Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2004, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2004, Side 19
DV Sport FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2004 1 9 Handknattleikssamband íslands boðaði til blaðamannafundar í gær. Þar greindi Guðmundur Guðmundsson frá því að hann væri hættur að þjálfa landsliðið. Guðmundur steig sjálfur í pontu á fundinum og tjáði blaðamönnum að hann væri hættur. Hann tók það skýrt fram að hann hefði sjálfur haft frumkvæði að því að hætta og því hefði hann ekki verið rekinn. Formaður HSI staðfesti einnig að Guðmundi hefði staðið til boða að þjálfa liðið áfram en hann var með samning fram í maí á næsta ári. „Ég get ekki neitað því að þetta var mjög erfið ákvörðun," sagði Guðmundur við DV Sport eftir fundinn. Hann hafði verið við stjórnvölinn hjá landsliðinu síðan í maí árið 2001 og stýrt liðinu í 97 landsleikjum. „Mér hefur liðið mjög vel í starfi og ég er mjög sáttur við mín störf með landsliðið. Samstarfið við stjórn HSÍ var mjög farsælt. Ég hafði verulega gaman af þessu starfi og er þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til þess að sinna því. Ég er reynslunni ríkari." 4200 æfingar Guðmundur segist vera hættur afskiptum í handknattleik í bili enda teljist honum til að samanlagður tími sem hann hafi eytt í handbolta sem leikmaður og þjálfari spanni þrjú ár. Hann segist hafa stýrt 4200 æfingum á ferlinum og þar af hafi hann mætt fimm sinnum of seint. Einnig hafi hann stýrt um 1800 fundum. Guðmundur hefur ákveðið að skipta um starfsvettvang. Hann mun innan tíðar hefja störf hjá PARX- viðskiptaráðgjöf. Þar verður hann ráðgjafi á sviði starfsmannamála. „Þetta starf er ein ástæðan fyrir „Ég tek skýrt framað ég var ekki beittur neinum þrýstingi til að hætta heldur var mér boðið að halda áfram með liðið. Þetta er alfarið að mínu frumkvæði og mín ákvörðun því að ég hætti sem landsliðsþjálfari. Ég þarf að einbeita mér að þessu starfi á fullu og ég get það ekki sem landsliðsþjálfari því það fór mikill tími í það. Ég vil geta einbeitt mér að mínu starfi," sagði Guðmundur en hann tók ákvörðun um að hætta fyrir nokkrum dögum síðan. Hann segir að þetta sé rétti tíminn til að hætta svo nýr þjálfari hafi nægan tíma til þess að undirbúa liðið fyrir HM í Túnis sem fram fer í byrjun næsta árs. Það er ekki hægt að segja annað en að uppsögn Guðmundar komi nokkuð á óvart enda hefur hann lýst því yfir undan farið að hann ætli sér að þjálfa liðið áfram. „Ég endurmat stöðuna og hugsaði málið lengi. Ég tek skýrt fram að ég var ekki beittur neinum þrýsúngi til að hætta heldur var mér boðið að halda áffam með liðið. Þetta er alfarið að mínu frumkvæði og mín ákvörðun," sagði Guðmundur og bætir við að hann gangi sáttur, þakklátur og stoltur á brott úr starfinu. Nýr maður á næstu vikum Guðmundur Ingvarsson, for- maður HSÍ, þakkaði nafna sínum Guðmundssyni fyrir vel unnin störf sem landsliðsþjálfari á fundinum í gær og sagði það hafa verið ákaflega ánægjulegt að vinna með honum. „Þessi ákvörðun kom okkur svohtið á óvart úl að byrja með enda er hann með samning fram í maí og við héldum að hann vildi kannski fara með liðið til Túnis," sagði Guðmundur. Hans næsta verkefni er að finna nýjan landsliðsþjálfara. Guðmundur segir að stjórn HSÍ sé ekki búin að ræða við neinn en nýr maður verður væntanlega ráðinn á næstu 2 til 3 vikum. henry@dv.is ðndkná H gsssssastssr aasff-'sa- O vextir Við setjum engin skilyrði um hvar þú ert með þín bankaviðskipti Lánin eru verötryggö og bera fasta 4,2% vexti sem eru endurskoðaðir á fimm ára fresti. Hægt er að greiða upp án uppgreiðslugjalds þegar vextir koma til endurskoðunar. Engin hámarksupphæð og er lánstími allt að 40 árum. Krafa er gerð um fyrsta veðrétt íbúðarinnar. Lánshlutfall er allt að 80% á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Hægt er að nota lánin til ibúðarkaupa, til að stokka upp fjármálin eða í eitthvað allt annað. Dæmi um Hólmgeir Hólmgeirsson rekstrarfræöingur er lánafulltrúi á viðskiptasviði Lánstími 4,2% vextir Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta Ragnheiður Þengllsdóttir viðskiptafræðingur er lánafulltrúi á viðjkiptasviði Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur litið inn i Ármúla 13af hringt i síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is 5 ár 25 ár 18.507 5.390 *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.