Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2004, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2004
Fréttir DV
Skila bóklOO
árum of seint
Bók hefur verið skilað
aftur á bókasafnið í
Inverness á Skotíandi, 100
árum eftir að hún var lánuð
út. Sektin nemur ríflega
hálfri milljón króna en
starfsmenn safnsins létu
hana falla niður. Það var
maður frá Invemess sem
fann bókina á flóamarkaði í
Suður-Afríku. Bókin er
myndabókin Invemess
Sketches 1901 til 1904 eftir
Isabel Anderson. Var hún
upphaflega gefin safninu af
Isabel sjálfri árið 1908.
Starfsmenn segja það hafa
verið mistök að lána bókina
út þar sem hún tilheyrði
heimildadeild safnsins.
Skrópuðu
Í23 ár
Allt starfslið skóla í
austurhluta Indlands
hefur verið rekið. Upp
komst að það hafði ekki
mætt f vinnu sína í 23 ár.
Starfsliðið, þar á meðal
átta kennarar, skrópuðu
í vinnunni öll þessi ár
fyrir utan tvo daga á
hveq'u ári þegar hátíðar-
höld kröfðust viðvem
þeirra. Skrópið komst
upp eftir skyndikönnun
kennsluyfirvalda. Einnig
kom I ljós að nöfn flestra
nemenda sem skráðir
vom í skólann vom
fölsuð. Kennararnir
höfðu samband við
skólastjórann einu sinni
í mánuði til að fá launin
sín. Það brást aldrei að
þau væm borguð út.
Skóli fyrir
einn nemenda
Opnaður hefur verið
skóli á afskekktri eyju und-
an strönd Króatíu
íyrir aðeins einn
nemenda. Hinn
sjö áragamliArm-
andi Smiricic er
byrjaður að sækja
skólann. Móðirin stóð áður í
tveggja ára stappi við
menntamálaráðuneyti
landsins og vimaði til þess
að það væri bundið í stjóm-
arskrána að Armandi ættí
rétt á kennslu eins og aðrir
þegnar landsins.
Fyrsta sjónvarpseinvígi þeirra Johns Kerry og George W. Bush mun fara fram í
kvöld og potturinn er stór. Talið er að einvígið sé eitt síðasta tækifæri Kerrys til
að öðlast raunhæfa möguleika á sigri í forsetakosningunum. Talsmenn Bush aftur
á móti reyna að draga úr mikilvægi einvígisins fyrir sinn mann.
Kerry EfKerry gengur ekki vel gegn Bush og telst
hafa tapað einviginu getur hann svo gott sem gleymt
möguleikum á slgriþann 2. nóvember.
■...........
SÉteiSÍF
í nótt mun fyrsta sjónvarpseinvígi þeirra Johns Kerry og George
W. Bush verða háð í Miami í Flórída. Kosningalið beggja fram-
bjóðenda hefur tekið sér frí frá baráttunni þessa vikuna til að
undirbúa sína menn eins vel og kostur er.
Talið er að einvígið sé síðasta
tækifæri Kerrys til að eiga raunhæfa
möguleika í forsetakosningunum.
Kerry hefur ekkert gengið í að
höggva á 6 til 8% forskot Bush meðal
skráðra kjósenda í skoðanakönnun-
um síðusm vikumar. Talsmenn Bush
aftur á móti reyna að draga úr mikil-
vægi einvígisins fyrir sinn mann og
benda á að Kerry hafi orð á sér sem
mun meiri ræðuskörungur en Bush.
Þetta fyrsta einvígi af þremur er
hið mikilvægasta að sögn sérfræð-
inga og ef Kerry gengur ekki vel gegn
Bush og telst hafa tapað einvíginu
getur hann svo gott sem gleymt
möguleikum sínum á sigri þann 2.
nóvember er kosningamar fara fram.
Einvígið mun öðm fremur snúast
um hvort hinn 58 ára gamli Bush get-
ur varið stöðu sína sem besta brjóst-
vöm Bandaríkjamanna gegn hryðju-
verkum. Og hvort Kerry getur stigið
fram sem trúverðugur annar kostur
fyrir landsmenn sína í þessari baráttu.
Boxarinn gegn dansaranum
Bandaríkjamenn sjálfir líkja ein-
víginu við slagsmál milli boxarans
Bush og dansarans Kerrys.
Bush hefur það forskot á Kerry að
vera þekktari og skjóta oft fast á
andstæðinga sína í sjónvarpi. Slíkt
getur verið hættulegt fyrir Kerry sem
yfirleitt þykir frekar akademískur og
óþekktur hjá hinum jarðbundnu
samlöndum sínum.
Kerry þykir fremur ómannblend-
inn á meðan Bush virkar glaðsinna
og lítt hátíðlegur. Slík hefur oft
hjálpað Bush þegar honum vefst
tunga um tönn í máh sínu.
írak og hryðjuverk
Efni þessa fyrsta einvígis þeirra
Kerrys og Bush em alþjóðamál en
Bush Er þekktari en Kerry og skýtur oft fast á
andstæðinga sína í sjónvarpi.
það mun að stærstum hluta snúast
um írak og baráttuna gegn hryðju-
verkum.
Kerry mun reyna sitt besta til að
sannfæra almenning um að Bush
hafi litað ástand mála í Íraksstríðinu
rósrauðum litum meðan staðreynd-
in sé sú að Bandaríkjamenn séu vel
og vandlega með buxurnar á hælun-
um í því stríði.
Bush aftur á móti halda því ffarn
að hann sé mun betri í að fást við
baráttuna gegn hryðjuverkum en
Kerry sem skiptí um skoðun eftir því
sem vindar blási.
Þrettán sentimetrum hærri
Samkomulag þeirra Kerrys og
Bush um einvígið er plagg upp á 32
síður og stóðu strangar samninga-
viðræður lengi milli talsmanna
beggja áður en samkomulagið var
undirritað. í því má finna atriði eins
og að ræðupúltin skuli vera ná-
kvæmlega 127 sm há og að fram-
bjóðendur skuli standa minnst þrjá
metra frá hvor öðrum. Þetta fékk
James Baker aðalsamningamaður
Bush í gegn. Málið er að reyna að
koma í veg fyrir að áhorfendur sjái
að Kerry er 13 sentimetrum hærri en
Bush.
Eggert Haukdal,
fyrrverandi alþingismaður.
„Tíðin hefur veriö alveg ein-
stök i allt sumar. Kannski eru
Dabbi og Dóri teknir við á efri
hæðinni og stjórna lika veðr-
inu. Öll þekkjum hvað gott frá
þeim kemur hérna á neðri
Landsíminn
inm, ^^**t*tmtmmmt*tt
segir Eggert Haukdal, fyrrver-
andi alþingismaður, á Berg-
þórshvoli.,,Ég hefþað þokka-
legt og stunda minn smá-
búskap. Ég hefekki gefist upp
við að ná fram réttlætinu í
mlnum málum. Mannúð frá
þeim, sem fara með manna-
forráð hér, erekki til.“
Nicholson með gráa fiðringinn
Nýr þjóðarréttur Þjóðverja
Jackvill ólmurí
rúmið með Moss
Leikarinn góðkunni Jack Nichol-
son er illa haldinn af gráa fiðringn-
um og reynir nú allt hvað hann gét-
ur að fá fyrirsætuna Kate Moss í
rúmið með sér. Jack virðist hafa
þróað smekk fyrir mjónum á sínum
efri árum en síðasta kærasta hans
var hin ofurgranna Lara Flynn
Boyle.
Jack gengur svo með grasið í
skónum á eftir Moss að hann neit-
ar að viðurkenna að 37 ára aldurs-
munur sé nokkurt vandamál. Og
Moss virðist svolítið upp með sér
yfir áhuga Jacks því nýlega sást til
þeirra tveggja við kvöldverð á
Spice Island-veitingahúsinu I New
York.
„Það eru til tvær tegundir af kon-
um,” segir Jack. „Þær sem vilja
Jack Nicholson Jack virðist hafa þróaö
smekk fyrirmjónum á sinum efri árum en
slðasta kærasta hans var hin ofurgranna
Lara Flynn Boyle.
hoppa í rúmið með mér og þær sem
vilja gefa mér kinnhest. Ég vona að
Kate sé ekki í síðari hópnum."
Kebab fellir steikta
pulsu úrfyrsta sæti
í nýrri handbók um Þýska-
land kemur fram að hin «£
ástsæla þýska steikta »
pulsa er ekki lengur •
vinsælastí skyndi
bitinn í landinu.
Tyrkneskt
kebab hefur
fellt pulsuna
úr fyrsta sæti.
I handbók-
inni er annars
fjallað um allt milh ’
himins og jarðar er
við kemur Þjóðverjum, allt frá
gauksklukkum að bestu bjórstöðun-
um.
Höfundar bókarinnar lýsa von-
brigðum sínum yfir að ekki séu leng-
ur pulsuvagnar á hverju götuhorni í
landinu. Vögnunum hefur I
Mto^stórum stfl verið skipt út
, fyrir kebab-staði. Og
r það þótt pulsugerð-
^ armenn hafi
( reynt að berjast
gegn þróuninni
með tilbrigð-
um eins og
i karrý-puls-
um.
„í fjölmarga
áratugi var
steikt pulsa I
fyrsta sæti yfir
skyndibita í Þýskalandi," segir í bók-
inni. „Nú er svo komið að ekki einn
einastí bær eða þorp í Þýskalandi er
án kebab-staðar þar sem kjötið er
borið fram í tyrknesku brauði."
Kebab Er orðið vin-
sælasti skyndibiti
Þjóðverja.