Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2004, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2004
Fyrst og fremst DV
Útgáfufélag:
Frétt ehf.
Útgefandi:
Gunnar Smári Egilsson
Ritstjóran
lllugi Jökulsson
MikaelTorfason
Fréttastjóran
ReynirTraustason
Kristján Guy Burgess
DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn:
550 5020 - Fréttaskot 550 5090
Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsing-
an auglysingar@dv.is. - Dreiflng:
dreifing@dv.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagna-
bönkum án endurgjalds.
Hvað veist þú um
1 Fyrir hvaða flokk situr
hann á þingi?
2 Hvað sat hann í mörgum
þingnefndum á liðnum
vetri?
3 í hvaða nefnd var hann
formaður?
4 í hvaða málum fóru skoð-
anir hans og flokksins ekki
saman?
5 í hverju hefur hann há-
skólapróf?
Svör neðst á síðunni
Föndur
fyrir alla
Hjónin Ásdís og Sölvi
halda þessari vefsíðu úti og
ætla föndrurum á öllum
aldri. Hún er föndrari af líf
Vefsíðan
www.fondur.is
og sál en hann sér um vef-
síðuna. Þar er hægt að afla
sér upplýsinga um flest
varðandi þessa tómstunda-
iðn og þar er sérstakur hug-
myndabanki fyrir börn. Af
vefnum læra þau að gera
sér sjónauka sem gefa ver-
öldinni nýjan lit, álpappírs-
myndir, minnisspil, fingra-
brúður úr gipsi, sandmynd-
ir og ótal margt fleira. A vef-
síðunni er einnig að finna
góð föndurráð fyrir alla og
sum eru jafnvel nær því að
vera húsráð; ef regnföt hafa
farið í sundur á suðunni
þarf bara að leggja sárin
saman á suðunni, setja tvö-
faidan álpappír ofan á og
renna rólega yfir með
straujárni!
Englar
alheimsins
Engill er auðvitað himnesk
vera og/eða góður andi.
Afleidd merking orðsins er
verndarvættur en auk þess
er það notað yfir þá menn
sem þykja skara fram úr
öðrum fyrirgæsku sakir
eða eisku. Angelus höfðu
Rómverjar yfír þessar
himnesku verur og þáðu
orðið frá Grikkjum. Angelos
var meðal þeirra haftyfir
sendiboða. Orðið
er talið hafa
borist með gotum
upp meö Dóná og að Rín
en þar störfuðu gotneskir
kristniboðar meðal ger-
mannskra bræðra sinna.
Hingað hefur orðið senni-
lega borist frá Englandi í
upphafi kristni.
Málið
SvömetstáslBunnl.
1. Framsóknarflokkinn. 2. Fjórum. 3. Iðnað-
arnefnd. 4. Fjölmiðlamálinu og Iraksmál-
inu. 5. Stærðfræði.
Hæstaréttardómarinn
<u
*<i>
Skyldi þetta vera í síðasta sinn sem mað-
ur sest niður til að skrifa pistil eða
greinarkom um það sem efst er á baugi
í þjóðfélagsumræðunni og byrjar að slá inn
nafn Jóns Steinars Gunnlaugssonar? Og því
hér með loldð og rní verði ekki framar á
þann mann minnst? Hann muni hverfa
kyrrlátur inn í björg Hæstaréttar, gerast
einn hinna andlitslausu dómara sem kveða
upp úrskurði sína einum rómi og starfa að
öðru leyti í hljóði?
Ég er eiginlega viss urn ekki.
f fyrstalagi er Jón Steinar Gunnlaugsson
(hana! þama kom nafnið aftur!) einfaldlega
svo litrík og fyrirferðarmikU persóna að það
er alveg sama þótt hann sveipi sig nú
skikkju hæstaréttardómara; ég þori að veðja
að hann mun eigi að síður héðan í frá sem
hingað til finna upp áýmsu sem kemur
honum vfijandi eða óvUjandi í sviðsljós fjöl-
miðlanna.
Þótt vænta megi þess að þeim fari nií að
linna, litlu rammagreinunum hans í Mogg-
anum.
En í öðm lagi mun stöðuveitingin hafa
ýmsar afleiðingar sem enn em ekki aUar
fyrirsjáanlegar og hún verður því vafaiítið
rædd í þaula á næstunni, bæði opinberlega
og í ýmsum þeim bakherbergjum þar sem
sumir fagna núna eða aðrir telja sig eiga um
sárt að binda.
Stöðuveitingin er auðvitað rammlega
póUtísk. Ljóst er að Geir Haarde, settur
dómsmálaráðherra, fór auðveldustu leiðina
fyrir sig sem dyggan flokksmann, að ég segi
ekki flokksþræl. Skipaði besta vin forsætis-
ráðherra í stöðu hæstaréttardómara aðeins
ári eftir að náfrændi sama forsætisráðherra
fékk þar sæti eins og alræmt er orðið.
Og það á að verða okkur umhugsunar-
efni.
Sú ofsalega „kosningabarátta" Jóns Stein-
ars (þriðja sinn!) og sú gífurlega áhersla sem
kUka forsætisráðherra lagði á að hann fengi
stöðima er dökkur blettur á þessum hátindi
á ferU lögmannsins knáa. Sem er synd því
eins og ég hef áður sagt, þá hefði út af fyrir
sig ekkert verið nema gott um það að segja
að hann fengi sæti í Hæstarétti sem einn
skörulegasti fúUtrúi lögmanna landsins.
En ekki svona. Og ekki núna.
En við lifum bara greinUega í svona landi.
Núna.
llíugi Jökulsson
MARGIR ERU GLAÐIR 0G MARGIR ERU
FÚLIR. Sumum er alveg sama. Það er
svoleiðis þegar umdeildir menn fá
vegtyllur. Það finnst mörgum dap-
urlegt að það hafi verið rétt hjá
Ragnari H. Hall að það hefði ekkert
upp á sig að sækja um að verða
hæstaréttardómari því það væri
löngu ákveðið hver yrði skipaður.
Einhverjir ákváðu nú samt að sækja
um. Það var tilgangslaust. Það var
alveg sama hvað Hæstiréttur
reyndi. „Okkar maður" var skipað-
ur. Rökin voru fundin eftirá.
ÞaÖ sem við höfum mest veriö aö spá
í er aö með skipan Jóns Steinars komi
fram einu sinni enn birtingarmynd
þess að leiðin til áhrifa í
fslensku samfélagi
sé aö vera í
réttu liöi.
ÞAÐSEMVIÐ HÉRÁDV höfum haft
mest við þetta að athuga er ekki
lögfræðiþekking Jóns Steinars. Hún
er óumdeild. Hann hefur verið
kraftmesti málflutningsmaður
landsins sem allskonar fólk hefur
treyst til að gæta sinna hagsmuna.
Pólitískir andstæðingar eins og Jón
Baldvin Hannibalsson og Þröstur
Ólafsson hafa komið fram og skrif-
að greinar til stuðnings Jóni Stein-
ari. í báðum tilfellum tók Jón Stein-
ar að sér mál barna þeirra, annars
vegar í forræðisdeilu og hins vegar í
fíkniefnamáli, og leiddi mál þeirra
til farsælla lykta fýrir þá.
Fyrst og fremst
ÞAÐ SEM VID HÖFUM MEST VERIÐ AÐ
SPÁÍ er að með skipan Jóns Steinars
komi fram einu sinni enn birtingar-
mynd þess að leiðin til áhrifa í
íslensku samfélagi sé að vera f réttu
liði. Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins
hafa nú í tvígang gengið gegn áliti
Hæstaréttar, fýrst til að skipa
frænda Davíðs á grundvelli vafa-
samrar þekkingar á Evrópurétti og
nú briddsfélaga og vin Davíðs, af
því nú vantaði lögmann. Alveg
sama hversu vitlaus álit Hæstarétt-
ar eru, þá hlýtur að teljast fáránlegt
að ráðherrar geti valið sér kríteríur
eftirá, fundið til réttlætingar til að
skipa sína menn í réttinn. Við ítrek-
um það sem við höfum áður sagt:
Þessu verður að breyta.
ÞAÐ ER HÆTTA Á AÐ TRAUST Hæsta-
réttar bíði mikinn hnekki við þetta
mál. Þeir sem ekki geta treyst Jóni
Steinari til að vera hlutlaus í við-
kvæmum málum sem varða gjörðir
ríkisstjórnarinnar eru öðrum meg-
in. Hinum megin eru þeir sem hafa
misst traust á réttinum vegna um-
sagnarinnar þar sem var áberandi
að hinir dómaramir vildu ekki Jón
Steinar í réttinn. Nú þurfa allir
þessir dómarar að dansa saman.
ÞAÐ ER S0RGLEGT EF MENN HAFA
verið sannspáir um að löngu hafi
verið ákveðið að skipa Jón Steinar í
réttinn. Umsóknarferlið hafi verið
til málamynda. Fáeinir miðaldra
karlar ráða því sem þeir vilja ráða.
Þeir skipa þá sem þeir vilja skipa.
Það kjósa þá hvort sem er allir aft-
ur.
Blái heilinn Hvað næst?
Nú er búið að skipa Jón Steinar i Hæsta-
rétt. Þá spyrja menn hvað bláa höndin
gerir næst. Eða skyldi maður kalla það
bláa heilann, sem hugsar fyrir auma
borgara þessa lands7
Næstu skipanir verða þessar:
Háskólarektor - Hannes
Hólmsteinn Gissurarson
Löngu komiö að því aö þessi kurt-
eisi prófessor fái uppreisn æru.
Vinstrimennirnir f öllum flokk-
um og úti um allt samfélag
hamast á honum og saka
hann um hitt og þetta. Hann
getur sýnt þessum sjálfskipuðu
menningarvitum hvernig á aö stjórna skóta.
Til að hann eigi möguleika þarfað vfsu að
breyta lögum um kjör háskólarektors en
hvað erein lagabreyting milli vina - eða
réttara sagt einkavina?
Utanríkisráð-
herra - Björn
Bjarnason
Gamall draumur rætist.
Davíð stendur upp fyrir
sínum dyggasta varnar-
manni og hleypir honum íað
segja heimsbyggðinni hvernig þetta var nú
allt saman um Stalín, Brésnéffog þá hina.
Allar skoðanir Björns á utanríkispólit/k eru
að vfsu„börn sins tima"en með Bush áfram
ÍHvita húsinu er aldrei að vita nema sælu-
timar renni upp aö nýju.
Sendiherra - Júlíus
Hafstein
Þarffasta stöðu eftir dygga
þjónustu í frítansverkefnum.
Maður með hið ægifagra nafn
Hafstein á ekki að þurfa að vera að snatta
endalaust I svoleiðis skiterfi.
Útvarpsstjóri -
Hallur Hallsson
Skrifaði hjartnæma grein
um hversu góðurJón Steinar
hafi verið við Keikó. Getur ekki
orðið kynningarstjóri rlkisins, þvi
hanner orðinn það nú þegar. En væri flottur
útvarpsstjóri og þar sem allir eru nú þegar
búnir að gleyma hver er núverandi útvarps-
stjóri, þá liggur beint við aðhann fari í
djobbið hið fyrsta. Allar útvarpssögur verða
eftirDavið.
Forseti íslands - Gísli Mart-
einn Baldursson
Bara ekki aiveg strax.
Hann er ekki orðinn
þrjátíu og fimm. En
strax og því marki er
náð verður leiðin
greið. Annars mætti
kannski breyta stjórn-
arskránni. Því hvað er ein
stjórnarskrárbreyting milli
einkavina?
Fréttastjóri Útvarpsins -
Ólafur Teitur Guðnason
Einn allra besti biaðamaður
landsins samkvæmt sjálf-
stæðis- og framsóknar-
mönnum. Fylgist grannt
meðþvi hvort íslenskir
blaðamenn skrifa samkvæmt
stefnuskrá repúblikanaflokksins.
Leggur Hijóövitjann niður og gerir hiutina á
hinn eina rétta hátt.
Hæstaréttardómari - Sveinn
Andri Sveinsson
Fyrir skömmu heföu margir orðið
steinhissa á þeirri hugmynd að 0$ tft
Sveinn Andri kynni að enda í
Hæstarétti. En nú erþað borð-
tiggjandi. Jón Steinar þarffieiri
tiðsmenn iréttinn!
Forsætisráðherra -
Geir H. Haarde
Hefur aldeilis unnið fyrir þvi
o