Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1911, Side 35
Tvö Austurálíu-mikilmenni.
Fram undir okkar daga heflr »mannkynssagan«
svo nefnda nærri pví eingöngu verið helguð Norður-
álfuþjóðunum einum. Að vísu byrjar hún fyrir aust-
an landamæri Norðurálfunnar, en er pá í hálfgerðu
fornaldar-rökkri. Síðan bregður Austurálfuþjóðunum
fyrir við og við, og þá einkum þeim, sem næst búa
Norðurálfunni. Hinar fjarlægari, sem þó eru fullur
helmingur mannkynsins, koma lítið eða ekkert við
söguna fyr en á tveim síðustu öldunum. Nú er loks
svo komið, að mannkynssagan nær til alls megin-
Þorra mannkynsins, og austurþjóðir Austurálfunnar,
Sem eru fjölmennustu þjóðir jarðarinnar, eiga þar
mikla og sögulega kafla.
í Almanaki Fjóðvinafélagsins í fyrra var með fám
orðum sagt frá einu mikilmenni austurþjóðanna,
T°go flotaforingja, og atburðum þeim, sem hann var
Vlð riðinn. Nú skal leitast við að koma lesendum
Alinanaksins í kynni við tvo menn aðra, sem báru á
sinni tíð höfuð og herðar yfir gulu miljóna-mergð-
lrnar þar austur frá. Pessir menn eru þeir Li-Hung-
f schang, hinn heimsfrægi stjórnmálamaður Kínverja,
°§ Ito fursti, landstjóri Japansmanna á Kóreu, sá er
•nyrtur var seint á árinu sem leið.
Li-I-Iung--Tschaiig
er fæddur í höfuðstað Kínaveldis, Peking. Faðirhans
'ar merkur vísindamaður, en fátækur. Pó reyndi
lann að afla syni sínum hins bezta uppeldis, sem
18egt var að fá, eftir kínverskum mælikvarða. Dreng-
nrinn reyndist snemma frábær að gáfum og hneigður
* námsins, og tók hvert eftir annað af hinum ram-
°knu lærdómsprófum Kínverja með liinu mesta lofi.
*ið 1847 lauk liann embættisprófi, þá 24 ára gamall
(25) a