Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2004, Blaðsíða 19
X>v Sport
ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 2004 19
Juventus og
Lyon örugg
áfram
Fjöldi athyglisveiðra leikja
fer ffain í kvöld þegar átta ieikir
fara ffant í meistaradeild Evt-
ópu. Aðeins tvö af þeim félög-
tun sem spila hafa tryggt sér
farseðilinn upp úr riðiakeppn-
inni hingað til en hjá nokkrum
er aðeins formsatriði að fylgja
þeim eftir. Þannig er Man-
chester United svo gott sem
orðið öruggt en liðið mætir
Lvon á Old Trafford. Lyon hef-
ur komið einna mest á óvart í
vetur og er efst í D riðli með tfu
stig og taplausir. Lið United er
þó á siglingu og völtuðu yfir
Spörtu Prag í siðasta leik liðs-
ins í riðlinum. Stjömur og
áhangendur Real Madrid em
enn í sámm eftir útreið af háifú
Barcelona tmt helgina og það
gæm leikmenn Bayem
Leverkusen nýtt sér til hins
itrasta í öðrunt stórieik í kvöld.
Bæði lið hafa sjö stig ásamt
Dyiamo Kiev sem fær Roma í
heimsókn til Úkraínu. Góðar
likur em á að Kænugarðsmenu
sigri Roma enda ítalimir án
tveggja sinna bestu rnartna,
Totti og Montella. og því pressa
á bæöi Leverkusen og Real að
taka stigin þrjú til að halda í við
liö Dynamo. Mikill slagur er í A
riöli þar sein Liverpool og
Ohmpiakos em með sjö stig og
Mónakó með sex. Mónakó tek-
ur einmitt á móti Englending-
umun í kvöld meðan Grikkimir
bjóða Deportivo velkomna.
Bayern getiu tr>rggt sér áfram-
haldandi þátttöku með sigri á
Maccabi Tel Aviv en Juventus
hefur fyrir löngu uimið riðiiinn
og getur með sigri á heimavelli
gegn Ajax gert út um allar vonir
Holiendinganna.
Reims og Keflavík eigast við í Frakklandi í kvöld í bikarkeppni Evrópu í körfu-
knattleik. Keflvíkingar burstuðu fyrri leikinn og geta komist í góða stöðu með sigri
í leiknum í kvöld. Keflavíkurliðið tapaði tveimur leikjum í röð í síðustu viku og
þarf því að taka sig taki til að ná sigri i kvöld.
Nick Bradford Var ekki kominn til Keflavlkurþegar liðið mætti Reims í fyrsta leiknum í
Keflavík en verður væntanlega í lykilhlutverki i leiknum í kvöld. Mynd/Vikurfréttir
QL-550
Fljótvirkasti merkimiðaprentarinn
ó markaðnum
Rafport
Nýbýlavegi 14, Kópavogi.
Sími 554 4443. Fax 554 4102.
rafport@rafport.is
www.rafport.is
Á bréf, pakka, bréfabindi o.fl.
Á CD/DVD diska, miðar úr plasti
Prentar miða úr Word-, Excel- og
Outlook
Prentar merkiborða bæði ó pappir
og plast, stærðir eftir vali, allt að eins
meters langa
Allt að 62 mm breidd
50 miðar ú mínútu
USB tenging
Windows hugbúnaður
Sjúlfvirk klipping
Staðlaðir póstfangamiðar
Umboðsmenn um Innd allt
Erum fulvssr um
/
„Við verðum bara að
tryggja að leikmenn
Reims nái ekki að rífa
sig uppgegn okkur."
Franska liðið Reims á harma að hefna gegn KefMkingum í kvöld
þegar liðin mætast í Frakklandi í bikarkeppni Evrðpu í körfu-
knattleik. Lið Reims reið ekki feitum hesti frá fyrri viðureign lið-
anna sem fram fór í Sláturhúsinu í Keflavík í byrjun þessa mán-
aðar.
Þar vann Keflavík stórsigur, 93-
74, og sýndi og sannaði að Reims
myndi ekki auðveldlega sækja sigur
á heimavelli Keflvfldnga.
Brást þjálfari Reims-manna
ókvæða við og lét sína menn gera
púlæfingar í klukkustund eftir leik-
inn til lærdóms um það að aldrei
skyldu menn að vanmeta andstæð-
ing sinn, eins og sýndi sig í viðureign
liðanna.
„Hann var alveg brjálaður eftir
leikinn og fullyrti að við hefðum e'kki
komið honum neitt á óvart heldur
frekar hans eigin leikmenn," sagði
Falur Harðarson, aðstoðarþjálfari
Keflavflcurliðsins, í samtali við DV.
Hugarfarið er gott
Falur sagði sína menn hafa fullan
hug á því að leggja Reims að velli á
ný. „Við erum á ftfllu skriði og hug-
arfarið er gott fyrir leikinn. Við höf-
um fulla trú á því að við getum unn-
ið þetta lið aftur og ætium okkur að
gera það og bæta stöðu okkar í riðl-
inum,“ sagði Falur.
Keflvfldngar voru mjög óheppnir
gegn danska liðinu Bakken Bears í
síðustu viku þar sem mjög umdeild-
ur dómur féll undir lokin, liðinu í
óhag. „Hann var því miður túlkaður
á þennan hátt og ekkert við því að
gera. En að mínu mati er leikmaður
sem er á leið út af velli, ekki með
vald á boltanum og því áttu þeir
aldrei að fá nýja skotklukku. En það
var að duga eða drepast fyrir Bears í
þessum leik því liðið þurfti nauð-
synlega á sigri að halda. Bears var að
klára útileikjarispuna sína í þessum
leik á meðan að við vorum að klára
síðasta heimaleikinn. Bæði lið
þurftu sigur og þetta fór svona."
Með hugann við leikinn í kvöld
Keflavíkurliðið virtist andlaust í
meira lagi í undanúrslitum Hópbfl-
arbikarsins þar sem liðið atti kappi
við Njarðvfldnga og tapaði, 84-78.
„Það var ekkert sérstaklega mikil
stemning fyrir undanúrslitaleikinn í
hópbflabikarnum og greinilegt að
okkar menn voru með hugann við
leikinn í kvöld.“
Liðið varð fyrir óhappi í leiknum
gegn Njarðvík þegar Jón Norðdal
Hafsteinsson meiddist illa þegar
hann lenti í samstuði við einn leik-
manna Njarðvíkurliðsins. Að sögn
Fals var ekki komið á hreint í gærdag
hvort Jón gæti leikið með en hann
gat ekki verið með á æfingu í gær.
„Hann er ennþá aumur og það kem-
ur í raun ekki í ljós fyrr en í kvöld
hvort hann verður með.“
Reims-liðinu hefur gengið illa í
vetur í frönsku deildinni og hefur
ekki staðið undir væntingum í bikar-
keppni Evrópu. „Þeir eru búnir að
spila níu leiki og hafa aðeins unnið
tvo. Við verðum bara að tryggja að
leikmenn Reims nái ekki að rífa sig
upp gegn okkur og ganga á lagið
þegar gengur illa hjá þeim,“ sagði
Falur Harðarson.
sXe@dv.is