Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1933, Qupperneq 82
2. Það þarf að hafa gott og heppilegt útsæði af
þessu afbrigði. Útsæðið má ekki vera of smátt. Bezt
að velja útsæðið á haustin, undan þeim »grösum«,
sem ekki bera of margar og smáar, heldur sem jafn-
stærstar kartöflur.
3. Útsæðið þarf að vera í góðri geymslu yflr vet-
urinn, sem er nægilega kæld og laus við raka.
4. Spirun útsæðis. Taka þarf útsæðið úr vetrar-
geymslu 3—4 vikum, áður en sáð er í garðinn. Ef
geymslan hefir verið of hlý og útsæðið spírað þar,
þá þarf að brjóta spírurnar af, þvi að þær eru ætíð
mjög veikgerðar. Siðan skal láta útsæðið spíra í
grunnum smákössum, á hlýjum og björtum stað,
helzt ekki hafa meira en 2—3 Iög í hverjum kassa.
Ef þannig er útbúið, verða spírurnar stuttar, grænar
og gildar og mjög þróttmiklar. Pær eiga helzt ekki
að vera lengri en 2—5 cm. Menn athugi, að spírun
útsæðis er eitt mikilvægasta atriðið i kartöflurækt á
íslandi. Með þvi lengja menn ræktunartíma kartöflu-
jurtarinnar um spírunartímann 3—5 vikur.
5. Garðstæðið. Pað þarf að liggja vel við sól og
jarðvegur þarf að vera laus og helzt sendinn. Par verða
bragðgæði kartaflnanna bezt. Annars geta kartöflur
sprottið í alls konar jarðvegi, ef hann er vel unninn.
6. Vinnsla jarðvegarins. Smágarða er sjálfsagt að
stinga upp, En ef garðar eru í stærra lagi og vel
lagaðir til plægingar, þá er vitaskuld fijótara og ó-
dýrara að plægja þá. En plægingamaðurinn þarf að
kunna verk sitt vel og vanda sig. Mikið riður á, að
jarðvegur sé unninn, þegar moldin er »mátuleg«,
hvorki of blaut né of þurr, því að þá molnar hún
bezt sundur. En stinga þarf upp í hornum og til
endanna, þar sem plógurinn kemst ekki að. Raka
þarf yfirborðið með járnhrífu jafnóðum og stungið
er eða plægt. Varðar miklu, að vandað sé til jarð-
vinnslunnar í kartöflugörðum, því að kartöflujurtin
þarf lausa, vel unna mold.
(78)