Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2004, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2004, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 2004 Fréttir DV Héraðsdómur Reykjavíkur þingfesti í gær mál gegn Hildi Árdísi Sigurðardóttur sem ákærð er fyrir að hafa banað dóttur sinni í sumar. Ríkissaksóknari krefst þess að Hildi verði refsað eða hún verði dæmd til öryggisvistar á Sogni. Guðrún Sesselja Arnardóttir, lögmaður Hildar, segir hana veika konu en ekki glæpamann. Fasteignasali dæmdur Finnbogi Kristjánsson, fyrrum eigandi Fasteigna- sölunnar Fróns, var í gær dæmdur í 15 mánaða fang- elsi fyrir umboðssvik og fjárdrátt. Finnbogi var upp- runalega ákærður fyrir að svíkja um 27 milljónir króna af viðskiptavinum sínum. Hann var búinn að skila stærstum hluta ráns- fengsins til baka og eru 12 mánuðir af þeim 15 sem hann fékk í dóm skilorðs- bundnir. Finnbogi hefur áður lýst því yfir að hann hefði gert mistök en leiðrétt það sem hann gat. Hættur í braskinu „Ég bendi þér bara á lögfræðinginn minn. Einar Gaut Stein- gríms- son,‘‘ segir Finnbogi Kristjáns- son fasteignamiðlari sem var dæmdur í gær í fimmtán mánaða fang- elsi fyrir fasteignasvik. Spurður um viðbrögð við dómnum sagði Finn- bogi að Einar vissi allt um það. „Hann veit ná- kvæmlega hvernig mér leið og hvað ég ætla að gera næst. Nei, hann er ekki sálfræðingurinn minn. Bara lögffæðing- ur.“ Finnbogi segist ekki standa í fasteignabraski f dag. Hann sé í Háskól- anum. Hálsbólga á læknavakt Á Læknavaktina á Smáratorgi komu alls 968 sjúklingar á móttöku og farið var í 101 vitjun í heimahús síðustu viku. Yfir 300 manns komu á lækna- vaktina með hálsbólgu, 71 með eyrnarbólgu og 16 með lungnabólgu. Tuttugu manns komu með bráða- niðurgang sem talinn er stafa af sýkingu. Hildur Árdfs Sigurðardóttir Réttarhöldin yfir móðurinni sem reyndi að drepa börnin sin hófustígær. banað dottur snni „Hildur er veik kona en ekki glæpamaður." í gærmorgun var Hildur Árdís Sigurðardóttir leidd í réttarsal. Hildur er ákærð fyrir að hafa banað dóttur sinni með eldhúshnífi og reynt að drepa son sinn eitt örlagaríkt kvöld á heimili þeirra í Vesturbænum í sumar sem leið. Ríkissaksóknari krefst þess að Hildi verði refsað eða hún dæmd í öryggisgæslu. Við réttarhöldin í gær sagðist Hildur ekki muna eftir kvöldinu þegar dóttir hennar dó. Ósakhæf Geðlæknir hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að Hildur sé ósak- hæf. Það þýðir að hún eigi að verða vistuð á tilheyrandi stofnun en ekki í fangelsi. Að sögn Kolbrúnar Sævars- dóttur hjá ríkissaksóknara er samt krafist refsingar - það sé dómarans að ákveða hvort Hildur sé ósakhæf eður ei. Morðið á Hagamelnum vakti gríðarlegan óhug í sumar. Lögreglan var kölluð að íbúðinni, þar sem Hildur bjó ásamt börnum sínum tveimur, að morgni sunnudagsins 31. maí. í rúmi lá dótúr Hildar láún. Sjálf var Hildur mikið særð. Talið var að hún hefði sjálf valdið stungusár- unum á sér. Reynt að drepa sig eftir að hafa drepið dóttur sína. Aðkoman á Hagamelnum var nöturleg. Lögreglan gat rakið blóð- slóðina eftir son Hildar að nærliggj- andi blokk. Þar bjó vinur drengsins sem kom honum til hjálpar. Það varð trúlega drengnum til lífs að hann flúði og gat látið vita hvað hafði gerst. Minningarborð um dóttur Hildar Morðið á Hagametnum vakti óhug þjóðarinnar. Ekki glæpamaður Hildur var handtekin og flutt á sjúkrahús. Þar gættu fangaverðir og lögreglumenn hennar. Því næst var hún flutt á Sogn þar sem hún hefur dvalið síðan. Fyrir morðið hafði Hildur átt við geðræna erfiðleika að stríða. Kenn- arar í skólum barna hennar höfðu áhyggjur af krökkunum. Nágrannar Hildar báru henni samt góða sög- una. Lýstu henni sem einrænni konu sem gekk við staf. Guðrún Sesselja Arnardóttir, lögfræðingur Hildar, hélt á stafnum þegar Hildur gekk út úr héraðsdómi í gærmorgun. Hún sagði við blaða- menn: „Hildur er veik kona en ekki glæpamaður." simon@dv.is Endimörk sælkeranna Það er frábært að vera íslending- ur. Þá borðar maður íslenskan mat í öll mál. Það er til alls kyns matur sem gott er að láta ofan í maga. TQ dæmis ket og kál. Þessu er hægt að skola niður með mjólk sem hægt er að kreista úr íslensku kúnni á meðan hún lítur f hina áttina. Máttur íslensks landbúnaðar er svo mikill að útlendingar sem hing- að koma roðna bara eins og skóla- stúlkur við fyrstu bragðprufu. Og svitna reyndar eins og galeiðuþræl- ar þegar reikningurinn birtist en það er önnur saga. Svarthöfði veit að það borgar sig aldrei að hengja sig of fast í smáatriðin. En þótt íslensk matvæli séu í hávegum höfð og njóti velvildar í hjörtum landsmanna sem frá blautu barnsbeini er fullkunnugt um yfirburði þeirra er aldrei nóg- samlega hnykkt á dásemdunum. Þetta veit æðsti prestur hinna heilögu áa og kúa. Hann er bókstaf- lega óþreytandi við að boða fagn- aðarerindið. Einstakt tilefni gafst um síðustu Hvernig hefur þú það? „Ég hefþað ágætt, enda tel ég mig hafa fengið já-svar frá Danmörku um tvær uppfinninganna minna," segir Jónas Bjarki Gunnarsson, uppfínningamaður með geðraskanir.„Ég eriteyfí frá Vogi. Þaðan hringdi ég til Danmerkur þar sem ég var að fá staðfest að stóllinn minn sem breytist I ferða- tösku hafí verið samþykktur. Og líka hillusamstæða sem breytist ímillivegg. Ég losna út eftir þrjár vik- ur og fæ þá bítprófíð aftur. Hefþegar keypt mér ameriskan kagga, ég er með dellu fyrir þeim." helgi til að vegsama íslenska eldhús- ið einmitt þar sem það rís hæst. SS- pylsan var mætt í Kringluna. Tæpir tólf metrar í brauði, með sinnepi, tómatsósu, remúlaði, steiktum og hráum lauk: Kóróna íslensks mat- vælaiðnaðar. Á hliðarlínunni biðu fulltrúar Heimsmetabókar Guinness til að staðfesta það sem við hin öll vissum fyrir; að SS-pylsan er mest í heimi. Og auðvitað brást það ekki að trúboði íslenska landbúnaðar- sirkussins var á staðnum. Hann brýndi raustina og gaf áhorfendum fýrirmæli um að að gleyma því aldrei að SS-pylsan væri yfir aðrar pylsur hafin; engin pylsa kæmist í hálfkvisti við þennan hátind sunnlenskra matvælavísinda. Sem dæmi að nefna hefði hann sjálfur komið konunni sinni úl með því að ota að henni SS-pylsu: Besú skyndibitinn vessgú! En hverju reiddist Goði þá? Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.