Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1942, Qupperneq 23
Mars er í fiskamerki viö upphaf ársins og reikar ausfur á bóginn um
hrútsmerkið, nautsmerkið, tvíburamerkið, krabbamerkið, ljónsmerkið, meyjar-
merkið, metaskálamerkið og er í sporðdrekamerki við árslok. Hann er í há-
suðri frá Reykjavík: Þ. 9. jan. kl. 7 e. m., 9. febr. kl. 6 e. m., 21. marz kl.
5 e. m., 6. maí kl. 4 e. m. og 1. dez. kl. 11 f. m.
Júpíter er í nautsmerkinu við upphaf ársins og er á vesturleið, en snýr
við 5. febrúar og reikar nú austur eftir inn í tvíburamerkið. Snýr þar við 12.
nóvember og heldur aftur vestur á leið; hann er í tvíburamerkinu við lok árs-
ins. ]úpíter er í hásuðri frá Reykjavík: Þ. 8. jan. kl. 10 e. m., 23. jan. kl. 9
e. m., 7. febr. kl. 8 e. m., 22. febr. kl. 7 e. m., 11. marz kl. 6 e. m., 29. marz
kl. 5 e. m., 6. maí kl. 3 e m., 3. sept. kl. 9 f. m., 21. sept. kl. 8 f. m., 9. okt.
kl. 7 f. m., 26. okt. kl. 6 f. m., 10. nóv. kl. 5 f. m., 25. nóv. kl. 4 f. m., 10. dez.
kl. 3 f. m. og 23. dez. kl. 2 f. m.,
Satúrnus verður í byrjun ársins í hrútsmerki og reikar fyrst vestur eftir,
en snýr við 23. jan. og reikar nú austur á bóginn inn í nautsmerkið. Þar snýr
hann við þ. 25. sept. og heldur úr því vestur á leið. Við árslok er hann enn í
nautsmerkinu. Hann er í hásuðri frá Reykjavík: Þ. 2. jan. kl. 9 e. m., 17. jan.
kl. 8 e. m., 2 febr. kl. 7 e. m., 17. febr. kl. 6 e. m., 5. marz kl. 5 e. m., 22.
marz kl. 4 e. m., 8. ágúst kl. 8 f. m., 24. ágúst kl. 7 f. m., 9. sept. kl. 6 f. m.,
25. sept. kl. 5. f. m., 10. okt. kl. 4 f. m., 25. okt. kl. 3 f. m., 8. nóv. kl. 2
f. m., 22. nóv. kl. 1 f. m., nóttina milli 5. og 6. dez. á miðnætti og 19. dez.
kl. 11 e. m.
Úranus sést næstum aldrei með berum augum. Hann heldur sig allt árið
í nautsmerkinu (skammt suðaustan við sjöstirnið). Hann er gegnt sólu þ. 1.
dez. og er þá um lágnættið í hásuöri frá Reykjavík 46° yfir láréttan sjón-
deildarhring.
Neptúnus og Plútó sjást ekki með berum augum. Neptúnus er allt árið
vestarlega í meyjarmerki og verður gegnt sólu 19. marz. Hann er þá í hásuðri
frá Reykjavík um lágnættið 28* yfir sjóndeildarhring.
(21)