Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2004, Qupperneq 14
74 FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2004
Fréttir DV
Lenti í bflslysi
Peter Phillips, barnabarn Elizabeth
drottningar, slapp ómeiddur úr
bílslysi í Kína um helgina. Peter
Phillips er 26 ára og starfar í mark-
aðsdeildinni fyrir Williams í Formúlu
1 kappakstrinum. Hann var á leið-
inni að formúlukeppnina í Shanghai
þegar slysið átti sér stað. „Ég er
heppinn að vera á lífi. Allar bílrúðurnar brotnuðu
og bíllinn bognaði eins og banani," sagði Peter en
tveir aðrir farþegar slösuðust minniháttar. Peter er
eldri bróðir Zöru Phiilips.
illi
Masako að batna
Masako krónprinsessa Japans sást opinber-
í fyrsta skipti í langan tfma í vikunni. Á
sama tíma gaf höllin út heimamyndband af
Á myndbandinu sést Masako
með Aiko litiu prinsessu í fanginu. Mæðgurnar
>ru glaðlegar og brosandi og veifar til aðdá-
enda. Almenningur vonast tii að heílsa
'lasako sé að batna. Talsmaður hallar-
'nnar segir næstu daga afar mikilvæga
varðandi heilsu prinsessunnar. Hún
hefur haldið sig innan hallardyr-
anna síðustu mánuði og hefur
tekið þátt í neinum konung-
legum skyldum.
Konungleat þrúá-
kaup i Pyskaiandi
Meira en 500 gestir fögnuðu með
Elizabeth prinsessu frá Bavaria
þegar hún gekk að eiga viðskipta-
jöfurinn Daniel Terberger í Þýska-
landi um helgina. Athöfnin var
haldin í mikilli rigningu en allt hefð-
arlið Evrópu mætti til að fylgjast
með. Prinsessan er næstyngsta
dóttir Max prins. Hún kynntist hin-
um 37 ára Terberger fyrir fjórum
árum á kaffihúsi í Vín þar sem hún
var að vinna. Slör prinsessunnar
var yfir 200 ára gamalt en það hefur
gengið á milli kvennanna í ættinni.
Indíana Ása Hreinsdóttir
fylgist með kóngafólkinu á
föstudögum og lætur blátt
streyma með stíl.
indiana(§>dv.is
Skandall í lífvarða-
sveit drottningar
Yfirmaður llfvarðasveitar Margrét-
ar Danadrottningar hefur A
sagt afsér og tveir undir-
menn hans hafa verið
færðir til eftir að ásakanir
um ósættanlega hegðun líf-j
varðanna á vinnutíma
komu upp. Mennirnir
eru sakaðir um að
hafa verið margoft
fullir I vinnunni og
auk þess eru þeir sakaðir
umað hafa áreitt ungar starfs-
stúlkur innan hallarinnar.„Rann-
sókn er hafin á því hvort þessar
ásakanir eru sannar. Efsvo er verð-
ur virkilega að taka til höndum í llf-
varðasveitinni," sagði yfirmaðurinn
áðuren hann sagðiafsér.
Vilhjálmur kyn-
þokkafyllstur -
Vilhjálmur þrins er afar vinsæll
hjá kvenþjóðinni i heimalandi
sinu sem og annars staðar, en
hann var á dögunum kosinn
kynþokkafyllsti maður Bretlands.
Prinsinum varveitturheiðurinn á
Celebrity Awards-hátíðinni um
síðustu helgi.Vil-
hjálmurskaut
mörgum heims-
frægum stjörnum
reffyrir rass en aðrir
sem komust ofarlega
á listann voru leikar-
innJudeLawog
Idol-dómarinn
Simon Cowell.
Batman bað drottning-
una afsökunar
Maðurinn sem klæddi sig upp sem
Batman og klifraði upp á Bucking-
ham höll segist hafa skrifað drottn-
ingunni afsökunarbréf.Jason Hatch,
32 ára, grátbað drottninguna um fyr-
irgefningu á fímm klukkustunda
mótmælum slnum fyrr I mánuðinum.
„Ég bað hana afsökunar á að hafa
notað heimili hennar til að vekja á
mér athygli. Ég myndi ekki kæra mig
um að einhver klifraði upp á mitt
hús og byrjaði að mótmæla. Ég
tagði lifmitt I veöi þvl ég hefði '^g
auðveldlega getað verið skotinn
niðuren ég vildi ná að vekja at-
hygli á baráttumálum mín-
um."
J
Jóakim prins og Alexandra prinsessa reyna að láta skilnaðinn bitna sem minnst á
börnum þeirra. Hjónin mættu saman á fyrsta skóladag Nikolai litla og sóttu hann
saman þegar skóla lauk. Danska ríkistjórnin vill minnka fjárlögin til Jóakims svo
Alexandra geti fengið hærri upphæð á hverju ári.
Alexandra þarf ekki aO
hala neinar peningaí
m*-
Danska ríkistjórnin ætlar að sjá
til þess að Alexandra prinsessa þurfl
ekki að hafa neinar peningaáhyggjur
í framtíðinni. Að öllum líkindum
mun Alexandra fá rúmlega 20 millj-
ónir íslenskra króna á hverju ári eft-
ir að skilnaðurinn við Jóakim prins
hefur gengið í gegn. Forsætisráð-
herrann, Anders Fogh Rasmussen,
mun hitta aðila frá dönsku ríkis-
stjórninni á morgun til að ræða fjár-
mál prinsessunnar. Til greina kemur
að minnka fjárveitinguna sem
Jóakim prins fær á hverju ári svo rík-
ið muni finna minna fyrir greiðslun-
um til Alexöndru. Meirihluti þings-
ins er tilbúinn að borga prinsess-
unni upphæðina enda dugnaður Al-
exöndru altalaður. Prinsessan er
þegar á iaunaskrá hjá danska ríkinu,
en ef tillögurnar ná að ganga í gegn,
mun taxti hennar hækka verulega
við skilnaðinn. Vinstri flokkarnir
hafa þó ekki samþykkt greiðslurnar
en að þeirra mati er Jóakim prins
nógu ríkur til að sjá fyrir fyrrverandi
eiginkonu sinni og börnum þeirra.
Alexandra og Jóakim prins
mættu saman með Nikolai prins,
sem er 5 ára, í skólann í vikunni.
Parið var afar brosmilt og í góðu
skapi og sóttu Nikolai einnig saman
eftir skólann. Greinilegt þykir að
parið ætlar að láta skilnaðinn bitna
sem minnst á bömunum.
Á þriðjudaginn tókst Alexandra á
við daginn sem hún væri blind.
Prinsessan batt fyrir augun
og treysti á blindrahund-
inn Fila sem er í eigu hins
19 ára Peter Bjerregaard
Jorgensen. Með
þessu tók Alexandra
samfélag blindra í
Danmörku á orð-
inu en hún notaði
daginn og heim-
sótti samtökin.
Eftir að skilnaður hjón-
anna hefur gengið í
gegn er talið líkleg-
ast að Alexandra
búi áfram í Dan-
mörku með börn-
in þeirra tvö.
Prinsessan, sem
er frá Hong Kong,
gaf upp breskan
ríkisborgararétt
sinn til að geta
gifst inn í dönsku
konungsfjölskyld- -
una en hún er
gríðalega vinsæl í
Danmörku. .
iísm
Harry prins stóðst hið erfiða inntökupróf hersins með glæsibrag.
Harry gengur í herinn
Harry prins hefur ákveðið að
ganga til liðs við breska herinn á
næsta ári í stað þess að halda
hefðbundinni skólagöngu sinni
áfram. Prinsinn stóðst inntöku-
próf hersins með glæsibrag og
mun innan skamms hefja 44.
vikna námskeið.
„Síðustu dagar hafa verið afar
erfiðir, bæði andlega og líkam-
lega, en þetta hefur verið frábær
reynsla. Ég er stoltur að hafa
komist í gegnum þetta erfiða
próf,“ sagði Harrry eftir fjögurra
daga inntökuprófið. Prinsinn
unga hefur lengi dreymt um að
verða hermaður og eftir að hafa
rætt málið við föður sinn og ráð-
gjafa tók hann ákvörðunina
stuttu eftir tvítugsafmælið sitt.
Talsmaður hallarinnar sagði
Karl föður hans og Vilhjálm bróð-
ur hans afar stolta af Harry. Hann
mun flytja til Sandurst þar sem
yfirmennirnir eru þekktir fyrir að
hræðast hvorki né halda upp á
hefðarfólk.
Þar til hann flyst til Sandurst
mun Harry halda áfram að þjálfa
skólakrakka í rúgbý. Prinsinn
kom börnunum á óvart þegar
hann mætti á æfinu
þeirra en hann ætl
ar að ferðast á
milli skóla og
reyna að kynnast
sem flestum
krökkum.
Jóakim prlns og Alcx-
andra prinsessa Eftir að
skilnaður hjónanna gengur
i gegn eftir sex mánuði er
taliðliklegast að Alexandra
búi áfram i Danmörku með
börnin þeirra tvö. Prinsess-
an, sem er frá Hong Kong,
gaf upp breskan ríkisborg-
ararétt sinn til að geta gifst
inn i dönsku konungsfjöl-
skylduna en hún er griða-
lega vinsæl i Danmörku.
Harry prins Prinsinn
hefur ákveðið að
ganga í herinn. Hon-
um hefur ekki gengið
sem skyldi I skólanum
en stóðst inntökupróf
hersins.
Gamall draumur
Prinsinn sést hér í her-
mannabúningi árið
1993.Harryhefur
lengi dreymt um að
verða hermaður.