Bræðrabandið - 01.03.1978, Síða 2

Bræðrabandið - 01.03.1978, Síða 2
spurmngar var&atuli BÆN Eftir K.H.WOOD Ættum við ávallt að krjúpa þegar við biðj\m? Er stundum viðeigandi að standa? Er mismioniar á bæn í söfnuðinum og kirkjunni og einkabæn? Er munur á aðalbæn guðsþjónustunnar og lokabæn? Lesendur safnaðarblaðsins hafa á undanförnim árum borið fram þessar spurningar og aðrar þeim líkar, lesend- ur sem hafa áhyggjur af því hve mikið fer í vöxt hjá okkur að standa meðan beðið er á samkomum. Svarið við þessum spurningiom kemur af sjálfu sér þegar við skiljum skýrt hinn mikla mun á Guði og okkur. Guð er skaparinn, við erum hið skapaða. Guð er óendanlegur, við erum takmörkuð. Guð er heilagur, við erum syndug. Guð er gjafarinn, við er\im þiggjendur. Guð er ódauðlegur, við erum dauðleg. Guð er fullkominn, við erim ófullkominn. Guð er almáttugur, við .erum veikburða. Guð hefur máttinn í sjálfum sér, við erxim honum háð. Þegar við komum auga á visku, rétt- læti, náð og mikilleika hins eilífa Guðs, þó ekki nema að nokkru leyti,munum við nálgast hann með lotningu. Hvort sem við krjúpum eða stöndum munum við finna til auðmýktar í návist hans. Við munum ásamt englunum sem hylja ásjónu sína við það að nefna nafn hans vera fyllt undrun yfir því að sá sem er svo mikill að mætti og hátign hefur boðið okkur að hafa samfélag við sig. Ef við gerum okkur grein fyrir ófull- komleika okkar og synd, þörf okkar og því hve við erum háð Guði munum við nálgast hann með virðingu í Jesú nafni. Eitt skipti var Ellen G. White veitt að fá að sjá óumræðilega dýrð Guðs. Þegar hún ritaði um þessa reynslu sagði hún: "Ég sá ljós koma frá dýrð þeirri sem umlukti föðurinn og þegar það nálgaðist mig skalf líkami minn og hristist eins og lauf í vindi. Ég hugs- aði með mér að ef það kæmi nær mér hlyti ég að missa lífið en ljósið fór framhjá mér. Þá fékk ég örlitla til- finningu fyrir hinum mikla og skelfi- iega Guði sem við höfum samskipti við. Ég sá hversu sumir hafa óljósa hugmynd vim heilagleika Guðsí Early Writings bls. 70. K.H.Wood er ritstjóri Review and Herald. Grein úr Review 15.desember 1977. 2

x

Bræðrabandið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.