Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1933, Page 85

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1933, Page 85
muna að þær eru lifandi vera, en ekki dauður hlut- ur; fara með þær eins og þær væru egg, en ekki grjót, segir einn erlendur »kartöflufræðingur«. Ef moldin er þurr, þá er ekki brýn nauðsyn að þurka þær, en ef hún er blaut, er það nauðsynlegt. Útsæðið þarf helzt að sólþurrka, jafnvel heldur i tvo daga en einn. Síðan eru kartöflurnar látnar í vetrargeymslu, sem þarf að vera köld og rakalaus, og enn fremur þarf loftrás að vera sæmileg, því að kartaflan þarf að anda eins og aðrar lifandi jurtir. Geymslan þarf að vera hreinleg, því að annars geta skaðlegir svepp- ar lifað þar ár frá ári. Eins og menn sjá, þeir, sem lesa þessar línur, þá er margs að gæta, ef menn vilja fá góða uppskeru. En ef unnið er með skilningi á lífsskilyrðum jurtar- innar, þá er hin islenzka jörð sannarlega fær um að gefa góða uppskeru. Vandvirkni fyrst og vandvirkni siðast þarf sá maður að viðhafa, sem við kartöflu- ræktun fæst, en þá getur hún orðið bæði arðsöm og ánægjuleg. Engin matjurt, sem nú er ræktuð hér, kemst i hálfkvisti við kartöfluna að nytsemi. Það er ekki einungis víst, að hægt er að rækta hér á landi allar þær kartöflur, sem þjóðin notar nú, heidur er það jafnvíst, að kartöflunotkun mætti og ætti stórum að auka, frá þvi sem nú er, þvi að kartöflur eru eitt það hollasta, sem menn geta lagt sér til munns. Auk þess að neyta þeirra, eins og nú er almennast, má nota þær til margs konar drýginda, í brauð og blóð- mör, súpur, kökur o. fl. o. fl., jafnvel fínasta brenni- vin má búa til úr kartöfluml Bezt mun þó vist að láta bruggunina mæta afgangi. Spara mætti mikil kaup á kornvöru, ef kartöflu- notkun heimilanna væri eins mikil og vera ætti. Kart- öflurnar þyrftu íslendingar ekki að sækja til annara landa, því að þær gætu vaxið við dyrnar á flestum bæjum á landinu. Vel hirtir kartöflugarðar er sönn (81) 6
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.