Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1933, Page 41
lands. Ýmsir hinna ráðandi manna, sem héldu sig
eiga meiri ítök í pjóðinni en bóndasonurinn frá Ge-
orgtu, neyttu allra bragða til þess að bregða fæti fyrir
hann, en hann lét hart mæta hörðu og svifti þá em-
bætti tafarlaust og sendi þá á afvikinn stað. Mesta
athygli vöktu viðskipti hans við Trotsky, hið mikla
átrúnaðargoð þjóðarinnar og einn hinn mikilhæfasta
frömuð saraeignarstefnunnar að Lenin liðnum.
Peim viðskiptum lauk, sem kunnugt er, með full-
komnum ósigri Trotskys. Stalin hefir staðizt öll þau
miklu áföll, sem að honum hafa steðjað, og hann
heflr sýnt það, að nafnið, sem Lenin gaf honum,
var ekki gefið út i bláinn. Hann er sterkasti maður
Rússlands.
Og hann er óneitanlega meiri veruleikamaður en
Lenin var. Pað hefir fallið honum í skaut, fremur en
Lenin, að koma í framkvæmd fræðikenningum, sem
aldrei hafa verið framkvæmdar áður. Fimm ára áœtl-
unin, sem allur heimurinn þekkir, er komin undir
framkvæmdadug þessa manns og er að miklu hans
Verk, Að vísu eru dómarnir um framkvæmd þessarar
áætlanar ærið misjafnir, að þvi er erlend blöð segia,
en þau hafa reynzt að segja svo margt, sem ekki
hefir verið sannleikanum samkvæmt, þegar Rússland
átti i hlut. Svo mikið er sannað af ummælum óhlut-
drægra rithöfunda, sem hafa átt kost á þvi að kynn-
ast hinu nýja Rússlandi af eiginsjón, að samkvæmt
áætluninni hafa verið unnin stórvirki, sem engan
dreymdi um undir keisarastjórninni. Að dómi flestra
þessara manna hefir áætlunin verið haldin í mörgum
mikilvægum atriðum, en i öðrum hefir ekki verið
unnt að fylgja henni fram. En að öllu samantöldu
tákna framkvæmdir þær, sem gerðar hafa verið sam-
kvæmt áætluninni, eina stórfelldustu breytinguna, sem
orðið- hefir á athafnalífi Rússa í margar aldir. En
Það má taka fram, að áætlunin er framkvæmd í sam-
ræmi við stóriðjukenningar Ameríkumanna og að
(37)