Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1911, Side 41
sem ótiginbornir menn geta skipað), og rétt á eftir
var hann skipaður varakonungur yfir íylkinu Tshili,
þar sem höfuðborgin Peking liggur, og jafnframt aðal-
forstöðumaður allrar verzlunar í norðurfylkjum rík-
isins. En hamingjan er liverful í Kína eins og ann-
arstaðar, og þess var ekki langt að bíða, að Li-Hung-
Tschang félli í ónáð hjá stjórninni.
fað atvikaðist þannig, að ait af óvingaðist með
Kínverjum og Japansmönnum út af Kóreu og fleiri á-
greiningsmálum þar austur frá, og loks dró til fulls
fjandskapar. Li-Hung-Tschang hafði veitt þvi eftir-
tekt, hve hröðum skrefum Japönum fór fram og hve
mjög þeir bættu herbúnað sinn og skipaflota. Hann
kvað Kína algerlega ófært til að mæta Japan í ófriði,
og væri þvi hyggilegra fyrir Kína að láta heldur
undan í tíma. Ráðum hans var ekki sint og óvinir
hans notuðu tækifærið til að rægja h'ann við keisara-
ekkjuna, sem enn réð mestu, og bola honum frá
stjórninni. Petta tókst öllum vonum fremur og Li-
Hung-Tschang dró sig í hlé og settist að embættum
sínum. En ófriðurinn byrjaði milli Kínverja og
Japana 1894.
Það var þó ekki lengi, sem Li-Hung-Tschang var
í ónáð. Kínverjar biðu hvern ósigurinn eftir annan
fyrir Japönum. Kínastjórn reyndi að vanda að dylja
ófarirnar með lygasögum og vöflum og halda bæði
keisaranum og öllum þorra almennings óvitandi um
ástandið, eins og það var. En þegar varnir Kínverja
voru þrotnar að mestu, Japanar búnir að gerejrða
flota þeirra, hafnir og strandvarnir, taka af þeim lönd,
og við sjálft lá að þeir settust um höfuðborg þeirra,
Peking, — þá sneri keisarinn sér til Li-Hung-Tschangs,
og bað hann í öllum bænum að fara á fund Japans-
keisara og semja um frið.
Li-Hung-Tschang brá þegar við og fór yfir til
Japans i marz 1895. Sátlastefnan var ákveðin í borg-
inni Shimonoseki í Japan, en þegar þangað var komið,
(31)