Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2004, Síða 31
J3V Síðast en ekki síst
FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2004 31 *
Erum við frjáls?
Sögnr og fréttir af óbærilegri fá-
tækt og volæði heilu þjóðanna úti í
heimi taka á okkur flest. Oft eru
þetta þjóðir landa sem eru rik af
bæði fólki og náttúruauðlindum og
virðist í fljótu bragði sem þær ætti
ekki að vanhaga um neitt. En eymd-
in er greinileg og sé skyggnst aðeins
dýpra í ástæðurnar á bak við hana
má iðulega finna einræðisherra eða
stjórnvöld sem beita fyrir sig kúgun
með hervaldi í því skyni að geta nýtt
sér auðævi landsins sér og sínum til
framdráttar á kosmað almúgans.
Þessar þjóðir eru ekki frjálsar. Eigna-
réttur er virtur að vetmgi og sé fólk
svo ólukkulegt að eignast einhver
verðmæti getur það allt eins búist
við því að sú eign verði hrifsuð af því
með valdi og það standi jafnvel verr
en áður. Heilu þorpin hafa verið
jöfhuð við jörðu í Afríku þegar olía
finnst undir þeim og þorpsbúar,
sem hugsanlega erfðu jörðina eftir
margar kynslóðir forfeðra sinna,
mega teljast heppnir ef þeir sleppa
lifandi. Þeir sem verða svo „gæfu-
samir“ þurfa að byrja frá grunni að
byggja sig upp með ekkert í höndun-
Þjóðarviljinn
Hér á landi hryllir okkur við slík-
um sögum en við hrósum happi yfir
því að við skulum þó vera frjáls. Við
eigum okkur sjálf. Brjóti einhver á
okkur höfum við lög sem tryggja rétt
okkar og réttarkerfi sem framfylgir
þeim og sér til þess að tjón okkar sé
bætt. Stjórnvöld landsins, sem setja
lögin, em lýðræðislega kjörin af
meirihluta atkvæða, svo lögin hljóta
á endanum að vera ekkert annað en
vilji þjóðarinnar.
En meirihluti er víðfeðmt hugtak.
Hann getur verið allt frá 100 pró-
senmm niður í 51 prósent. Allt að 49
prósent þjóðarinnar gæm þá þurft
að sætta sig við það að landinu sé
stjórnað á annan hátt en þau hefðu
kosið. Vilji þjóðarinnar er því í mesta
lagi vilji meirihlutans. Aðeins ein-
staklingar geta haft raunverulegan
vilja.
Hulda S. Haraldsdóttir
ritari stjórnar
Frjálshyggjufélagsins,
veltir fyrir sér frelsi og
kúgun.
Kjallari
Við erum ekki kúguð
á sama hátt og verst
settu þjóðirAfríku en
flest lendum við ein-
hvern tíma íþví að
vilji okkar er troðinn
undir hælinn á meiri-
hluta sem við erum
ekki sammála.
Takmörk frelsis
Á landi eins og íslandi þar sem
stjómvöld hafa svo víðtæk völd er
alltaf fjöldi einstaklinga sem brotið
er á með lagasetningum sem þeir
em ósammála. Meirihlutinn kúgar
minnihlutann. Og einstaklingur sem
er á bandi meirihlutans í einu máli
getur lent í minnihluta í öðm. Frelsi
okkar er þannig takmarkað við það
að við séum sammála meirihlutan-
um.
Einstaklingur er aldrei almenni-
lega frjáls nema hann fái sjálfur að
hafa lokaorðið í öllum ákvarðana-
tökum sem varða hann sjálfan. Fái
að vega og meta þá valkosti sem
hann hefúr út frá eigin forsendum
og velja sér sjálfur þá leið sem hann
vLÍl fara. Á meðan aðgerðir hans tak-
marka ekki frelsi annars einstaklings
ætti enginn að hafa vald til að
stoppa hann.
Við íslendingar búum ekki við
slíkt frelsi. Við emm ekki kúguð á
sama hátt og verst settu þjóðir
Afríku en flest lendurn við einhvern
tíma í því að vilji okkar er troðinn
undir hælinn á meirihluta sem við
erum ekki sammála. Við hljótum að
vilja meira. Við hljótum að vilja vera
laus við allar takmarkanir aðrar en
þær sem við setjum okkur sjálf. Að-
eins þannig getum við reynt það til
fulls hvað við emm fær um.
Kúgun meirihlutans
Kúgun meirihlutans hefur verið
líkt við það að reistir séu veggir í
kringum þá hópa samfélagsins sem
skera sig úr hvað ákveðin málefni
varðar. Viðkomandi hópar em skorð-
aðir fastir innan þessara veggja þegar
stjómvöld skerða frelsi þeirra til að-
gerða sem meirihlutinn er ekki sam-
þykkur.
Margir slíkir veggir hafa þegar ver-
ið reistir, t.d. í kringum einstaklinga
sem vilja tjá óvinsælar og öfgafullar
skoðanir sínar, samkynhneigða ein-
staklinga sem vilja gifta sig, fjár-
hættuspilara o.s.frv.
í dag er kominn grunnur að vegg í
kringum eigendur veitingahúsa sem
vilja leyfa reykingar inni á eign sinni
og mun sá veggur líklega rísa hvað úr
hverju. Mörg tökum við þátt í því að
reisa slíka veggi, berjumst jafrivel fyr-
ir því að þeim verði komið upp. En
hvað gerum við ef við vöknum upp
einn daginn við þann vonda draum
að það hafi verið reistir veggir allt í
kringum okkur sjálf?
Hvað segir
mamma
„í upphafi verkfallsins sagði ég
syni mínum að passa það bara
vel að borða almennilegan mat
og fá nægan svefn,“ segir Hall-
dóra Þorvaldsdóttir í Reykholti í
Borgarfirði, móðir Eiríks Jónsson-
ar, formanns Kennarasambands-
ins. „Ég vona að hann hafi farið
að ráðum mínum og efast reynd-
ar ekkert um það. Eiríkur hefiir
alltaf verið þægur. Annars er ég
farin að venjast þessum atgangi
sem fylgir verkföllum. Kynntist
því snemma þar sem bróðir
minn, Guðlaugur Þorvaldsson,
var lengi ríkissáttasemjari. Og
hvað kjör kennara varðar þá veit
ég meira en margur því bæði eig-
inmaður minn og tengdafaðir
voru kennarar. Kjör kennara voru
ekki góð þá frekar en nú og ekki
hægt að lifa á þeim einum. Það
bjargaði okkur að við vorum með
búskap samhliða kennslunni. Nú
þurfa báðir foreldrar að vinna úti
og í því liggur stór hluti vandans,"
segir Halldór Þorvaldsdóttir og
vonar að allir komir heilir frá
verkfalli kennara sem enn sér
ekki fyrir endann á.
Mikið hefur mætt á Eiriki Jónssyni, for-
manni Kennarasambandsins, sem
stendur núl ströngu I verkfalli grunn-
skólakennara. I Reykholti i Borgarfiðri
situr móðir hans og fylgist með.
Björgvinvar
kjallarahöfundur
Björgvin er höfúndurinn. í
blaðinu í gær
var kjallara-
grein Björg-
vins G. Sig-
urðssonar,
alþingis-
manns Sam-
fylkingar,
sögð eftir
Geir Ágústs-
son. Þetta er
alrangt og er beðist velvirðingar
á mistökunum.
• Fréttin um að Jón Steinar
Gunnlaugsson hefði verið skipað-
ur dómari við
hæstarétt flaug út á
miklum hraða Með-
al þeirra sem ýmist
glöddust eða ekki
var hópur ferða-
langa á Sikiley.
Herma heimildir
þaðan að ferðafólkið hafi rætt um
að rétt væri að þau myndu kynna
sér réttarfar á eyjunni með það
fyrir augum að siðbæta íslensk
stjórnmál...
• Senn dregur að einvígi aldarinn-
ar í poppheiminum. í nóvember
verður útgáfuhátíð á Draugabarn-
um þar sem hljómsveitin Gögl
kynnir nýja plötu sína, Frá Valhöll
til himnaríkis. Gögl
hefur meðal annars
innanborðs popp-
óperusöngvarann
Jón Rósmann Mýr-
dal og héraðslækn-
inn og gítarleikar-
ann LýðÁmason.
Jafnframt munu nafnarnir Ólafur
Helgi Kjartansson sýslumaður og
Rokklandskonungurinn Ólafur
Páll Gunnarsson fá
úr því skorið hvor
er fróðari um popp.
Að sögn mun tals-
verðs kvíða gæta
hjá báðum....
Skandall
íslandssögunnar
Einar bringdi:
„Það er skandall íslandssögunnar
að Jón Steinar skuli vera skipaður í
hæstarétt íslands. Það er stutt í að
hundur Davíðs verði skipaður þing-
Lesendur
maður að hætti rómversku keisar-
anna. Enn einu sinni treystir þessi
ríkisstjórn á að skammtímaminni ís-
lendinga sé brenglað.
í hádeginu - 1.290 kr
Gildir allan oktdber - mánudaga til fimmtudaga