Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2005, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2005
Fréttir DV
Hættulegt
geðlyf
Leyfar af lyfinu Diazepam
fundust í líkama Hildar Ar-
dísi Sigurðardóttur sem varð
dóttur sinni að bana á Haga-
melnum í sumar. Þetta kem-
ur fram í dómnum yflr Hildi
sem kveðinn var upp fyrir
helgi. Sjúklingum sem þjást
af þunglyndi eða sýna geð-
klofaeinkenni er ekki ráðlagt
að taka inn lyfið sem er afar
ávanabindandi. Af þeim
kvillum þjáðist Hildur
einmitt en aðspurð fyrir
dómi sagðist Hildur ekki
kannast við að hafa tekið inn
lyfið.
Hissa á dug
íslendinga
Friðrik Sigurbergsson
læknir sem fór með íslensku
hjálparflugvélinni til
Tælands eftir miklu flóð-
bylgjuna miklu segir Svía
hafa undrast gott vinnulag
íslendinganna. í viðtali
við nýjasta tölublað
Læknablaðsins segist
Friðrik aldrei hafa séð
Svía eins bjargarlausa
eins og við þetta tæki-
færi. Hann segir Svíana
hafa haft á orði að íslending-
amir virtust geta tekið
ákvarðanir eins og ekkert
væri. „Þeir voru greinilega að
fjarstýra hlutunum dálítið að
heiman," segir hann við
Læknablaðið.
Stal til að
stela
Lögreglan í Reykjavík
fékk mann úrskurðaðan í
síbrotagæslu í s.l. viku.
Maður þessi hefur játað
að hafa í félagi við annan
mann farið f innbrota-
leiðangur um sumarbú-
staðaliverfi í Grfmsnes-
og Grafningshreppi.
Hann hefur vísað á 4 bú-
staði sem þeir brutust
inn í en í einhverjum til-
fellum höfðu eigendur
ekki komið í bústaðinn
eftir innbrotin. Auk þessa
stal hann Subaru-bifreið í
Reykjavík og notaði hana
til að stela vélsleðakerru
og vélsleða frá sumarhúsi
í Grímsnesi.
Strandamaður
ársins kosinn
Sverrir Guðbrandsson
frá Hólmavík var kjörinn
Strandamaður ársins
2004 af fréttamiðlum
Strandamanna eins
og fram kemur á ein-
um þeirra Strandir.is.
Það segir enn fremur
að úrslitin hafi verið
kunngerð á Spurn-
ingakeppni Strandamanna
á sunnudag. Sverrir gaf út
bókina „Ekkert að frétta"
fyrir síðustu jól sem inni-
heldur æviminningar hans
og þykir hún hin áhuga-
verðasta lesning. Sverrir var
leystur út með blómum og
verðlaunagrip.
ít
’ %
Fjögurra manna amerískt kvikmyndatökuteymi heimsótti Strandasýslu um helgina.
Austur-evrópska klámmyndastjarnan Kyla Cole lék aðalhlutverkið í myndinni sem
tekin var upp í heitum potti á Hótel Laugarhóli. Hótelstjórana grunaði ekki neitt.
Klámstjama í erátískri
kvikmynd é Strðndnm
„Það var mikið talað um þetta því það er óvenjulegt að það komi
gestir og taki kvikmynd á þessum árstíma," segir Matthías Jó-
hannsson, hótelstjóri á Laugarhóli á Ströndum, sem hýsti
bandarískt kvikmyndateymi á dögunum.
í ljós hefur komið að verið var
að taka upp erótíska kvikmynd á
Ströndum - og hugsanlega ekki í
fyrsta sinn.
Hefur komið áður
„Leikstjórinn heitir Sean Harris
og hann hefur komið hingað
þrisvar áður. Hann hefur gert
þætti hérna. Þetta eru svona
þættir eins og hann var að gera
núna. Leiknir þættir. Hann er svo-
lítið mikið í þessu," segir Matth-
ías, sem er franskur að uppruna
en er Strandamaður til áratuga.
Með aðalhlutverk í myndinni
fer slóvakísk leikkona. „Ég þekki
ekki til hennar. Hún heitir Mart-
ina og er frá Slóvakíu. Það er það
eina sem ég veit,“ segir Matthías.
Klámstjarna
Martina Jacova býr nú í Banda-
ríkjunum og hefur tekið upp nafn-
„Við hjónin vorum
þarna niður frá hjá
þeim. Við vorum
Ijósamenn."
ið Kyla Cole. Hún var meðal ann-
ars Penthouse Pet of the Month í
mars árið 2000. Af eldri myndum
hennar má nefna Blond & Bru-
nettes, Exhibitionists og The Villa.
Kvikmyndin sem tekin var upp
í Strandasýslu á dögunum heitir
Assasin 62, eða Launmorðingi 62.
Hún fjallar um tálkvendi sem er
náttúruverndarsinni og eltist við
veiðiþjófa sem selja nashyrninga-
duft. Duftið er notað til kynörvun-
ar en ekki fer betur en svo að Kyla
Cole, í hlutverki tálkvendis, hefur
hendur í hári veiðiþjófanna og
myrðir þá.
í heita pottinum
Atriði voru meðal annars tekin
upp í hinni fornfrægu síldarverk-
smiðju í Djúpavfk og í heita pott-
inum á Laugarhóli. Matthías hót-
elstjóri segist ekki hafa orðið vitni
að upptökunum í pottinum. „Mér
skilst að þetta sé svona sambland
af leikinni mynd og tónlist. Ég var
að vinna allan tímann og þau líka,
þannig að ég sá lítið," segir hann.
Hótelstýra grunlaus
Eva Sigurbjömsdóttir,
stjóri á
Hótelstjórinn og leikararnir Hér
kveðja erótlskar leikkonur hótelstjór-
ann Matthlas Jóhannsson á Laugar-
hóli I Bjarnarfirði á Ströndum eftir
að tökum lauk. Sandra (t.v.), Matthl-
as og Kyla Cole.
hótel-
Hótel
segir
Djúpavík,
kvikmyndateymið
hafa dvalið á hótel-
inu í sólarhring.
„Þau vom hjá okkur
og tóku myndir í
verksmiðjunni og
svoleiðis. Þar vom þær tvær ungar
dömur í Flamengo-kjólum með
bert bakið og voða flottar. Alveg
að deyja úr kulda. Við hjónin
vomm þarna niður frá hjá þeim.
Við vomm Ijósamenn," segir hún.
Aðspurð segist Eva ekki kann-
ast við að erótík sé í myndinni. „Ég
sá ekkert svoleiðis. Mér skilst að
myndin fjalli um kvenkyns leigu-
morðingja sem tekur að sér að
drepa náttúrusóða. Ég held hún
gangi mest út á Greenpeace eða
Rainbow Warrior, án þess að vita
það alveg. Við þekkjum hann af
öðmm vettvangi. Hann er mikill
listamaður og semur músík og
ýmislegt. Hann leikur hlutverk í
þessari lfka. Hann leikur einhvem
sem er kallaður Mr. Blue,“ segir
hún.
jontrausti@dv.is
íslendingur grunaöur um metsmygl
Náðist eftir æsiiegan eltingarleik
íslenskur karlmaður situr nú
ásamt þýskum karlmanni, sem áætl-
að er að sé burðardýr, í gæsluvarð-
haldi grunaður um að hafa reynt að
smygla hingað til lands 4 kílóum af
amfetamíni. Þjóðverjinn var hand-
tekinn í Leifsstöð 26. janúar síðastlið-
inn með efnið í fölskum botni ferða-
tösku sinnar. Harm var þá að koma
með flugi frá Kaupmannahöfn.
íslendingurinn var hins vegar
handtekinn tveimur dögum síðar
eftir að bíl sem hann ók var veitt eft-
irför í Vesturbæ Reykjavíkur þar sem
íslendingurinn reyndi að stinga lög-
reglu af í æsilegum eltingarleik. Mun
fslendingurinn hafa haldið að hann
hafi verið að sækja efnin þegar hann
Hvað liggur á?
Reyndi að stinga af Islendingur er grunaður
um að hafa skipulagt innflutning á 4 kllóum af
amfetamlni.
varð lögreglu var og
reyndi að stinga af en án árangurs.
Kílóin fjögur munu vera met í
haldlagningu amfetamíns í Leifsstöð
en andvirði þeirra er vart talið undir
60 miljónum króna.
Jóna María Jónsdóttir nuddkona: „Ég er að nudda en annars er ekkert sérstakt að gerast í
augnablikinu. Ég er alltafl nuddinu en hef fengið mér hálfsdagsvinnu að auki í Tæknivörum."
Kennarar í Setbergsskóla mótmæla
Nemendum mismunað eftir verkfall
„Við emm ósátt
við að verið sé að
bæta nemendum í
5-10 bekk upp
þann tíma sem
tapaðist í verkfall-
inu í haust," segir
María Kristjáns-
dóttir, kennari í
Setbergsskóla.
Hópur kennara
nemenda í 1-4
bekk skólans hefur
tekið sig saman og
skilað undirskriftalista
4***. Uetrr.mi ,
<> «■•«.«»■ ÍMTM. I Ikour
—
Undirskriftalistar
kennaranna Ósáttir við
bæinn og segja að nem-
endum sé mismunað.
til bæjaryfirvalda þar
sem þeirri ákvörðun
bæjarins, að gefa nemendum í 5-10
eina 90 kennslutíma sem uppbót
fyrir verkfallið, er mótmælt.
Kennaramir segjast í grundvall-
aratriðum vera á móti því að nem-
endum sé bættur upp sá tími sem
tapaðist í verkfallinu. „En fyrst það
er stefrian á ekki að mis-
muna nemendum og
láta ungu krakkana í 1-4
bekk sitja á hakanum,"
segir María sem spyr
hvort fyrstu bekkingar
séu ekki jafn mikils virði
og aðrir.
En það er annað sem
kennarar eru ósáttir við í
þessu máli. Ef eldri
nemendur fá aukatím-
ana merki það aukatekj-
ur fyrir þeirra kennara.
Eitthvað sem kennarar í
yngri deildum sætta sig
ekki við.
„Auövitað er þetta launaatriði.
Það er verið að mismuna bæði
kennumm og nemendum og for-
eldrum sem borga allir jafnt fyrir
skólagöngu barna sinna,“ segir Mar-
ía, óánægð með stefhu bæjarins í
þessum málum.