Bræðrabandið - 01.03.1978, Blaðsíða 16
stóra vikan
HJÁLPIÐ TIL AÐ BYGGJA UPP TECHIMAN
skóla i verklegum greinum fyrir stúlkur i Ghana
Eftir M. A. BEDIAKO
Samtökin í Ghana vilja þakka öllum
meðlimxam Norður-Evrópu og Vestur-Afríku
deildar fyrir miklar gjafir í fórn Stóru
viku 1976 sem runnu til þess að byggja
upp Techiman skólann fyrir stúlkur í
Ghana.
Fyrir gjafir ykkar gáum við lokið
við að reisa fjórar skólastofur.
Skólinn Techiman, þar sem stúlkum í
Ghana eru kenndar verklegar greinar, var
settur á stofn í september 1974 eftir
vandlega skoðun á kenningu aðventista um
menntun.
ÞÓ að Samtök aðventista í Mið-Ghana
starfræki tvo gagnfræðaskóla og kennara-
skóla er Techiman skólinn sá eini sem er
algjörlega £ eign aðventista og að öllu
M.A.Bediako er formaður Samtaka
aðventista í Ghana.
leyti rekinn af þeim. Techiman skólinn
er stofnsettur á þeim tíma er opinberir
aðilar í Ghana hafa miklar áhyggjur af
framtíð æskunnar, einkum stúlkna. Það
er því vel að slík mál hvíli á huga
forystumanna safnaðarins og söfnuðurinn
leggi áform varðandi framtíð þessara
stúlkna.
Á strætunum eru margar stúlkur sem
hafa einungis lokið hluta af námi sínu.
Þær hafa margar lokið barnaskólanámi en
fá engin störf sökvun þess að þær hafa
ekki verið búnar undir þau störf sem á
boðstólum eru. Þar sem stúlkur þessar
vantar dvalarstað, föt og fæði er þeim
sú hætta búin að leiðast út í ósiðsam-
legt liferni.
Þetta er ástæðan til þess að söfn-
uðurinn setti á stofn þennan skóla þar
5