Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2004, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDACUR 2. DESEMBER 2004
Kvikmyndahús DV
mivitun mugh ciuni cchn fmih
1/2 kvikmyndir.ls
L. 627 Sýnd kl. 10
Sýnd kl. 5.50
Fihn Noir Kvikmyndahátíð
(allar myndir með enskum texta)
;u04rpnUer! SKu£gjJ-e$*
Niitír m
• Eite
"t'ponfón! Meirihðtlar!
O P E N
W A T E R
Sýnd kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 10.15
SmfíRHK1 BÍÚ
SÝNDkl. 4,6, BoglO b.í. 16
SÝND ILÚXUS kl. 4, 6, 8 Og 10
Cluislmki •). KJRANKS
SÝND kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.15
Lsýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 b.i. 14 Sýnd Id. 5.45, 8 og 10.15
Sýnd Id. 4
QÍJDolby JDDJ. 1hx~ SÍMI564 0000 - www.smarabio.is
Viljirðu eiga ró-
lega stund eða
rómantfska með
þeim sem þér þykir
vænt um er til-
valið að fara
að kvöldi til í
höggmynda-
garð Einars
Jónssonar
sem er rétt
hjá Hall-
grimskirkju.
Garðurinn er
fallegurog vel
uþplýstur og tilval-
inn fyrir göngutúr
og spjall. Ókeypis
listasýning
utandyra.
Lush (Kringlunni selur
náttúrulegar,ferskar og hand-
unnar snyrti- og baðvörur. Þar
má fá tilbúna gjafapakka sem
henta dömum,
herrum og
börnum. í þá er
hægt að fá allt frá sápu og
freyðibaði til góðra húð- og
likamsvara. Mörg verð f boði.
Dekraðu við llkama þinn og
annarra um jólin.
Jæja
í Búsáhaldaverslun
Þorsteins Bergmann á Skóla-
vörðustfg kennir
ýmissa grasa.
Þar má finna
fjölda búsá-
halda, not-
aðra og nýrra.
Flest er þetta
fengið af gömlum
lagerum og því tilvalið að
finna eitthvað sérstakt,gamalt
og fallegt (jólapakkann eða
inn á heimilið.
Hafnfirska hljómsveitin Úlpa og tónlistarmaðurinn Rúnar
halda í kvöld tónleika í Þjóðleikhúskjallaranum og hitar DJ 9
sec upp. Tilefni tónleikanna er að nú eru 100 ár liðin frá því
að kveikt var á fyrstu ljósaperunni á íslandi. Tónleikarnir
hefjast kl. 22 og kostar 500 krónur inn.
„Tilefni tónleikanna er að um
þessar mundir eru liðin 100 ár ffá
því að kveikt var á fyrstu ljósaper-
unni á íslandi, nánar tiltekið í Hafn-
arfirði, og þar sem Úlpa er hafnfirsk
grúppa er tilvalið að halda upp á
það,“ segir Magnús Leifur gítarleik-
ari og söngvari hljómsveitarinnar
Úlpu. „Að vísu spilum við ekki einir
á tónleikunum, því tónlistarmaður-
inn Rúnar kemur einnig fram. Hann
mætir með kassagítarinn sinn og
raddböndin og það sem Rúnar er að
gera er reglulega fallegt stöff, svona
trúbadorastemning, allt frumsam-
ið,“ segir Magnús Leifur.
„Við ætlum hins vegar að spila
nokkur lög af gömlu plötunni okk-
ar, Mea Culpa, og öll lögin á vænt-
anlegri plötu sem við erum að klára
um þessar mundir. Við spilum líka
glæný lög sem koma vonandi út á
þriðju plötunni okkar. Að sjálf-
sögðu ætlum við að spila jólalagið
okkar á tónleikunum í kvöld. Lagið
sem er eftir okkur er tveggja eða
þriggja ára gamalt og til stendur að
taka það upp á næstu dögum. Fyrir
hver jól æfum við jólalagið okkar
svo það gleymist ekki," segir Magn-
ús Leifur.
„Tónleikarnir eru í stærri kant-
inum og við höfum aldrei spilað
eins mörg lög á tónleikum og við
ætlum að gera í kvöld, það má
eiginlega segja að við séum að gera
tilraun. Nýja platan kemur út í byrj-
un næsta árs, febrúar eða byrjun
mars ,eða alla vega á fýrstu vikum
ársins. Upptökur hafa gengið mjög
vel og hún á að heita Atempted
flight by Winged men," segir Magn-
ús Leifur.
„Okkur finnst tilvalið að fagna
vgna ljósaperunnar, nú þegar hátíð
ljóss og friðar er að ganga í garð og
ætlum að gera það með pompi og
prakt í kvöld. Tónleikarnir hefjast
kl. 22 með því að DJ 9 sec hitar upp,
síðan stígur Rúnar á svið og hljóm-
sveitin Úlpa rekur lesfina með
löngu og góðu prógrammi," segir
Magnús Leifur og bætir við að það
kosti ekki nema 500 krónur inn.
Pamela Anderson ætlar aö leika í gamanþætti fyrir sjónvarp
[ Pamela Anderson
Búin að fá vinnu við nýja
gamanþdttaröð.
Leikur konu sem hrífst af illmennum
Þokkagyðjan og strandvarða-
gellan Pamela Anderson ætlar að
snúa sér aftur að leiklist í sjón-
varpi. Pamela hefur skrifað undir
samning við Steven Levitan en
hann hefur skrifað gamanþáttaröð
sem hann kallar Just Shoot Me eða
Skjóttu mig bara. Pamela ætlar að
leika konu sem er veik fyrir ill-
mennum en áttar sig smám saman
á vitleysunni og breytir lífi sínu.
Levitan er afskaplega ánægður
með að vera með Pamelu innan-
borðs. „Ég tel Pamelu vera stór-
stjörnu vegna þess að hún er vel
gefin og með sterka sjálfsmynd.
Fólk finnur að á bakvið hina kyn-
þokkafullu ímynd leikkonunnar er
staðföst og aðlaðandi manneskja
sem stundum gleður augað með
því að koma fram nakin.
Pamela hefur haft hægt um sig
hin síðustu ár og einbeitt sér að
uppeldi sona sinna. Brandon
Thomas er átta
ára og Dylan
Jagger er sjö
ára. Báðir eru
synir rokkar-
ans Tommy
Lee sem
nýverið gaf út ævisögu sína.
Pamela kom fram í Scary Movie 3 í
fyrra en síðasta stóra floppið
hennar í kvikmyndabransanum var
myndin Barb Wire frá árinu 1996.
Ekki liggur fyrir hvaða sjón-
varpsstöð mun framleiða gaman-
þættina en Leviatan og
Pamela munu á næstunni
heimsækja allar stærstu
sjónvarpsstöðvar Bandaríkj-
Vildi vera laus
viðfrægðina
Ástralska söngkonan Kylie Minogue
segistgjarna myndu vilja vera laus
viö að vera fræg. Kylie segir raunar
að sig dreymi
um að snúa aft-
ur til „venjulegs"
lífs - geta geng-
iðum göturán
þess aö nokkur
maður veiti
henni athygli.
„Þótt ekki væri
nema í til-
raunaskyni. Ég
gæti tekið mér far með strætisvagni
og síðan gengið um götur. Það væri
stórkostlegt," segir Kylie. Hún viður-
kennir að hafa eitt sinn gengið um
dulbúin. Það virkaöi ekki betur en
svo að vegfarendur voru fljótir að
átta sig.„Ég var meö dökka hárkollu
og hafnaboltahúfu. Ég heyrði fólk
segja sín á milli að þarna færi Kylie
Minogue með húfu og hárkollu."
Sérallar myndir
meðTom Hanks
Stórleikarinn Al Pacino telur fjóra
kollega sína bera aföðrum í kvik-
myndabransanum. Þetta eru þeir
Robert De Niro, Tom Hanks, Ben
Kingsleyog
John Goodman.
Pacino segist
ávallt njóta
þess að horfa á
þessa leikara í
myndum.„Ég sá
John Goodman
í Babe nýverið -
hann ereinn af
okkarbestu
leikurum. Ég fer á allar myndir með
Tom Hanks, sama gildir um John
Goodman og De Niro," segir Pacino.
Þá segir hann Ben Kingsley hafa
verið hreint stórkostlegan í myndinni
House ofSand and Fog.
Kemurekki dúrá auga
Aumingja Ozzy
og Sharon Os-
bourne - þau
eiga ekki sjö
dagana sæla
eftir að brotist
var inn á heim-
ili þeirra. Þeim
kemur bara
ekki dúr á auga, svo hrædd eru þau að
leikurinn verði endurtekinn.„Þetta
hefur sérstaklega valdið Sharon miklu
uppnámi. Hún er smám saman að
jafna sig á þvi að eiga enga skartgripi
lengur og það er miklu frekar að þessi
innrás i einkalif hennar valdi henni
hugarangri," segir náinn vinur hjón-
anna. Þrátt fyrir svefnleysið ætla hjón-
in ekki að selja húsið sitt.