Bræðrabandið - 01.03.1978, Blaðsíða 5

Bræðrabandið - 01.03.1978, Blaðsíða 5
föðumum og talar við hann af lotningu munvun við þá ekki fá svör við mörgum af spurningum okkar um almenna bæn og einrúmsbæn? Eitt er víst: Kærleikur okkar til Krists mun vaxa og meiri lotning mun einkenna samkomur okkar. § BAKSÍDA sem kenndar eru verklegar greinar til að (1) þroska með þessum unglingum and- leg, siðferðisleg og félagsleg verðmæti í samræmi við hugsjónir aðventista um menntun (uppeldi) og lífið,(2) uppfylla þarfir ungra kvenna sem vilja að almennu skólanámi loknu fara í sérnám til að búa sig undir ákveðið starf, (3) veita nem- endum tilsögn í heimilisfræðum, saumum, heimilisiðnaði og hinum sérstöku skyldum sem snerta mæður. Nemendatalan er nú um 150 og eru flestar frá aðventheimilum og fáeinar atan safnaðar úr næsta nágrenni. varpað frá honum um allt landið. Systkini, Techiman skólinn er aðeins þriggja ára gamall en það er nú ljóst að ef við sem söfnuður fylgjum þeirri forskrift sem söfnuðurinn hefur fengið munu stofnanir okkar vera ríkisstjórnum landanna fordæmi. Við getum verið hreykin af að benda gestum okkar á andlegan og fræðilegan staöal skólans en við erum ekki glöð að sýna þeim heimavistirnar og borðstofu. Það eru um 20 stúlkur í átta manna herbergi. Eldhús og borðstofa eru enn til húsa í bráðabirgðaskýli. Við leitum því til meðlima Norður-Evrópu og Vestur-Afríku deildar um að hjálpa okkur með því að gefa vel í fórn Stóru viku 25.mars svo að við getum reist rúmgóða heimavist og góðan borðsal og eldhús fyrir skólann. Stúlkurnar í Techiman hlakka til að fá ríkulega fórn ykkar. Þökk fyrir. ♦ Sem stendur höfum við aöeins bráða- birgðaheimavist fyrir stúlkurnar. Höfðinginn og öldungarnir i Techiman hafa gefið okkur landskika til að reisa á varanlega byggingu. Vegna fórna Stóru viku 1976, fjárveitinga frá deildinni og framlaga frá Samtökunum í Mið-Ghana gát- um við lokið við að reisa fjórar rúmgóð- ar skólastofur á nýja staðnum. Það mun gleðja meðlimi okkar að fá að vita að fyrsti hópur nemenda, 50 talsins, tóku lokapróf í júní 1977. Við fórum að eins og gert er í öllum skólum í landinu sem annast verkmennt: við bjuggum nemendur undir að taka lægra próf af tveim - próf sem veitir heimild til að vinna að hjálpar- og líknarstörf- um í þjóðfélaginu. En þegar fulltrúar prófstjórnar komu og súu það sem lá eftir nemendur mæltu þeir með að þeir skráðu sig til hærra prófsins sem ætlað var iðnaðarmönnum. Viku eftir að nemendur okkar tóku fyrra prófið tóku þeir það seinna. Sá sem prófaði var sjálfur fræðsiu- stjóri landsins. Eftir prófið kom hann við á skrifstofu Samtaka aðventista í Kumasi, um 100 km veg frá skólanum, til að tjá ráöamönnum Samtakanna þakklæti r sitt fyrir það verk sem við framkvæmum í Techiman. Vegna góðra umsagna um skólann þeirra sem sótt hafa hann heim voru sjón- varpsmenn sendir til skólans og var sjón- 14-------------------------------------► Fuglarnir fóru að syngja við gluggann minn. Ég skreið fram úr rúminu og lagðist á hnén. Gat þetta gerst í mínu lífi? Allar bækiornar og upplýsingarnar innan seil- ingar - og ég hef haft of mikið að gera til þess að kynnast frelsaranum.' BEIÐNI UM FYRIRGEFNINGU "Kæri Drottinn fyrirgefðu mérí Gefðu mér sterkari vilja. Gefðu mér mátt til að taka ákvörðun um að hafa hið þýðingar- mesta í lífinu í æðsta sessi. Hjálpaðu mér að stjórna lífi mínu á þann hátt að ég verði ekki meðal þeirra sem komi og knýi dyra á hinni nýju Jerúsalem og segi: "Drottinn,Drottinn opnaðu fyrir okkur", og þá verðir þú að segja við þá: "Aldrei þekkti ég yður. Þið höfðuð svo mikið að gera við að taka pantanir á myndum á meðan ég beið eftir ykkur á skrifstofu ykkar." NÚ er orðið fullbjart. Ég ætla að byrja í dag að kynnast betur skapara mínum. Hin sanna mynd af Guði er aöeins fáeina þumlunga í burtu. Hún er á náttborðinu mínu við rúmið mitt. $ 5

x

Bræðrabandið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.