Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1911, Side 90
Um myndirnar.
Um tvœr fyrstu myndirnar eru skýringar í sefi'
söguágripunum hér að framan.
Priðja myndin er af greifa Zeppelin og loftfari
hans, pví sem hann fór með yfir Bodenvatnið og
fékk mikið lof fyrir. Litla mj'ndin niður í horninu
er til pess að sýna í gleggri mynd skipið eða körf-
una, sem hangir neðan í loftbelgnum, og er verustað-
ur loftfara peirra, sem stýra ferðinni.
Fjörða myndin er flugvél Vilburs Wright, sem á
er minst á bls. 63. Hún er nokkuð frábrugðin öðr-
um flugvélum að pví leyti, að hjól eru engin undir
henni, heldur eins konar sleðameiðar.
A fimtu myndinni eru tvær flugvélar ólíkar. Pá,
sem ofar stendur, hefir danskur maður, Ellehammer,
fundið upp. Hún hefir prjá burðarfleti, sem likj-
ast vængjum í sjón. Neðri myndin er af flugvél Far-
manns, sem er frægur loftfari og vann verðiaun 1908.
Sjötta myndin er af EifFelturninum, sem bygður
var í París til heimssýningarinnar, sem haldin var
par árið 1889. Turninn er allur úr járni, 300 metra
hár, og talinn að vera eitt af mestu meistaraverkum
heimsins. Myndín sýnir einnig flugvél greifa Lam-
herts, pegar hann 1909 flaug í hring hátt fyrir ofan
Eiffelturninn.
Sjöunda myndin sýnir, hve hátt sumar flugvélarn-
ar liafa farið og hve breytilegt er lagið á flugvélun-
um, eftir pví sem hver flugvélameistarinn hefir hugsað
sér, að bezt mundi reynast. Ráðhúsið í Khöfn er
liæsta hús par, 112 metra hátt, og er pað á mynd-
inni til glöggvunar sem mælikvarði. — Neðst er Paul-
ham með tvær flugvélar, og komst hann ekki hærra
en 100 og 117 metra. Par næst er Farman á 142
metra hæð. Latham 167 metra. Rollgeir 217 metra,
og sá sem hæst komst af peim, sem á myndinni eru,
var Orville Wright með 400 metra. En ekki má
(80)