Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2004, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2004, Blaðsíða 23
DV Fókus ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 2004 23 „Næsta plata kerilur út eftir tvær vikur, hún heitir Jenny," segir Bogi Reynisson í hljómsveitinni Bacon. Bacon gaf nýverið út fimm laga plötuna Krieg. Hún var sú fyrsta í þriggja platna seríu sveitar- innar. „Þessar plötur eru eins og púsluspil. Þær passa saman í eina heildarmynd þegar þær eru spilaðar í röð, auk þess að standa einar og sér.“ Aðalsprautur og lagahöfundar Bacon eru Gísli Már Sigtujónsson og Guðmundur Kristjánsson. Á plötunum spila þeir á alls kyns iiljóðfæri, gítara, munnhörpur, samplera. Tónlistin er frá teknói til rokks og ýmis- legt þar á milli. Þriggja platna verkefiúð hefur lengi verið í gangi hjá þeim. Beðið var með fyrstu útgáfuna þar tii allt annað var tilbúið. „Of stór skammtur af beikoni er ekki góður fýrir neinn," segir Bogi. „Okkur fannst lögin eiga heima í litlum skömmtun. Þetta et svolítið heví tónlist. Verðið helst líka niðri með þessu móti. Plötumar kosta ekki nema þrett- án hundruð kall úti í plötubúð." Þriggja platna fyrirkomulagið gæti auð- veldlega orsakað það að plötur Bacon verði eftirsóknaverðar í framtíð- inni. Upplagið af fyrstu plötunni er á góðri leið með að klárast og sú næsta er rétt handan við homið. Guðmuntlur, Gísli og Bogi hafa lengi verið saman í tónlistarbrans- anum. f hljómsveitum á borð við Stjömukisa og 2001. Bacon-plötumar em teknar upp í Veðurstofunni, ltljóðveri sem Stjömukisi setti upp á sínum tíma en er nú í almennri notkun. Aðsptuður hvað sé að frétta af Kisanum segir Bogi þær ekki miklar. „Vtð erum í dái frekar en pásu. En þó að öndunarvélarnar séu lágt stilltar er ekki búið að slökkva á þeim." Bacon hélt útgáfutónleika í Klink og Bank á dögunum og ætlar sér að vera dugleg við tónleikahald víða um bæ á aðventunni. Nýplataimaí SigurRós segir á heimasíöu sinni að upptökur á nýju piötunni gangi vel. Þegar hafaniulög verið kláruð og munu þau að sögn piitanna flest lenda á næstu piötu, verða gefin út á netinu eða á EP-plötu þótt ekkert hafi verið ákveðið i þeim efnum enn. Taiað er um að upptökum muni Ijúka á næstu mánuðum og að platan verði hugs- anlega komin i verslanir I maí. Annars erþaö að frétta afSigur Rós að sveitin er enn að berjast fyrir umhverfismálum. Á heimasíðu hennar er fólki bent á vefinn kiilingiceland.org auk þess sem fólk í London er hvatt til að mæta ÍThe University ofLondon Union þar Iborg næstkomandi laugardag þar sem fjallað verður um Kárahnjúkamálið og fieira. Eins og menn muna varJónsi, söngvari hljómsveitarinnar, handtekinn t mót- mælum i fyrra þegar verið var að fjalla um málið á þingi. Nú er búið að ákveða hver muni koma til með að skemmta í hálfleik á Super Bowl, úr- slitaleik bandaríska fótboltans svokallaða. í fyrra varð allt vitlaust í kjölfar brjóstasýning- ar Janet Jackson þegar Justin Timberlake reif af henni fötin og þess vegna var ákveðið að veðja á ömggan hest að þessu sinni til að forðast vandræði og kærur vegna kláms. Bítillinn Paul McCartney mun sjá um tón- listina og mun hann vonandi stand- ast þá freistingu að fara úr föt- unum. Kappinn segist vera al- sæll með þessa ákvörðun enda t sé þetta einhver stærsti við- burður heimsbyggðarinnar á hverju ári. „Þetta er stærsta skemmtun heims og við hlökkum mikið til að rokka fyrir allar þessar milljónir sem koma til með að horfa," sagði Palli um helgina. Nýhil-útgáfukvöld á Grand Rokki Haldið verður ljóðakvöld á Grand Rokki í kvöld kl. 21. Þar munu nokkur ljóðskáld lesa upp úr verkum sínum. Þórdís Bjarnadóttir les upp úr nýútkominni bók sinni, Ást og appelsínur, og Valur Brynjar Antonsson les upp úr Ofur- mennisþrá milli punkts og stjarna. Að auki kemur hljómsveitin Hestbak fram en hún flytur elektrómskan spuna á mjög sérstæðan og skemmtileg- an hátt. Böðvar Yngvi Jakobsson verður einnig á staðnum en hann er alla jafna þekktur sem Böddi brút- al. Þá mun Nýhilkonung- urinn Eiríkur örn Norð- dahl einnig verða á svæðinu ásamt Aðalsteini Jörundar- syni hávaðatónlistarmanni. Skemmtunin er öllum opin og ókeypis er inn. VESTUR-ISLENDINGAR Á KVIKM YN DAHÁTlÐ Alþjóðleg kvikmyndahátið stendur nú yfir I Reykjavfk og að venju er fjöldi áhugaveröra kvikmynda á dagskrá. I Regnboganum veröa kvikmyndirnar Rithöfundur með myndavél og Múrinn sýndar i dag kl.18á meðan Há- skólabló sýnir Ferðina löngu kl. 17.45. Verðlaunamyndin Furöufuglar eftir vesturíslenska leikstjórann Sturlu G unn- arsson sem byggð er á samnefndri skáldsögu Rohintons Mistry verður svo sýnd kl. 20 og að henni lok- inni, eða kl. 22, mun gestum gefast kosturá að sjá Heimsins tregafyllstu tónlist. Sú mynd á sér stað í eiiítið annarlegri útgáfu afborginni Winnipeg árið 1933. Kreppan er í algleymingi og ákveður bjórverk- smiðjueigandinn Lady Port-Huntly (Isabella Rossellini) að efna til alþjóö- legrar samkeppni um heimsins tregafyllstu tónlist. Leikstjór- inn Guy Maddin er Kanadamaður sem á rætur aö rekjatii islands. ks; „Þessar plötun myiid þegar þær *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.