Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2004, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2004, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST2004 Sport DV Lyfjamálin tröllríða öllu Lyíjahneykslin á rtlympíuleik- unum virðast engan endi ætla að taka. í gær var greint frá því að Francoise Mbango Etone, frá Afr- íkurQcinu Kamerún, sem bar sigur úr býtum í þrístökki kvenna á ólympíuleikunum á mánudags- kvöld, hafi fallið á lyfjaprófi. Gullíð í þeirri grein mun þvf fara tíl Grikkja, því það var gríska stúlkan, I irysopiyi Devetzi, sem varð önn- ur á eftir Etone. Hvert lyfjamisferiið á fætur öðru hefur komist upp og það vekur sérstaklega mikia athygli hversu margir verðlamiahafar hafa svindiað sér upp á pall. í öðrum lyijahneyksiisfréttum frá Grikklandi bar það helst að ungverski lyftingamaðurinn, Zolt- an Molnar, var rekinn heim f gær fyrir að mæta ekki í lyfjapróf og er hann tíundi lyftinga- maðurinn á ólympíuleik- lendir í lyfja- veseni. Þá er vert að geta þess að níss- neska frjálsíþrótta- konan Irina Korzhanenko, sem var svipt gullverðlaimunum í kúlu varpi kvenna vegna neyslu óiög legra lyfja, neitar að skila verð laununum. Hún er hörð á því að sigur hennar hafi verið verðskuldaður og að . iyíja- prófið * fl hafl , mm J|ý en liður tim &c%nWm ' íslendingar eiga ekki lengur NBA-leikmann í körfubolta eftir að Jón Arnór Stefánsson ákvað að segja skilið við bestu deild í heimi og snúa til Evrópu þar sem hann gerði eins árs samning við rússneskt félag. Jón Arnóp hstlnr í N Stolt okkar íslendinga í körfuboltanum, Jón Amór Stefánsson, hefur sagt skilið við Dallas Mavericks í NBA-deildinni og leikur með Dynamo St. Petersburg í Rússlandi í vetur. Er hér komið kærkomið tækifæri fyrir Jón til að efla sig sem leikmann og bæta í sarpinn áður en hann reynir fyrir sér í NBA á nýjan leik. DV sló á þráðinn til Jóns þar sem hann var á leið í rússneska sendiráðið til að ganga frá ýmsum málum. Jón var kampakátur með að vera á leið til Rússlands. „Það var ekki útlit fyrir að ég myndi leika mikið með Dallas í vetur og var þvf borðleggjandi að reyna fyrir sér á nýjum vígstöðv- um,“ sagði Jón. „Rúss- neska deildin er ein af öflugustu deildum Evrópu og því best til þess fallin að þróa mig sem leik- mann. Það er mjög mikilvægt fyrir mig að spila 30 mínútur í leik,“ sagði Jón og bætir við að hann myndi seint geta setið á vara- mannabekk í heilt ár í viðbót. Var drepleiðinlegt „Þetta var alveg drepleiðinlegt," segir Jón og hlær. „Ég lærði hins vegar helling hjá Dallas enda liðið með framúrskarandi þjálfara og aðstaðan eins góð og á verður kos- ið. í sumar fékk ég svo að spreyta mig í sumardeild NBA og gekk mér mjög vel. Það sýndi mér að þessar miklu æfingar hjá mér síðasta vetur hafa greinilega skilað sér. Ég mun svo reyna fyrir mér í NBA þegar rétti tíminn kemur en þá hefur Dallas forkaupsrétt á mér, sem er ekkert nema gott". Lið Dynamo hefur ráðið til sín einn af virtustu þjálfurum Evrópu og hafði það mikil áhrif á Jón. „Það er frábært að fá að leika í rússnesku deild- inni en hugurinn reikar oft til Dallas enda var öll framkoma og allt til fyrirmyndar þar. Ég mun reyna fyrir mér í NBA á nýjan leik þegar rétti tím- inn gefst en þangað til kveð ég deildina í bili.‘ „Hann heitir David Black og var um árabil þjálfari Maccabi Tel Aviv en það var árum saman eitt besta lið Evrópu. Hann er stóð ástæða þess að ég sló til." Að sögn Jóns er Dynamo skráð í Evrópukeppnina og segir hann það mjög mikilvægt fyrir sig sem leik- mann. „Þá fáum við að leika gegn liðum utan deildarinnar svo sem spænskum, frönskum og ítölskum liðum og er það mjög spennandi verkefni." Með þeim betri í heimi Jón segir rússneska leikmenn vera með þeim betri í heimi. Það er dágóður slatti af þeim í NBA, þó svo að þeir séu nánast úti um allan heim að spila körfubolta. Gömlu félagar mínir hjá Dallas voru einmitt að ná sér í Pavel Podkolzin fýrir komandi vetur." Heyrst hefur að rússnesku stelpurnar séu ekki alveg Jóni að skapi enda karlalegar.með eindæm- um. „Maður þarf svo sem ekkert á þeim að halda enda að slá sér upp þessa dagana," segir Jón dularfullur. „Það er frábært að fá að leika í rússnesku deildinni en hugurinn reikar oft til Dallas enda var öll framkoma og allt til fyrirmyndar þar. Ég mun reyna fyrir mér í NBA á nýjan leik þegar rétti tíminn gefst en þangað til kveð ég deildina í bili," sagði Jón Arnór Stefánsson sem heldur til Rúss- lands í dag. smari@dv.is Golfvöllur vikunnar Þorlákshafnarvöllur er ekta strandarvöllur sem í sumar stækkar um helming og nær langþráðu takamarki sínu að verða 18 holu völlur. brautirnar eru með ólíkindum mjó- ar og því erfitt að hitta þær. Það eru engar glompur á vellinum enda er það algjör óþarfi þar sem mikill sandur er allsstaðar í kringum völl- Þorlákshafnarvöllur (Golfklúbbur Þorlákshafnar) ★ ★★ 9 holu völlur Par 36 Lengd - gulir teigar 5866 metrar Lengd - rauðir teigar 4918 metrar Ársgjald 26.000 kr. *Afsláttur eru veittur vegna maka sem borgar 13.000 kr. Unglingar borga líka 13.000 krónur. Inntökugjald Ekkert Vallargjald (18 holur) 2.000 kr. spila þær. Skemmtilegasta holan á vellinum að mati DV er 9. holan sem er par 4 og 327 metrar að lengd af gulum teigum, forgjöf á þessa holu er 5. Upphafshöggið er mjög erfitt þar sem brautin er þröng og vatn á vinstri hönd. Innáhöggið er líka krefjandi þar sem vatn er fyrir fram- an flötína, Þetta er lfldega sá strandarvöllur sem er með grófustu umgjörð hér á landi og það er magn- að að heyra í briminu allsstaðar á vellinum. Þorlákshafnarvöllur hefur níu holur í dag en verður 18 holu völlur nú í lok sumars. Völlurinn er ekta strandarvöllur og er mjög krefjandi, 1ÉL p. mn. Það sem kom útsendara DV hvað mest á óvart varðandi völlinn var hvað allar flatirnar eru svipaðar, þ.e. sama rensli á þeim öllum, og þær eru í mjög góðu standi. Brautirnar eru flestallar í góðu standi fyrir utan það að þær eru fullloðn- ar í misfellum og þar sem völlurinn er byggður upp á sandi er mjög létt óg þægilegt að slá af brautunum því kylfu- hausinn fer alltaf vel í gegn. Útsendari DV skoðaði nokkrar af nýju holunum sem eru að verða klárar til að verða teknar í notkun og líta þær skemmti- lega út og vottar fýrir tilhlökkun að Öll golf landslið á Islandi leika í ZO-ON fatnaði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.