum síðasta áratug
og er þaðan nú pumpað um 350.000
tunnum á dag inn á heimsmarkað-
inn. Er landið þar með þriðji stærsti
oh'uffamleiðandinn í Afrfku. Yfirvöld
hafa sakað oh'usalann Eh Calil og fleiri
erlenda fjármálamenn um að hafa
staðið á bakvið valdaránstilraunina.
Du Toit segir að fjármálamenn
hafi staðið á bakvið hið misheppnaða
valdarán en ætlunin hafi verið að
koma hinum útlæga Severo Moto til
valda. Hann dvelur nú á Spáni.
Miðbaugs-Gíneu hefur verið
stjómað með harðri hendi af forset-
anum Teodoro Obiang sem komst til
valda 1979 með því að drepa fyrrum
einræðisherra landsins sem raunar
var frændi hans.
Höfuðpaur frá Eton
Sá sem sagður er hafa skipulagt
valdaránið er Bretinn Simon Mann,
fyrrum námsmaður frá hinum þekkta
Eton-skóla en nú málaliði í Afríku.
Mann er einn af þeim sem er í haldi í
Simbabve. Hann ásamt hinum þar í
landi er ákærður fyrir tiltraun til að
drepa forseta Miðbaugs-Gíneu, ólög-
lega vopna- og sprengjueign, hryðju-
verk og landráð.
Óvænt búbót af ólympíuleikunum
Met í töku á kókaíni
slegið í Grikklandi
Varaforsetinn Cheney ósammála Bush
Cheney vill ekki banna
hjónabönd homma
Gríska lögreglan hefur nú slegið
met í töku á kókaíni þar í landi en á
tveimur dögum var lagt hald á tonn
af kókaíni í bænum Kalamata. Hin
mikla öryggis- og löggæsla í kring-
um ólympíuleikana hefur gefið af
sér óvænta búbót því kókaínsmygl
þetta uppgvötvaðist sökum mikillar
gæslu sem kom til vegna ótta við
hryðjuverk.
Á mánudag í þessari viku lagði
lögreglan hald á 850 kíló af kókaíni í
bát og íbúð í Kalamata. Og á þriðju-
dag fundust 205 kíló í viðbót í kjall-
ara í bænum.
Gríska lögreglan hefur handtek-
ið sjö manns vegna málsins. Fimm
þeirra eru Grikkir, einn er ítali og
Kókafn Grlska lögreglan hefur lagt hald á
mikið magn afkókaíni.
einn er Albani. Leitað er að einum
manni í viðbót. Hann er sagður
vera Rússi með falsað, grískt vega-
bréf.
Dick Cheney varafor-
seti Bandaríkjanna er nú
kominn upp á kant við
George W. Bush forseta
hvað varðar hjónabönd
homma og lesbía þar í
landi. Cheney hefur gef-
ið út yfirlýsingu um að
hann sé alfarið á móti
því að alríkisstjórnin
banni þessi hjónabönd.
Cheney kom með
þessa óvæntu yfirlýs-
ingu á kosningafímdi þar sem hann
var ásamt dóttur sinni Mary sem
hefur komið út úr skápnum sem
lesbía. Þessi erkiíhaldsmaður er eft-
ir sem áður á móti hjónaböndum
meðal samkynhneigðra.
Hann vill bara ekki að al-
ríkisstjórnin sé að
blanda sér í þau mál hjá
einstökum fylkjum í
Bandaríkjunum. Fylkin
sjálf eigi að fá að ráða
hvort Þau leyfi þessi
hjónabönd eða ekki en
málið þykir mjög við-
kæmt pólití'skt séð þar í
landi.
George W. Bush aftur á móti vill
banna þessi hjónabönd með öllu og
hefur sagt að slíkt bann eigi að setja
inn í stjórnarskrá landsins. Hann
hefur verið gagnrýndur harðlega
fyrir þá afstöðu sína.