Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2004, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004
Fréttir DV
Allirvilja
einbýli
Einbýlishús á höfuðborg-
arsvæðinu hafa hækkað um
10% í verði ___________
frá júní sl. Á
samatíma
hefur verð
fjölbýlis-
húsa hækk-
að um rúm
5% og hús-
næði á landsbyggðinni um
tæp 3%. Þessi snörpu áhrif á
verð einbýlishúsa benda til
þess að lágar hámarksupp-
hæðir í gamla íbúðarlána-
kerfinu (rúmar 9 milljónir)
hafi í raun haldið einbýlis-
húsaverði niðri vegna láns-
fjárskömmtunar og því hafi
verðið tekið við sér strax og
bankarnir buðu upp á rýmri
kjör á þessum markaði.
Glúmurtil
Bechtel
Risaverktakinn Bechtel,
sem hefur umsjðn meö
byggingu álvers Alcoa
við Reyðarfjörð, hefur
gengið frá ráðningu á
upplýsingafulltrúa
hér á landi og mun
Glúmur Baldvinsson,
sem starfað hefur fyr-
ir matvælaráð Sam-
einuðu Þjóðanna,
taka við starfinu. Glúmur
lýsti því nýlega yfir í blaða-
viðtali að hann hygði jafnvel
á pólitískan frama, en eins
og margir eflaust vita er
Glúmur sonur Jóns Baldvins
Hannibalssonar.
Undankeppni
í Eurovision?
Guðni Már Henningsson
útvarpsmaður.
„Mér fínnst það bráðnauösyn-
legt að hafa íslenska und-
ankeppni. Það skapar mikla
eftirvæntingu og stemningu
fyrir þessu. I stað þess að fara
bara á eina stóra Eurovision-
keppni hefðum við okkar eigin
keppni. Þetta vil ég alveg endi-
lega. Það skiptir ekki máii
hvort það skitar betri eða verri
iögum. Þetta er bara eins og
Robbie Williams segir:„Letme
entertain you.“
Hann segir / Hún segir
„Það er náttúrlega mjög gam-
an að hafa undankeppni, sér-
staklega þegar iagt er mikið f
hana eins og í hitteðfyrra, áður
en Birgitta Haukdal fór í
keppnina úti. En ég er ekkert
viss um það séu endilega bestu
lagahöfundar Islands sem
senda lög I undankeppnirnar.
Þegar ég fór var bara hringt og
ég mátti sjálfvelja lagahöfund
og lag. Það eru kostir og gallar
við báðar leiðirnar. “
Læknishjón á höfuðborgarsvæðinu fóru með hnífaparasett frá Georg Jensen um borð
í Flugleiðaþotu á Kastrup eftir að flísatangir, skæri og naglaþjalir höfðu verið af þeim
tekin við vopnaleit. Hnífana keyptu þau í fríhöfninni strax að lokinni vopnaleit.
vopnabur a Kastrup
Gunnar Ingi Gunnarsson læknir og frú hans voru í Kaupmanna-
höfn á dögunum og fóru um borð í Flugleiðavél með heilt
vopnabúr í formi hnífaparasetts sem þau keyptu í fríhöfninni á
Kastrup strax að lokinni ítarlegri vopnaleit þar sem allt var af
þeim hirt sem minnt gæti á vopn. Naglaþjalir, flísatangir og
skæri. Læknishjónunum þótti þétta kyndugt.
„Málið er þannig vaxið að ættingi
hafði beðið okkur um að kaupa
hnífaparasett hjá Georg Jensen á
Strikinu sem hann ætlaði til jóla-
gjafa en við fengum bakþanka þegar
við hugsuðum málið,“ segir Gunnar
Ingi og vísar þar til hertra reglna í
flugstöðvum þar sem vopnaleit er
gríðarleg. Hann og frú hans álykt-
uðu sem svo að þau myndu aldrei
komast í gegnum vonaleit á Kastrup
með tólf hárbeitta matarhnífa og
ekki síður hættulega gaffla. Kannski
hefðu skeiðarnar sloppið.
Kjöthnífar líka
Á leiðinni heim og eftir vopnaleit
á Kastrup fór eiginkona Gunnars
Inga inn í verslun Georgs Jensen í frí-
höfhinni á Kastrup og fjárfesti þar í
hmfaparasetti eins og um hafði verið
rætt. Setti í poka og hélt sfna leið.
„Konan mín varð hissa á þessu
því í verslun Georgs Jensen þarna á
Kastrup sagðist hún hafa séð bæði
brauðhnífa og kjöthnífa sem nota
mætti við flugrán með góðum ár-
angri. Okkur finnst í raun að ef verið
er að setja reglur í þessu efni verði
þær að standast lágmarksskoðun
sem ekki er raunin í þessu tiiviki,"
segir Gunnar Ingi, sem fór um borð í
vélina til íslands með eiginkonu sína
sér við hlið og vopnabúrið úr versl-
un Georgs Jensen í handfarangri.
Plastið afleitt
„Það er fráleitt að gera flugfar-
þegum það að þurfa að matast
með plasthnífapörum alla leið til
íslands á meðan hægt er að kaupa
önnur og venjulegri í fríhöfninni
Hnífaparasett frá Georg Jensen
j Stórhættuiegt um borð íflugvélefæði
\rennurámenn.
Gunnar Ingi Gunnarsson Læknirinn
fram á fáránleika kerfisins á Kastrup m<
aðstoð eiginkonu sinnar.
og taka með sér um borð. Þetta er
töluvert mál fyrir flugfarþega því
allir vita að það er ómögulegt að
borða góðan mat með plasti.
Maður gæti alveg eins sleppt því,“
segir Gunnar Ingi, sem afhent
hefur ættingjanum hnífaparasett-
ið úr verslun Georgs Jensen og
þótt hafa unnið afrek. „En þetta
var enginn vandi. í því liggur
vandinn," segir hann.
„Það er fráleitt að
gera flugfarþegum
það að þurfa að mat-
ast með p/asthnifa-
pörum at/a ieið tii
/slands á meðan hægt
er að kaupa önnur og
venjulegri I fríhöfn-
Ififif og taka með sér
ffm borð."
Bókmenntaverðlaun Norðurlanda
Einar Kárason líklegur
Hamborgarar á Ártúnshöfða
Burger King í Essó
Tíu norrænir höfundar hafa verið
tilnefndir til bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs árið 2005 og meðal
þeirra em Einar Kárason og Sjón. Upp-
jýst verður hver hreppir Jmossið vorið
2005 í tengslum við Norðurlandaþing
sem haldið verður í Reykjavík í október
á næsta ári. Það útaf fyrir sig þykir
mörgum benda tii þess að verðlaunin
falh íslendingi í skaut og með fullri
virðingu fyrir Sjón, þá hlýmr Einar
Kárason að teljast
líklegri. Sjón sendi fráí
sér frábæra bók á'
síðasta ári, skáldsögunal
Skugga-Baldur, og fyrir
hana er Sión
tilnefndur.
Einar Kárason
er hins vegar
tilnefiidur fyrir
bók sína
Stormur sem
Sjón Ereinnig til-
nefndur fyrir bók
slna Skugga-Baldur.
Einar Kárason Tilnefndurtil Bókmennta-
verðlauna Norðurlanda en ætla verður að
söguhetja hans Stormur muni höfða til okk-
ar„kære nordiske venner“.
einmitt hlaut menningarverðlaun DV í
flokki bókmennta. Sögusviðið er
meðal annars Reykjavík og Danmörk
en söguhetjan Stormur, landeyða sem
kann best við sig á framfæri velferðar-
kerfisins, hlýtur að höfða til hinnar
samnorrænu taugar, okkar kæm
norrænu vina.
Þau sem komu að því að tilnefna
verk fyrir hönd íslands em Dagný Krist-
jánsdóttir og Sveinbjöm I. Baldvinsson.
Buger King-skyndibitakeðjan
hefur tekið annað skxef í landnárhi
hér á landi og hyggst opna nýjan út-
sölustað í Ártúnsholti. Burger King
hefur hingað til aðeins verið í
Smáralindinni við góðar undirtektir.
Burger King fær aðstöðu í Essó-
bensínstöðinni í Ártúnsbrekkunni
þar sem Subway hefúr verið fyrir og
auk þess skyndibitastaðurinn Jarl-
inn. Subway verður áfram hjá Essó
en Jarlinn víkur og kemur Burger
King í staðinn. Stefnt er að því að
opna nýja Burger King hjá Essó
16. desember eða eftir sléttar tvær
vikur.
Burger King hefur um áratuga-
skeið háð harða baráttu um hylli
neytenda f Bandarfkjunum og
reyndar víða um heim og oft haft
betur. Sérstaklega hefur Burger King
orðið vel ágengt í slagnum á Banda-
ríkjamarkaði en McDonald’s hefur
Burger King Nýr staður á Essó-bensinstöð-
inni í Ártúnshoiti.
upp á síðkastið snúist til varnar með
frumlegum hætti og vel útilátnu
salati sem fallið hefur vel að mark-
aðnum og nýjum hugmyndum um
heilbrigði. Nýi Burger King-staður-
inn í Ártúnsholti er til marks um að
Burger King sé kominn til að vera
hér á landi og ætli sér aðeins að
stækka.