Bræðrabandið - 01.04.1984, Síða 7

Bræðrabandið - 01.04.1984, Síða 7
 V ÚR SAFNAÐARHANDBÓKINNI "Þó að Guð dvelji ekki í musterum með höndum gjörðum, heiðrar hann samt samkomur fólks síns með návist sinni. GUDSÞJÓNUSTUR 06 SAMKOMUR SAFNADARINS Hann hefur lofað að þegar þau koma saman til þess að leita hans, játa syndir sínar og biðja hver fyrir öðrum þá muni hann vera á meðal þeirra fyrir Anda sinn. En þeir sem koma saman til þess að tilbiðja hann ættu að hafna öllu illu. Samkomur þeirra munu verða til einskis nema þau tilbiðji hann í anda og sannleika og í fegurð heilagleikans. Um slíka segir Drottinn: "Lýður þessi heiðrar mig með vörunum, en hjarta þeirra er langt frá mér. Til einskis dýrka þeir mig." Þeir sem tilbiðja Guð verða að tilbiðja hann "í anda og sannleika. Faðirinn leitar slíkra, er þannig tilbiðja hann."" - Prophets and Kings, bls. 50. LOTNING í HÚSI GUÐS Hús Guðs á jörðu er hinni auðmjúku, trúuðu sál sem hlið himinsins. Lofsöng- urinn, bænin og orð þau sem fulltrúi Krists talar eru tæki af Guði sett til þess að búa fólk hans undir söfnuðinn hið efra, undir hina háleitu tilbeiðslu þar sem ekkert sem saurgar getur verið með í. Af helginni sem tengd var hinum jarðneska helgidómi geta hinir kristnu lært hvernig þeir eiga að líta á þann stað sem Drottinn finnur fólk sitt. ... Guð sjálfur gaf fyrirmæli um tilhögun guðsþjónustunnar, og hóf hana ofar öllu því sem tímanlegt er. Húsið er helgidómur fjölskyldunnar og einkaherbergið eða trjálundurinn er kyrrlátasti staðurinn fyrir tilbeiðslu einstaklingsins en kirkjan er helgidómur safnaðarins. Það ætti að vera regla varðandi tíma, stað og tilbeiðsluhátt. Ekkert það sem heilagt er, ekkert það sem snertir tilbeiðslu Guðs ætti að skoða af kæruleysi eða afskiptaleysi. Til þess að fólk geti gert sitt besta í að víðfrægja dáðir Guðs verður það að gæta þess í samskiptum sínum við aðra að halda í huga sér hinu heilaga aðgreindu frá hinu almenna. Þeir sem eru víðsýnir og hafa til að bera háleitar hugsanir og hneigðir eru jafnan í félagsskap sem styrkir alla hugsun um guðlega hluti. Sælir eru þeir sem eiga sér helgidóm, hvort sem hann er hár eða lágur, í borg eða ósléttum helli, í lágreistum kofa eða í eyðimörkinni. Ef það er það besta sem þeir geta fengið fyrir meistarann, mun hann helga staðinn með návist sinni og hann mun verða heilagur Drottni her- sveitanna." Testimonies 5. bindi bls. A91 og A92. 7

x

Bræðrabandið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.