Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2005, Síða 15
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 15
Loksins Loksins Duran Duran!
Fimmmenningarnir frá Birm-
ingham eru á leiðinni tii landsins!
Eftir 20 ára bið er loksins, loksins
komið að því. Duran Duran munu
halda tónleika hérlendis. Loksins,
loksins hefur poppheimurinn fatt-
að að ísland er efnislegur veruleiki
en ekki matarsletta á landakorti.
komu hér aðeins poppsveitir á
borð við Mammouth, Adamski,
Quireboys, Skid Row og síðast en
ekki síst Robbie Jackson (sem var
hvorki meira en minna en yngsta
systir Michael Jackson). Þetta
voru allt frekar óþekktar sveitir
sem aðeins færustu poppfræðing-
ar vissu einhver deili á. Þessir leið-
inlegu tónleikar fóru oft fram í
rigningu og roki innan um
flaksandi ís-kólaauglýsingar og
drukkin ungmenni. En nú er öldin
önnur. í stað rigningasumarsins
mikla kom tónleikasumarið mikla.
Sveitir á borð við Korn og
Metallica heimsóttu aðdáendur
sína í fyrrasumar en nú er skrefið
gengið alla leið; Fimmmenning-
arnir geöþekku Simon Le Bon,
Nick Rhodes, Roger Taylor, Andy
Taylor og John Taylor munu trylla
hér landslýð allan. Hljómlist pilt-
anna frá Birmingham hefur fýrir
löngu síðan skapað sér heiðurs-
sess í hugum fslendinga. Lög á
borði við Hungry Iike the Wolf, My
Own Way og Union of the Snake
þekkja allir sem á annað borð hafa
gengið í Milletúlpu. Ég mun fyrir
mína parta mæta í snjóþvegnum
gallabuxum með kveik-jara tilbú-
in í vasanum, reiðubúin til að
tendra gasloga við undirleik bestu
hljómsveitar í alheiminum þegar
þeir flytja hið tregafulla kveikjara-
lag Save a Prayer. Tónleik-ar Dur-
an Duran marka áJcveðin vatnaskil
í íslenskri sögu. Nú fýrst getum við
hort fram á veginn vitandi það
með vissu að við erum jafningar
annarra en ekki eftirbát-ar. Sauð-
kindin (eins ágæt og hún nú er) er
merki gamla tímans. Langsspilið
sömuleiðis. Hljóðgerfillinn er
framtíðin.
HVERNIG ER...
Eitt stórt vandamál í smábátaútgerðinni
Þreyttur á að vera gabbaður
Óli Jón hrmgdi:
Fyrsti apríl er dagur sem ég hef
aldrei botnað upp né niður í. Sjálfur
er ég fæddur þegar ísland var enn
undir dönsku krúnunni og þessi
dagur hefúr verið mér erfiður síð-
ustu árin. Fyrir nokkrum árum fór ég
með trékross sem ég hafði smíðað
og ætlaði að mótmæla í Kópavogs-
kirkju. Ég hafði séð að eitthvað
erlent hamborgarafyrirtæki hefði
farið í mál við kirkjuna vegna þess
að hún líktist emmi sem væri í merki
fyrirtækisins. Þegar á staðinn var
komið mætti mér hópur manna
með kvikmyndavélar og allir hlógu
að mér, gamla manninum.
í ár var ég svo aftur gabbaður
þegar ég ætlaði að mæta í grillveislu
á Bessastöðum eftir að hafa lesið
mikla grein um opið hús hjá þeim
hjónum í DV. Ég bý nú hérna úti á
Álftanesi og langaði að fá mér
göngutúr á Bessastaði og kannski
eina pylsu.
Mér finnst asnalegt af íslenskum
fjölmiðlum að plata okkur gamal-
mennin með lygum af þessu tagi.
Það er þreytandi og asnalegt að fjöl-
miðlar sem reyna ávallt að njóta
trausts almennings séu að ljúga vís-
vitandi af lesendum. Ég er þreyttur á
að vera gabbaður og ætla að hætta
að lesa blöðin og horfa á fréttirnar.
Alla vega frá lokum mars fram í
miðjan apríl svo að ég fari nú ekki í
fleiri fýluferðir.
Darwin opinberar þróunarkenninguna
Þrátt fyrir að vera upplýstur um
þá staðreynd að vísindamenn sem
komu með róttækar kenningar á
þessum ú'ma voru útskúfaðir eða
þaðan af verra, hélt Darwin ótrauð-
ur áfram að birta sínar kenningar.
Hann beið hins vegar með það í
nokkur ár að birta þróunarkenning-
una en þegar hann ffétti af því að
annar vísindamaður var farinn að
birta svipaðar kenningar kláraði
hann Uppruna tegundanna.
Þegar hann gaf
út bókina í heild
sinni í nóvember
1859 seldist hún
upp og árið 1872 var
búið að gefa út 6
upplög af bókinni.
Darwin dó árið 1882.
Charles Darwin Vargiftur
maður og eignaðist 7 börn.
Uppruni tegundanna Upphafleg út-
gáfa þessarar bókar sem birti kollvarp-
andi kenningar um þróun mannsins.
... að vera fyrsta
glasabarn á íslandi?
„Það er bara ágætt, sko. Þetta
hefur vakið nokkra athygli hjá fólki
en ég er mjög sáttur með þetta. Ég
vissi fyrst aldrei
almennilega hvað
þetta var en hef
komist að því
meira og meira í
gegnum tíðina. Er
þetta ekki einhver
svona glasafrjóvg-
un eða eitthvað
svoleiðis? Ég fædd-
ist ekkert í glasi
heldur var þetta
glasafrjóvgun þó ég
sé kallaður glasa-
barn.“
Er sjaldan í glasi
„Ég er sjálfur sjaldan í glasi,
nánast ekki neitt. Æth það sé ekki
bara vegna þess að ég var svo mik-
ið í glasi þegar ég var ungur. Ég tek
þessu voðalega létt og fólk er
sturídum að grínast með þetta í
kringum mig. Mér var reyndar strítt
smá þegar ég var í grunnskóla. Það
voru einhverjir hálfvitar sem sáu
mig í sjónvarpinu á tíu ára affnæl-
inu og þá var svolítið verið að
skjóta á mann. Nú er þetta allt bara
á léttu nótunum og ég tek þessu
bara vel. Það var búið að reyna
þetta nokkrum sinnum áður en
kom að mér. Ég þakka mömmu
algjörlega fyrir þetta allt saman
enda var hún sterk,
henni þykir líka
rosalega vænt um
mig.“
Líkar vel í
Verzló
„Ég byrjaði í
Verzló í haust og
líkar það mjög vel.
Það kom eiginlega
aldrei neitt annað
til greina en ég setti
samt Kvennó sem
annað val. Ég hef
aðeins tekið þátt í
félagslífinu en stefni á að gera
meira af því enda mjög skemmti-
legt. Allur minn tími fer í að spila
fótbolta með Fram þar sem ég spila
í ffamlínunni. Ég bý á Seltjarnar-
nesi og ólst þar upp, mér finnst líka
mjög skemmtilegt að hanga með
strákunum og gera grín. Núna sit
ég bara hérna á marmaranum í
Verzló og spila playstation enda
kosningar í gangi. Svo verður mað-
ur að taka sig á f skólanum því ég
hef misst mikið úr vegna anna í fót-
boltanum."
W. Wkn « tmUu. 1
siisaisssíxí »=________________
Ég er sjálfur sjald-
an f glasi, nánast
ekki neitt. Ætíi
það sé ekki bara
vegna þess að ég
var svo mikið í
glasi þegar ég var
ungur.
Gaiöar H.
Björgvinsson
skrifar.
Arthúr
Bogason er
dragbítur á
smábátaút-
gerðinni. Lé-
legur foringi
og treggáfað-
ur ef dæma
má eftir skrifum, ræðum og háttalagi.
Lesendur
Þessum orðum hefi ég þó ekki nema
eitt til sönnunar, þar sem mér hefir
ekki þótt skrif hans þess virði að
geyma þau.
Þetta stóra atriði hefur valdið hin-
um strjálu byggðarlögum á strönd-
inni óbætanlegu tjóni. Arthúr blés af
aflatoppstillögu mína; 10 tonn á
stærðartonn báts og 10 % aflagjald af
uppviktuðu aflaverðmæti sem renna
átti til ríkissjóðs og vera eyrnamerkt
heilbrigðiskerfinu. Reyndar var einn
vinur minn að austan búinn að reifa
svipaða hugmynd áður, en það vissi
ég ekki um en sama er hvaðan gott
kemur. Arthúr blés þetta af. Hann átti
ekki hugmyndina. Hugmynd þessi
hefði nefnilega leyst Arthúr af hólmi.
Kerfið orðið sjálfbært. Afætur óþarf-
ar. Tillaga mfn hlaut sigur á átaka-
fundi 1995, 27 atkvæði meðfallin, 21
á móti. Það lýsir ekki greind að
standa gegn lýðræðislegri kosningu.
Að síðustu þetta
Hvers vegna allur þessi fjöldi á
þingi? Hvað gerir stjómarandstaðan?
Sem minnst. Jú hún flakkar með í
utanlandsferðir á kostnað almenn-
ings. Hver ræður öllu í raun?
Hann heitir Davíð Oddsson. Við
skulum bara vera hreinskilin. Við
höfum hvorki hæfileika, kjark né
þrótt til að gera neitt af viti og að eigin
frumkvæði. Hugleysi er íslendingum
í blóð borið. Of fáir em með franska
blóðblöndun.
Fyrir réttum 146 ámm sendi
Charles Darwin fyrstu þrjá kaflana í
Uppruna tegundanna til útgefanda
sinna. Hann sagði sjálfur að bókin
yrði áhrifamesta bók sem nokkm
sinni myndi vera útgefin. Hann þró-
aði kenningu
I dag
eru 11 ár nðin
síðan Kurt
Kobain framdi
sjálfsmorð
með því að
skjóta sig í
höfuðið.
sína í leyni 1
Qölda ára en
hann hafði ver-
ið mikill áhuga-
maður um nátt-
úruvísindi síð-
an hann var
krakki, þrátt
fyrir að kennarar hans reyndu að
draga úr þessum áhuga hans og
beina honum á aðrar brautir. Faðir
hans var þekktur og mikils metinn
læknir.