Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2005, Síða 17
7 6 ÞRIÐJUDACUR 8. FEBRÚAR 2005
Fjölskyldan DV
DV Fjölskyldan
ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2005 17
-i , :
Wmm
í D V á þriðjudögum
• Nú standa yfir tilboð á
ýmsum vörum tengdum þæg-
indum og
; t y ■ | notalegheit
■PP ^ • um í versl-
uninni Betra
bak, Faxafeni 5,
þar sem verið er
að rýma fyrir nýj-
um vörum. Afslátturinn á svefnsóf-
um, teppum, rúmgöflum, náttborð-
um og fataskápum er 15-50% en 20-
30% á hægindastólum.
• Rúmfatalagerinn býður nú ótrú-
leg tilboð á rúm-
dýnum. Alls
kostar Plus B10
boxdýna að
stærð 90 x 200
sm. með hlífðar-
dýnu 16.900 krónur en áður kostaði
hún 19.900 krónur. í Rúmfatalag-
ernum er einnig tilboð á „Dana
Andrik" andardúnsængum sem
kosta nú aðeins 1.990 krónur en
kostuðu áður 2.990 krónur.
• í verslun ísleifs Jónssonar, Bol-
holti 4, er nú tilboð á nuddbaðkör-
um. Corica baðkar
kostar aðeins 136.000
krónur, Ancona baðkar
kostar 137.000 krónur,
Solo hornbaðkar kost-
ar 118.000 krónur,
Sevilla 97.000 krónur, Ibiza 101.000
krónur og Bari 116.000 krónur.
Nánari upplýsingar er hægt að
nálgast á vefsíðunni isleifur.is.
• Nú eru tvenn tilboð í gangi á
veitingastöðum Mekong, Spönginni
13 Reykjavik, Bæjarlind 14-16 Kópa-
vogi og Sóltúni 3 Reykjavík. í tilboði
1 er tælenskur kjúklingaréttur,
svínakjötsréttur steiktur í engifer,
sterk hrísgrjón með kjúklingi og
grænmeti og djúpsteiktum rækjum
og hljóðar það upp á aðeins 2.490
krónur. í tilboði 2 eru kínverskar
núðlur með kjúklingi, svínakjöt
steikt í hvítlauk, tælenskur
nautakjötsréttur og
kjúklingur í ostrusósu
og hljóðar það upp á
2.490 krónur.
• Síðustu dagar útsölunn-
Dökkhærður, blíður og góður
Draumaprinsinn minn er dökkhærd-
ur, með blágræn augu og adeins
yfir 180 sm á hæd. Hann verd
ur ad vera metnaðarfullur og
klárstrákur og bara alveg
eins og kærastinn minn. Hann
verður lika að vera blidur og
góður eins og hann. Alveg sidan ég
ir litil hefég lieillast meira af
hærðum karlmönnum sem
eru dökkir yfirlitum/'
[ Draumaprinsinn )
ar í Rafha, Suðurlandsbraut 16,
standa nú yfir. Mikið úrval smá-
tækja í eldhúsið kostar nú aðeins
990 krónur, eld-
húsinnréttingar eru
á 30-40% afslætti,
uppþvottavél sem
áðurkostaði 119.00
kostar nú 99.000
krónur, Tristar
heilsugrillið kostaði
6.990 krónur en er
nú á 3.990, svo fátt
eitt sé nefht.
BARNAVÖRUVERSLUN - GLÆSIBÆ
slmi 553 3366 - www.oo.is .
Valgerður Halldórsdóttir Hefuralla
tíö búið I stjúpfjölskyldu og telurþörfina
fyrir námskeiö og umræðu gífurlega.
DV-mynd Vilhelm
Kartöflubátar með tómötum og pestói
Kartöflubátar med tómötum og pestói
eru tilvalið meðlæti með kjúklingi,
lambakjöti og fiski. Rétturinn getur lika
staðið sem aðalréttur með grænu salati
og brauði.
1 poki Þykkvabæjar-kartöflubátar,
700 gr.
3 msk. pestósósa
1 msk. ólifuolia
nýmalaður pipar
salt
2 til 3 tómatar, vel þroskaðir en þó
þéttir
nokkur basilikublöð
kryddað með pipar og salti. Kartöfiun-
um er siðan velt vel upp úr blöndunni og
tómatarnir skornir i báta og blandað
saman við.Alltersettí eldfast mót og
saxaðri basilíku dreift yfir ef vill. Mótið
ersett i ofninnog bakað i um 20 minút-
ur. Þegar búið er að taka réttinn úr ofn-
inum má skreyta með basiliku.
Ofninn er hitaður í 21O C. Pestósósu og
ólifuoliu er blandað saman iskál og
góðráðsvo
fjölskyldan
geti hreyft
sig saman
Búðu til svæði innan- og utandyra þar
sem klifur, hopp, gamni-slagsmál og læti eni
leyfð.
Keyptu dót og tæki sem krefjast líkam-
legrar áreynslu.
3« Takmarkaðu tímann sem fer í að glápa á
sjónvarpið.
Bjóddu ömmu og afa og öðrum ættingj-
um með sem oftast.
Leggðu áherslu
á skemmtunina en
ekki sigur í leikj
um.
/« Eyðið eins
miklum tíma
utandyra og mögu-
legt er.
Valgerður Halldórsdóttir heldur námskeið fyrir stjúpforeldra. Hún segir þörf fólks
fyrir fræðslu og stuðning mikla en oft þori það ekki að færa mál sín í tal vegna
þess hve eldfimt efni þetta sé og vegna þess hve staða stúpforeldra sé óljós.
Að vera iða ekki verji foj-
eldri Sijupfereldrer i eiliium
samanburði við kynfareldra
Notaðu likamlega hreyfingu sem verð-
laun I staðinn fyrir mat (t.d skautaferð).
„Ef maður ættleiðir barn þykir
sjálfsagt að það taki þig tíma að
tengjast því, ef maður tekur barn í
fóstur eru ákveðnar leiðbeiningar
um það sem því fylgir og ef maður
eignast sjálfur barn er sjálfsagt að
fólk fái upplýingar um barneignir
og meðgöngu og svo framvegis. En
þegar kemur að stjúpfjölskyldunni
þá fær fólk barn og mikla ábyrgð í
hendur en lítinn sem engan stuðn-
ing,“ segir Valgerður Halldórsdótt-
ir, félagsráðgjafi og ritstjóri vefsíð-
unnar stjuptengsl.is. En sá vefur
fjallar, eins og nafnið gefur til
kynna, um málefni stjúpfjöl-
skyldna og inniheldur margs konar
fróðleik sem hentar bæði foreldr-
um og börnum.
Staða stjúpforeldra oft mjög
óljós
Valgerður segir jafnframt að
hefðbundin uppeldisnámskeið
henti stjúpfjölskyldum yfirleitt ekki
nægilega vel. Ekki sé sjálfgefið að
leiðbeiningar sem gagnist foreldr-
um geti gagnast stjúpmæðrum og -
feðrum þar sem staða þeirra innan
fjölskyldunnar sé oft mjög óljós.
Stjúpfjölskyldur séu líka mjög ólík-
ar innbyrðis. Það sé ekki hægt að
taka því sem gefnu að stjúpforeldr-
ið álíti sig í foreldrahlutverki, hvort
makinn sé tilbúinn að viðurkenna
það í því hlutverki eða hvort börn-
in séu tilbúin að líta á það sem
slíkt.
Því yngri sem börnin eru þeim
mun meiri líkur séu á að fólk lendi
í hlutverki foreldris en vitanlega sé
ekki víst að börn sem nálgist ung-
lingsaldurinn séu tilbúin að fara
allt í einu að hlýða kröfum
foreldra.
Eldfimt mál
„Sjálf hef ég búið í stjúpfjöl-
skyldu alla mína ævi og þegar ég
gifti mig á sínum tíma lenti ég í
WFJÖLSKYLDU-OG
HOSDÝRAGARDURINN
Opið alla daga frá kl. 10-17
vanda eins og svo margir aðrir,“
segir Valgerður en síðan þá hefur
hún menntað sig mikið í þessum
málum. Hún telur þörfina á um-
ræðu og námskeiðum um og fyrir
stjúpforeldra gríðarlega. Þeir kvarti
oft yfir öllum þeim væntingum sem
gerðar eru til þeirra, um leið sé í
gangi „eilífur samanburður við
kynforeldrið". Fólk sé því ýmist
dregið inn í einhver foreldrahlut-
verk eða haldið fyrir utan það.
Lykilatriðið með fræðslunni er að
upplýsa fólk um þann mun sem hgg-
ur milli hefðbundinna fjölskyldna og
ólíkra gerða stjúpfjölskyldna og auð-
velda fólki að ræða sín mál sín á
milli. Með því móti uppgötvar fólk
að ástandið sem það glímir við er
ekki óeðlilegt. Þessi mál geta oft ver-
ið svo eldfim og undið svo mikið upp
á sig að fólk þori ekki að færa þau í
tal. Með því að læra og ræða saman
um þessi mál er loksins kominn
grundvöllur sem hægt er að byggja á.
Miklar kröfur
Valgerður segir að margt stýri
þessum samskiptum stjúpfjöl-
skyldna, þar á meðal samfélagslegur
skilningur. Fólk eigi fremur að bjóða
fram aðstoð sína en sitja og dæma
það sem aðrir geri. „Þessi neikvæða
umræða og neikvæð sjálfsmynd fjöl-
skyldunnar getur dregið úr líkum á
því að fólk leiti sér hjálpar með sín
mál. Ef hvergi fæst viðurkenning eru
minni líkur á því að umræðan sé
opnuð."
Stjúpforeldrar lenda oft í því að
þurfa taka miklu meira að sér en
þeir vilja eða geta ráðið við. Á nám-
skeiðunum sem Valgerður hefur
haldið um þessi mál er bæði veitt
fræðsla og stuðningur. Þessi mál eru
fólkin og um þau þarf að tala og
einnig er nauðsynlegt að farið sé að
gera ráð fyrir málefnum stjúpfjöl-
skyldna, nógu sé það algengt fyrir-
brigði.
karen@dv.is
sthmra,r?fni fv
ftjupfjolskyldi
eru ó
7 # r'iw«nyiai
2BujlUn1num.fÍ^kylTmISkyldUr eru ó,ika
ekkihver annan °"‘r ‘ StJUpfjölskyldum elski
komurn a skim■ pe onulega
«- Verum opin og hre'insk!nC°ParSamkeand
ma/um * 'nskil/n unt stöðuna ifjar-
Réttarhöld fara illa með börn
Samkvæmt breskri rann-
sókn upplifa börn sem bera
þurfa vitni í réttarsal atburð-
inn aftur sem kom þeim þang-
að. „í nútímasamfélagi er
óeðlilegt að börn séu sett í
þessa aðstöðu," sagði tals-
maður rannsóknarinnar sem
náði til 50 ungmenna sem flest
höfðu lent í kynferðisafbrota-
mönnum. Nærri helmingur
barnanna sagðist hafa verið
kallaður lygari á meðan hinn
helmingurinn sagðist ekki
hafa skilið orðaskakið á milli
lögfræðinganna. „Lögfræð-
ingurinn sagði mig lygara og
ég fékk ekki að segja allt sem
mig langaði til að segja," sagði
eitt barnanna.
DV hvetur fyrirtæki til að senda tölvubréf til að láta vita af góðum tilboðum, helst með myndum, á netfangið neytendur@dv.is. Neytendasíða DV birtist í blaðinu alla virka daga.
Verkefniö Karlar til ábyrgðar var sett á laggirnar árið 1998. Tilgangur þess var aö
veita körlum sem vildu hætta að beita konur ofbeldi aðstoð og skilaði það góðum
árangri. Þrátt fyrir það fékkst ekki fjármagn til að halda þessu merkilega starfi
áfram og harma það margir. Ingólfur Gíslason er bjartsýnn á breytingar.
’’
.
jí
I Ingólfur V. Gíslason „Meðferðin
I fólst iþvi að veita þeim sem beittu
I ofbeldi á heimili sálfræðilega að-
I stoð til að hjálpa þeim að láta af
I hegðun sinni’
„Karlar til ábyrgðar var verkefni
hugsað til þess að aðstoða karla sem
vilja hætta að beita konur ofbeldi,"
segir Ingólfur V. Gíslason starfsmað-
ur ReykjavíkurAkademíunnar og sá
aðili sem helst var í forsvari fýrir
þetta merkilega verkefni sem því
miður var lagt af eftir aðeins tveggja
ára starfsemi.
Ástæðuna fyrir því segir Ingólfur
ekki vera litla aðsókn eins og margir
óttuðust að yrði og enn síður að
meðferðin hafi skilað litlum árangri,
heldur hafi verkefnið lent milli
tveggja vita og fremur óvíst um hver
ætti að fjármagna það.
Eins og gefur að skilja þykir
mörgum furðulegt að aðeins eigi að
taka á afleiðingum ofbeldis, eða eins
og Drífa Snædal fræðslu- og fram-
Áhugaverður
vefur fyrir koni
Á heimasíðunni konur.is er margt
og mikið að finna hvort, sem það
tengist fjölskyldunni, atvinnu, upp-
eldi, stjórnmálum, afþreyingu eða
öðru athyglisverðu. Á heimasíðunni
eru fjöldinn allur af linkum á aðrar
kvæmdastýra Kvennaathvarfsins
komst að orði þegar hún var spurð
um þessi mál: „Það þarf að taka á
orsökum vandans jafnt sem afleið-
ingunum hans."
Mjög góður árangur
„Meðferðin fólst í því að veita
þeim sem beittu ofbeldi á heimili
sálfræðilega aðstoð til að hjálpa
þeim að láta af hegðun sinni, fyrst
einstaklingsþjónustu en svo var
þeim skipt í hópa,“ segir Ingólfur en
sálfræðimeðferðin sem þarna var
veitt þótti skila mjög góðum árangri
í þau tvö ár sem hún var í boði.
Þegar um það tuttugu menn
höfðu verið útskrifaðir vorul
spurningalistar sendir til
^ þeirra sem höfðu tekið
? 4
síður svo allar
konur ættu að geta
fundið þar eitt-
hvað við sitt
hæfi. Á síðunni
. \\ er einnig að finna
margar upp-
skriftir svo að
auðvelt ætti að
veraaðfinnahug-
myndir að
kvöldmatnum.
I
\
■
þátt í þessu verkefiii sem og maka
þeirra. Karlarnir töldu allir að þetta
hefði hjálpað þeim mjög mikið.
Konurnar sögðu allar að annað
hvort væri ofbeldinu lokið eða að
verulega hefði dregið úr því. Þegar
spurt var um lífsgæði þeirra var
útkoman einnig mjög jákvæð, þær
töldu sig mun öruggari, voru tilbún-
ar að ræða fleiri mál við makann og
gátu oftar glaðst með honum.
Sjónvarpsviðtöl og hækkandi
sól
Ingólfur segist binda vonir við að
þessari starfsemi verði aftur komið á
laggirnar í ár. Árni Magnússon
félagsmálaráðherra hafi sagt í sjón-
varpsviðtali að aftur yrði hafist
handa við þetta mál með hækkandi
sól. Sólin sé nú byrjuð að hækka á
lofti en hann sé mátulega bjartsýnn
eftir fyrri reynslu sína, þá hafi allir
líst yfir stuðningi en þeim yfirlýsing-
um hafi ekki verið fylgt eftir. Hann
bíður því með að „taka upp kampa-
vínsflöskuna" að þessu sinni þar til
fleira kemur í ljós en vonar hið
besta.
karen@dv.is
Beitir þú
konuna þína
ofbeldi?
Þeim mun fleiri afeftirfarandi spurningum
semþú svarar játandi þeim mun meiri hætta
er á að þú beitir konu/kærustu þina ofbeldi.
Efþú kannast við sjálfan þig í mörgum atrið-
um veröurþú að fá aðstoð fagaðila.
• Hvernig var samband ykkar í upphafi?
Sveiflaöist þú milli eldheitrar ástríðu og
óöryggis gagnvart henni?
• Þrýstirþú á hana að gera alvöru úrsam-
bandinu?
• Mislíkar þér við fjölskyldu hennar, vini og
vinnufélaga (sérstaklega karlkyns)?
• Hefur þú komist að því hvað hún er lengi i
og úr vinnu/skóla? Viltu gjarnan sækja hana
beint I vinnuna/skólann?
• Finnst þér börnin ræna athygli hennar frá
þér?
• Ertþú gagnrýninn á uppeldisaðferðir
hennar?
• Finnst þér vinna hennar eða skóli vera lítils
virði?
• Kemur fyrir að þú gagnrýnir fataval henn-
arogútlit?
• Viltu helst að þið séuð bara tvö saman án
annarra aðila? Reynirþú að aftra henni frá
þviað hitta annað fólk?
• Efþú, eða þið bæði, hafið fengiðykkur
áfengi, endar það oft í rifrildi?
• Finnst þér að þegar allt kemur til alls eigi
karlinn aö ráða?
• Viltu vita allt um hennar fyrrverandi? Viltu
að hún losi sig við hluti tengda fyrri ástar-
samböndum?
• Kemur það fyrir að þú ert harðhentur við
börn eða gæludýr?
• Ásakarðu hana oft fyrir að vera þér ótrú?
• Hefur þú yfirlityfir fjármál ykkar og
skammtar henni peninga eða leynir þú hana
upplýsingum um fjármálin?
• Viltu hafa yfirsýn yfir símtöl hennar, tölvu-
póst, SMS, bréf, bankareikninga eða þess
háttar?
• Kemur það fyrir að þú niðurlægir hana
frammi fyrir ööru fólki?
• Eyðileggur þú persónulega muni hennar í
bræöi?
• Finnst þér óþarfi aö hún mennti sig meira?
• Kemur fyrir að þú öskrar á hana eða upp-
nefnirhana?
• Reynir þú aö fá hana til að taka þáttíkyn-
feröislegum athöfnum sem hún kærirsig
ekki um?
• Heldur þú áfram að þrýsta á hana þó þú
gerir þér grein fyrir að hún vilji það ekki?
Efþú kannast viö eitthvað af eftirfarandi at-
riðum ertþú i verulega vondum málum og
ekki slst konan sem þú býrð með - leitaðu
aðstoðar strax:
• Hefurþú einhvern tímann reyntað aftra
henni frá að fara til læknis án þess að þú sért
með henni?
• Hefurþú einhvern timann hótað að beita
hana ofbeldi?
• Hefurþú einhvern tímann hrinthenni?
• Hefurþú einhvern tímann haldið henni
fast, hrist hana eða slegið utan undir?
Hér á landi eru sálfræðingar sem sér-
hæfa sig i aðstoð við ofbeldismenn. Hægt
er að fá nánari upplýsingar i sima
Kvennaathvarfsins: 561 1205. Þangað
geta konur lika hringt til að fá stuðning.
Listinn er tekinn saman afsænskum fag-
aðilum og áhugafólki gegn kynbundnu
ofbeldi og þýddur og staðfærður afSam-
tökum um kvennaathvarf.