Bræðrabandið - 01.03.1978, Blaðsíða 4

Bræðrabandið - 01.03.1978, Blaðsíða 4
"Stóð hann upp frammi fyrir altari Drottins...gekk fram og blessaði allan ísraelssöfnuð hárri röddu"(55.vers). Ef til vill hafa aðventistar vegna þessarar reynslu mótað með sér þá venju að standa við lokabænina á tilbeiðslu- stundinni. Safnaðarhandbókin hvetur presta og meðlimi til að krjúpa til aðalbænarinnar "eftir því sem hagkvæmt þykir"(bls.116,117) en segir að "eftir lokabænina ætti söfnuðurinn að standa eða setjast niður í fáein augnablik í hljóðri bæn"( bls.118). BÆN VIÐEIGANDI HVAR SEM ER Biblían gerir það ljóst að það er fleira sem felst í bæn heldur en líkamsstaða. Ráðleggingar postulans Páls eru þessar: "Biðjið án afláts" (1.Þess.5,17) og gefur það til kynna að bænin sé viss lífsafstaða. "Hver andardráttur ætti að vera bæn." - The Ministry of Healing bls.511. Þegar Nehemía stóð frammi fyrir konung- inum og þurfti á visku að halda "sendi hann upp bæn til Guðs himnanna" (Biblíu- skýringar aðventista,Ellen G.White skýringar um RÓmverjabréfið 2,4,bls. 1136; sjá Neh. 2,4). í þessu sambandi sagði Ellen G.White: "Hvar sem við erum og hver sem störf okkar eru getum við lyft hjörtum okkar upp til Guðs í bæn...Við þurfum ekki að bíða eftir að geta beygt knén til þess að geta beðið "(Sama bók.). Við getum beðið á leið okkar til vinnu, þegar við ökum í bílnum okkar, þegar við erum við húsverk eða við önnur störf, eða bíðum eftir því að guðsþjónusta hefjist eða þegar við liggjum vakandi á nóttinni. Davíð sagði: "Sál mín mettast sem af merg og feiti og með fagnandi vörum lofar þig munnur minn. Þá er ég minnist þín í hvílu minni, hugsa lom þig á nætur- vökum."(Sálm.63,6.7.).Og Ellen G. White skrifaði: "Þegar við erum við dagleg störf get\mi við andað frá okkur ósk hjartans sem mannlegt auga getur ekki greint. En það orð getur ekki dáið í þögn eða heldur týnst. Ekkert getur slökkt þrá sálarinnar...það er Guð sem við erum að tala við og bæn okkar er heyrð'.' - Gospel Workers bls. 258. Sjá einnig Vegurinn til Krists bls.108 Þrátt fyrir þá staðreynd að Guði geðjast vel að hlýða á bænir okkar hverjar sem aðstæður okkar eru eða líkamsstaða finnst okkur samt óheppi- legt að of oft - jafnvel þegar það er ónauðsynlegt - standi söfnuður í stað þess að krjúpa til bænar. Við teljvim að þetta kunni að sýna tak- markaðan skilning á eðli Guðs, mætti, hátign og valdi. Samtímis erum við ekki sammála þeim sem telja að líkams- staða manns í bæninni sé það sem skipti mestu máli. Við óttumst tvær skyldar hættur:(1) að þó að við leggjum áherslu á þá hlið eðlis Guðs sem vekur hjá okkur ótta megum við ekki láta undir höfuð leggjast að skilja að við getum náð til Guðs og hann er ástríkur félagij og (2) að við leggjum svo mikla áherslu á það að gæta þess hvernig við nálgumst Guð í opinberri bæn eða í bæn á safnaðarsamkomum að við útrýmum bæn úr daglegu lífi okkar með því að telja að slík iðkun eigi aðeins að eiga sér stað opinberlega. Satan leitast við að nota allt - ja’ jafnvel bæn - til að ná tilgangi sínum. Hann er ánægður ef hann getur leitt okkur til þess að gagnrýna samferðafólk okkar fyrir að krjúpa ekki í bæn þegar við teljum að það ætti að gera það eða þegar við höfum meiri áhyggjur af líkamsstöðunni heldur en af ástandi sálarinnar í bæninni. Eða ef við lítum á bænina sem formið eitt sem eigi að fara fram aðeins opinberlega en ekki sem stöðugt samband við himininn sem styrk- ir samfélag okkar við Jesú og gefur okkur ráð um það hvemig á að forðast hætturnar sem liggja í leyni á leiðinni til Guðs ríkis. Einu sinni tóku lærisveinarnir eftir því að hann talaði einlæglega og náið við föður sinn og hann notaði samt ekki þær vanaföstu setningar sem ein- kenndu bænir trúarleiðtoga Gyðinga. 1 bænum hans var líf og þær voru raun- verulegar og það greindi þær frá bænum annarra. Óhjákvæmilega leiddi það til þess að lærisveinunum fannst að ef þeir gætu beðið eins og Jesús gerði yrði líf þeirra og starf áhrifameira. Svo þeir spurðu hann: "Drottinn kenn oss að biðja." (Lúk.11,1). Eigum við ekki að gera þessa bæn lærisveinanna að bæn okkar? Og er við virðum Jesúm fyrir okkur, fordæmi okkar þar sem hann krýpur frammi fyrir 4

x

Bræðrabandið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.