Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1953, Page 40
tvö hundruð og fimmtíu dollurum í peningum. Sjálf-
boðaliðarnir urðu að vera nýkomnir til Havana og
með öllu móti tryggt, að þeir hefðu ekki fengið veik-
ina áður. Þetta tilboð var því raunverulega aðeins
fyrir ameriska liermenn og spánska innflytjendur,
sem nýkomnir voru til bæjarins. Sög'ur, sem komust
á loft, urðu til þess, að allir Spánverjarnir hættu við
að gefa sig fram og eftir urðu aðeins amerísku her-
mennirnir. Sumir þeirra sýndu, að þeir g'áfu sig ekki
fram peninganna vegna, heldur aðeins til þess að
verða mannkyninu að liði og neituðu að taka við
nokkrum peningum.
Siðan var komið upp Lazear-sjúkrahúsinu. Það
var lítið hús, sem var útbúið með þéttriðnu vírneti,
sem engin mýfluga gat komizt í gegnum. Siðan var
húsinu skipt i tvennt með sams konar virneti.
Gorgas hafði sagt Reed alla söguna um, hvernig
Lazear hafði sýkzt. Meðal annars hafði liann sagt
honum frá því, að mýflugan, sem stungið hafði dr.
Lazear, hefði bitið sjúkling með gulu sóttina innan
þriggja daga eftir að sjúklingurinn veiktist og að
tíu dagar eða meira hefði liðið frá því að flugan
heit sjúklinginn þangað til luin beit Lazear. Reed
fór eftir þessum upplýsingum og notaði til tilraun-
anna aðeins mýflugur, sem ekki skemur en tíu dög-
um áður höfðu bitið sjúklinga, sem voru nýlega
lagztir í sóttinni. Siðan sleppti hann 15 slíkum flug-
um öðrum megin við virnetið og hafði einn mann
hjá þeim, sem móttækilegur var, en tvo menn hafði
hann hinum megin við netið. Ekki var liálftimi lið-
inn áður en maðurinn hafði verið bitinn sjö sinnum.
Ekki voru fjórir dagar liðnir, þegar þessi maður
veiktist af gulu sóttinni. En hvorugur mannanna,
sem voru liinum megin virnetsins, veiktust. Þetta var
aðeins byrjunin á tilraunum Reeds, sem nú tók að
sannfærast um, að það væru sýktar flugur og ekkert
annað, sem bæru veikina.
(38)