Bræðrabandið - 01.04.1984, Page 3
Frásögn Arlene Franklin, skráð af:
Ellu Ruth Elkins
"DROTTTNN, VILTU NOTA MIO A EINHVERN HATT,"
BAÐ EG. SVAR HANS VAR STORKOSTLEGT!
Þetta var á heitum júlímorgni og ég
lét það síðsta af farangri okkar upp í
24 feta húsbílinn okkar, sem var af
Dodge gerð. Eiginmaður minn var að
festa 24 feta pallvagninn okkar, sem við
mundum draga á eftir okkur. Við vildum
koma okkur sem fyrst af stað, og ég tók
í flýti til sjónauka og myndavélar, á
meðan hann tók til keðjur, tjakka og
fleira. í þessari ferð hafði hann mjög
mikinn áhuga á að komast yfir forna
bíla, hluti, búta og allt sem minnti á
Ford árgerðina 1932-1934.
Á þriðjudagskvöldi vorum við komin í
stóra borg í Nevada, en þar átti að vera
mikil fornbílasýning og sala næsta dag.
Við áttum eftir lítið af ávöxtum og
grænmeti, svo ég stakk up á því, að við
næmum staðar við einhverja verslunina
þar sem ég gæti keypt dálítið af
matvælum til næstu daga. Maðurinn minn
samþykkti þetta og ákvað að koma með mér
að kaupa inn. Um leið og við gengum
innum dyrnar fór ég með hljóða bæn:
"Drottinn, viltu nota mig á einhvern
hátt núna í kvöld, ef það er þinn
vilji."
Ég náði í nýja ávexti í ávaxtadeild-
inni og fór svo yfir að m jókurvörunum.
Lítil, gömul kona, með staf í hendi,
beygði sig niður til að ná í kotasælu.
Hún ýmist rétti sig upp eða beygði sig
niður aftur. Hún virtist eiga í
einhverjum erfiðleikum.
Ég færði mig nær henni. "Má ég ekki
hjálpa þér?"
"Ó!" hún brosti veikt til mín, "ég
held að það eitthvað að mér fyrir
hjartanu, í hvert sinn sem ég beygi mig,
svimar mig svo hræðilega."
Ég hjálpaði henni að ná í kotasælu-
dósina sem hana vantaði, og spurði svo:
"Er ekki eitthvað annað sem ég get
hjálpað þér með?"
Augu hennar fylltust tárum og hún
virtist döpur. En svo sagði hún: "3ú það
er dálítið sem þú getur hjálpað mér með.
Geturðu hjálpað mér að finna Sjöunda
3
"m <é.