Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1933, Síða 83
7. Áburður. Hann þarf að vera nægur, svo að kar-
taflan llði engan skort. Sveltirækt borgar sig aldrei.
Hrossatað og sauða er góður áburður fyrir kartöflur
og kúamykja, ef mold er sendin. Tilbúinn áburður
er ágætur, en hér er ekki rúm til að gera rækilega
grein fyrir honum. »Nitrofoska« er alhliða áburður
og einkar-hentugur i matjurtagarða. Ef hann er not-
aður eingöngu, er rétt að bera 5—7 kg. í 100 □ m.
í honum er köfnunarefni, fosforsýra og kalí. Pað er
margsannað, að þar sem kalí vantar i jörð, skemm-
ast jurtir fyrr af völdum frosta en þar sem nóg er
af því. Petta gildir einnig um túngresin. Menn athugi,
að vinnan við að nota tilbúinn áburð er sama sem
engin, meðan ekki er um stórsvæði að ræða. Nitro-
foska er borin á, rétt áður en garðurinn er stunginn
upp eða plægður, dreift sem allra jafnast yfir. Mæla
skal stærð garðsins og vega áburðarskammtinn eftir
þvf. Nitrofoska má lika bera á, eftir að stungið hefir
verið upp og sett niður, því að hún er auðleystur
áburður, en hitt er vissara, að fara að, eins og áður
er sagt, einkum i þurkatíð. í garða borgar sig bezt
að bera tilbúinn áburð, því áð garðávextirnir eru
verðmætasti jarðargróðurinn. Bezt er þó oftast að
nota hvort tveggja, bæði húsdýraáburð og tilbúinn.
En ef garður er í góðri rækt, er hægt að komast af
með tibúinn áburð eingöngu, í langan tíma, jafnvel
áratugi.
8. Niðursetning. Ekki er vert að setja niður, fyrr
en klaki er úr jörðu og mold farin að hlýna. En sé
útsæði fullspírað er rétt að taka það úr hlýjunni og
setja það á kaldan stað, þangað til mold er orðin
nógu hlý. Hæfilegt er að setja vel spírað útsæði svo
djúpt, að 5—8 cm. af mold séu ofan á kartöflunni.
9. Vaxtarrými þarf að vera hæfilegt, hvorki of lítið
né óþarflega mikið, svo að garðurinn notist sem bezt.
1 smágörðum (og víðast hvar er hér að eins um
smágarða að ræða) er hæfilegt að setja i raðir og hafa
(79)