Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1953, Síða 132
Orðsending til félagsmanna.
Félagsmenn fá að þessu sinni 5 bækur fyrir 55 kr. gjald,
eða hverja bók á aðeins 11 kr. til jafnaðar. Segja
má, að þetta sé ótrúlega lágt verð miðað við hina miklu
dýrtíð. Útgáfan vill reyna enn sem fyrr að gera sem allra
flestum lesfúsum fslendingum fært að safna bókum. Og
ekki sízt vill hún leitast við að hjálpa þeim mörgu bóka-
vinum, sem vegna vaxandi dýrtíðar og þrengri fjárhags
eiga nú erfiðara um bókakaup en áður.
Því skal ekki leyna, að vegna síhækkandi útgáfukostn-
aðar hefði félagsgjaldið þurft að vera 15—20 kr. hærra
en það nú er. Að þessari hækkun var j>ó ekki horfið,
m. a. af þeim ástæðum, sem þegar hafa verið nefndar.
Útgáfan kýs heldur að treysta á samheldni félagsmanna
og liðsinni til að mæta þeim fjárhagserfiðieikum, sem hún
á nú við að etja, fyrst og fremst vegna hins lága féiags-
gjalds nú og undanfarin ár. — Félagsmenn geta sérstak-
iega hjálpað útgáfunni — og þar með sínu eigin bókmennta-
félagi — með þrennu móti: 1) Með því að vitja félags-
bókanna sem fyrst eftir að þær koma út og greiða félags-
gjaidið skilvíslega. 2) Mcð útvegun nýrra félagsmanna. Út-
gáfan þarf að fá marga r.ýja félagsmenn árlega. Félags-
menn geta því gert henni mikinn greiða með því að segja
öðrum frá þeim kjörum, sem hún býður, og hvetja þá
til að gerast einnig félagar. — Áskrift að féiagsbókunum
er ágæt tækifærisgjöf. Útgáfan hefur látið gera smekk-
leg gjafaspjöld fyrir þá, er vilja senda áskrift að félags-
bókunum sem gjöf. 3) Með því að kaupa lausasölubækur
útgáfunnar, m. a. til tækifærisgjafa. Lesið bókaskrána á
kápu „Andvara“ 1952. Þar eru taldar margar þeirra bóka,
sem útgáfan hefur nú til lausasölu.
Útgáfan þakkar svo hér með öllum viðskiptamönnum
sínum, bæði félag'smönnum og umboðsmönnum, samstarfið
undanfarin ár og væntir framvegis sem áður farsælla og
ánægjulegra viðskipta.
í október 1952.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins.