Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1942, Side 102
svo nokkru nemi.) HeimasmíSi, útsaumur og út-
skurður er ævinlega heimilisprýði. Sjá mynd 1. og 9.
Svefnherbergin eru lítil, en öll með innbyggðuin
fataskápum. í hjónaherbergi er auk fataskáps inn-
byggður línskápur húsfreyjunnar. Gluggar svefn-
herbergjanna vita móti morgunsól, eða austri og
norðaustri.
Húsgögnin eru af einföldustu gerð, svo einföld,
að hver laghentur maður getur smíðað þau sjálfur.
Efni er fura, ólituð eða lituð ljósbrún. Stólsetur eru
fléttaðar úr söðulgjarðaefni, sem spennt er yfir stól-
grindurnar. í hægindastólum og svefnbekk eru
lausar dýnur, fóðraðar með innlendum dúk. í svefn-
bekk, sem líka er sóffi, er rúmfatageymsla undir set-
unni.
Mynd 8 og 9 sýnir stofuna frá mynd 1 með hús-
gögnunum uppröðuðum. ,
Agust Steingrimsson.
Úrkomumagn íslands.
Áætlun í stórum dráttum.
Einkunn:
„Undrast þig minn andi,
almættisins teikn.“ M. J.
Árið 1913 reit ég dálitla grein í Almanak Þjóð-
vinafél., sem ég nefndi „Vatnsaflið á íslandi.“ Efni
hennar laut aðallega að því að skýra það eða brýna
fyrir þjóðinni, hve þýðingarmikið væri að hagnýta
hið mikla afl, sem hamazt hefur óbundið um allar
aldir frá landnámstíð í fallvötnum vorum og foss-
um, og jafnframt vara við þvi að farga í hendur
annarra þjóða nokkrum vatnsréttindum vorum.
Af því að þetta er og verður ætíð þýðingarmikið
hagsmunamál fyrir oss, datt mér í hug — máske
meira til gamans en gagns — að bæta nú við þessa
(100)