Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1911, Side 47
kvöðull þess, að lögð var hin fyrsta járnbraut í Japan.
Síðan gekk hann í pjónustu stjórnmálamannsins
Irakuras, sem pá var sendiherra Japana, og ferðaðist
með honum hingað til Norðurálfunnar, og til ýmsra
borga í álfunni, og síðan til Ameríku. Eftir að Ito
kom heim til Japans úr peirri ferð, tók hann að gefa
sig meira en áður við stjórnmálum og lét mikið til
sín taka. Barðist hann mjög fyrir pví, að komá á
Þingbundinni stjórn i Japan. 1878 varð hann innan-
ríkisráðherra og 1882 tókst hann ferð á hendur til
Berlínar í pví skyni, að kynna sér fyrirkomulag þing-
bundinnar konungsstjórnar. 1885 var hann hafinn til
aðalstignar í landi sínu og 1886—88 var hann forsætis-
ráðherra. 1890 varð hann formaður efri málstofunn-
ar í japanska pinginu, 1891 forseti ríkisráðsins og 1892
—96 var hann aftur forsætisráðherra. F*á tókst lion-
um að fá verzlunarsamningana milli Japans og Eng-
lands endurskoðaða, og peim breytt á pann hátt, að
Japan hafði mikinn hagnað af. — Hann tók pátt í ó-
friði Japana við Kínverja 1894—95, gerðist pá yfir-
maður i flotanum og vann sér hinn mesta orðstír
fyrir dugnað og ráðsnild. Hann eyðilagði 1894 flutn-
ingaskipaflota fyrir Kínverjum fram undan mynni
Jalu-fljótsins, og árið eftir tók hann herskipahöfnina
Wei-hai-wei og pað af herskipum Kínverja, sem þar
var og loks tók hann þátt í friðarsamningunum í
Shimonoseki, sem fulltrúi Japansmanna, og átti par
að etja við annan eins stjórnmálajötunn og Li-Hung-
Tschang. Þegar stórveldin neyddu Japana til pess
að skila Kínverjum aftur Liaotung-skagannm ásamt
Port Arthur, kom Ito svo ár sinni fyrir borð, að Japan
íékk að halda eyjunni Formosa, en það er stór eyja
sunnan við Kína, frjósöm mjög og auðug af málm-
um, og er auðgert að skáka Kínaveldi þaðan á ófrið-
artímum. í þakklætisskyni fyrir framltomu sína i
þessum málum, var Ito gerður að marlds, sem er
hærri aðalstign en greifatignin, sem hann hafði áður.
(37)