Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2004, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2004
Fréttir DV
í samband við
orriki
Geir H. Haarde notaði
tækifærið á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna í New
York til að undirita
yfirlýsingar um stof-
nun stjómmálasam-
bands fyrir íslands
hönd við þrjú ríki:
Gíneu-Bissá, Mflcró-
nesíu og Vanúatú. Tvö hin
síðamefhdu em örrfld í
Kyrrahafi og Vanúatú er
einna helst þekkt fyrir Survi-
vor-þættina. Gínea-Bissá er
aftur á móti á vesturströnd
Afríku og þekkt fyrir að
stjómarfar hefur lengi verið
óstöðugt og borgarasfyrjöld
ríkt í landinu.
Methalli á
vöruskiptum
Ljóst er að mikill halli
ernú ávömskipmm
landsmanna en hafli á
vömskiptum við útlönd í
ágúst síðastliðnum nam
6,7 milljörðum. Samtals
nemur halli á vömskipt-
um fyrstu 8 mánuði ársins
alls 27 milljörðum og er
hallinn meiri en á sama
tíma árið 2000 sem var 22
milljarðar en methaili var
í vömskiptum lands-
manna það ár. Á síðast-
liðnu ári var 6,7 milljarða
halli á vömskiptum lands-
manna á fyrstu 8 mánuð-
um ársins og er því nei-
kvæður viðsnúningur upp
á 20 milijarða milii ára.
Greining KB banka segir
frá.
Ástog
pólitík
Kristján Þór Júlíusson,
bæjarstjóri á Akureyri.
„Ég á voðalega erfitt með að
setja mig inn I hjónalíffram-
sóknarmanna. En það er Ijóst
að I pólitik verða menn að
spila að sama marki. Að því
leyti skil ég ágætlega þing-
flokk framsóknarmanna. Ef
það hefur ekki verið hægt að
leysa úr málum með öðrum
hætti er þingflokknum þetta
frjálst. Skoðanaskipti eru holl.
En trúnaður er grundvallarat-
riði í pólitik og hjónabandi."
Hann segir / Hún segir
Minnkandi útleigur á videóleigum og minni aðsókn í kvikmyndahús olli því að
Samtök myndrétthafa kærðu 12 tölvuþrjóta sem buðu kvikmyndir, tónlist og forrit
frítt á netinu. Þúsundir íslendinga hafa náð sér í slíkt efni. Lögreglan lýsir því yfir
að hún muni nú refsa fyrir ólögleg skipti skemmtiefnis á netinu.
Sjóræningar flýja netið
eftir áhlaup lögreglu
Þrjátíu lögreglumenn réðust inn til 12 tölvuáhugamanna í fyrra-
dag og hirtu tölvur þeirra og gögn sem innihéldu fjölfaldaðar
kvikmyndir, tónlist og tölvuforrit. Sama dag hrapaði netnotkun
á íslandi niður um helming.
„Það má búast við því að við
munum í framhaldinu grípa inn í
annars staðar,“ segir Helgi Magnús
Gunnarsson, lögfræðingur hjá Ríkis-
lögreglustjóra, í tilefni af aðgerðum
lögreglu gegn þeim sem dreifa tón-
list, kvikmyndum og forritum ólög-
lega. Aðgerðir lögreglunnar hafa for-
dæmisgildi. „Þetta er fyrsta mál
þessarar gerðar hér á landi. Svona
aðgerðir eru ekki margar í heimin-
um og engar eða fáar á þessu stigi, “
segir Helgi.
Toppurinn á ísjakanum
Talið er að þúsundir fslendinga
hafi dreift og tekið við ólöglegu efrti
með sömu leiðum og tölvuþrjótarn-
ir 12 gerðu færar. Lögreglan byggði
aðgerðir sínar í fyrradag á rannsókn
sinni á einni „grúppu" sem nýtir sér
forritið DC++. Hundrað manns
skiptust ólöglega á efni inni á grúpp-
unni, sem bar nafnið Ásgarður, en
önnur sem ráðist var gegn hét Deilir.
Tölvuþrjótarnir 12 eru aðeins
toppurinn á ísjakanum. Helmingur
þeirra voru svokallaðir stjórnendur í
sinni grúppu, en hinn helmingurinn
voru þeir sem buðu fram mest efni í
Þessi minnkun í net-
notkun bendir til þess
að fólk hafi vitað upp
á sig skömmina.
grúppunni. Sá sem bauð upp á mest
hafði 2,5 terabæt, sem jafngildir
2.500 gígabætum eða 2,5 milljónum
megabætum.
Lögreglan á verði
Aðferðin sem lögreglan notaði
var að smeygja sér inn í Ásgarð und-
ir því yfirskini að bjóða fram 50 til 70
gígabæt af efni. „Við fengum aðgang
inn á kerfið, þar sáum við ip-tölur og
gælunöfn notenda. Til að vita hverj-
ir voru á bakvið ip-töiur þurftum við
að snúa okkur til dómsmálaráðu-
neytisins og fengum úrskurð til að
sjá hjá símafyrirtækjunum hverjir
voru á bak við þetta," segir Helgi.
Hann segir að gera megi ráð fyrir
að lögreglan hafi samband við aðra
sem voru inni á svæðinu. „Við mun-
um að öllum lfldndum taia við hina
af notendunum hundrað og spyrja
þá út úr þeirra aðkomu, hvernig
þetta kerfi virkar." Hins vegar h'tur út
íyrir að þeir sleppi við refsingu ein-
faldlega vegna þess hve mikiil tími
og vinna færi í að gera tölvur þeirra
upptækar og rannsaka innihald
þeirra.
Skelfing á netinu
Aðvaranir óttasleginna netverja
dundu á netinu í gær eftir að fféttist
af lögreglurassíunni. Fólk var hvatt
til að aftengjast skráaskiptaforritum
eins og DC++ vegna aðgerða lögregl-
unnar.
Netnotkun í gær var í heild sinni
einungis helmingur af því sem hún
var fyrir lögreglurassíuna. Líklegt er
að hluti af ástæðunni fehst í að
grúppu tölvuþrjótanna var lokað, en
Töl vunotendur Útti greip um sig i
netheimum eftir að lögreglan gerði
rassíu hjá þeim sem dreifa skemmtiefni
ókeypis. Svo virðist sem helmingur net-
notkunar hafi verið ólöglegs eðlis.
þó má telja að þeirra notkun
á netinu hafi einungis verið
brot af heildarnotkuninni.
Fleiri sambæriiegar grúppur
eru starfræktar. „Það eru aðvaranir á
netinu um að loka öhu, aftengja sig
og hafa hljótt. Þessi minnkun í net-
notkun bendir tii þess að fólk hafi
vitað upp á sig skömmina."
íhuga að kæra fleiri
Hallgrímur Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka myndrétt-
hafa á íslandi (Smáís), segir að tii
skoðunar sé að kæra fleiri en tölvu-
þrjótana 12. „Við rétthafar höfum
upplýsingar um 100 stórnotendur
sem við höfum ekki kært enn. Mér
finnst eðlilegt að fólk fylgi lögum en
ef
fólk brýtur
lög hlýtur jafnt yfir alla
að ganga. Ég vil taka það fram að
við erum mjög alvarlega að skoða að
fara í skaðabótamál," segir hann, en
stórnotendur teljast þeir sem hafa
deilt yfir 100 gígabætum.
Hailgrímur segir minnkandi net-
notkun eftir rassíu lögreglu vera
lýsandi fyrir alvarleika málsins.
„Þetta sýnir hversu alvarlegt
ástandið var og er enn. Ég myndi
ekki vilja hugsa það til enda ef þetta
gengi áfram. Við höfum séð minnk-
andi útleikgur á vídeóleigum og
minnkandi aðsókn í bíóhús og þess
vegna fórum við út í kærur," segir
hann.
jontrausti@dv.is
Eiríkur Tómasson segir ráöningu hæstaréttardómara vera sviðsett leikrit.
„Ég geflítið fyrir samlikinguna
hjónaband og pólitískt sam-
starf. t pólitík verður fólk að
geta treyst, en það veröur llka
að vera frjálst að sínum skoð-
unum. Ég er alveg gáttuö á því
sem framsóknarmenn eru að
gera. Þótt ég megi kannski
ekki hafa skoðun á því þá
endar með því að það verði
stofnaður Landsbyggðarflokk-
urinn. Kristinn verður þar
Jón Steinar fagnar og þagnar
Jon SteinarGunn-
laugsson Orðinn
dómarien verðurnú
að hætta aö tjá sig
um þjóðfélagsmál.
rett.
Soffía Vagnsdóttir,
tónlistarkennari í Bolungarvík.
„Mann grunar að hér hafi verið
sett á svið leikrit. Ráðherrann
velur viðmið eftir hentugleika.
Það sjá aliir í gegnum þetta sem
vilja," segir Eiríkur Tómasson
prófessor sem Hæstiréttur taldi
annan tveggja hæfustu umsækj-
enda um embætti hæstaréttar-
dómara.
„Ég tek við þessu
embætti af auðmýkt
og vona að ég nái að
i/J uppfylla þær ríku
•' kröfúr sem til
embættisins
eru gerðar,"
segir Jón
i Steinar
Gunn-
| laugsson
nýr dómari
við Hæsta-
Hann tekur
við embættinu 15. október.
Jón Steinar segist nú munu hætta
að tjá sig um þjóðfélagsmál á opinber-
um vettvangi.
Markús Sigurbjömsson, forseti
Hæstaréttar, segist hvorki hafa nokk-
uð um sldpanina að segja né vilji hann
tjá sig um viðbrögð réttarins við því að
ráðherra virði umsögn hans að vettugi
í annað sinn.
Hæstiréttur taldi þijá umsækjend-
ur standa framar Jóni Steinari þegar
umsækjendumir sjö vom metnir út
frá m'u þáttum sem rétturinn lagði til
grundvaliar. Þar sem lögmanns-
reynsla var metin lagði Hæstiréttur
reynslu Jóns Steinars að jöfriu við Ei-
rík Tómasson þótt miklu hafi munað í
árum og málafjölda. Eiríkur og Stefán
Már Stefánsson vom taldir fremstir
umsækjenda að mati Hæstaréttar en
þar á eftir var Hjördís Hákonardóttir.
Atli Gíslason lögmaður Hjördísar
segir hana muni leita réttar síns af
endumýjuðum krafti. „Það em enn
brotin á henni jafnréttislög. Þetta sýn-
ir eindreginn brotavilja og hertan
ásetning dómsmálaráðherra til brota
ájafriréttislögum," segir Atii.
Eiríkur Tómasson segist eklá sjá
eftir að hafa sótt um. „Ég trúði því ekki
að það væri ákveðið frá byrjun hver
yrði skipaður og batt vonir við að Geir
H. Haarde tæki málefnalega ákvörðun
en reyndin er önnur, eins og komið er
íljós," segir.
Eiríkur segist hafa áhyggjur því
hvert stefnir:
„Það væri hreinlegast að menn
segðu bara að þeir vildu sína póli-
tísku samheija í réttinn og skyld-
menni heldur en að vera að
klæða þetta í búning. fs-
lenska stjómsýslu hefur sett
mikið niður."
kgb@dv.is