Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2005, Blaðsíða 23
DV Sport
ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 23
■
- —-:
wsm
Eins og á vígvelli
Heysel-leikvangurinn
var eins og vígvöllur
eftiraö ólætin brustust
útþarsem 39 manns
týndillfi.
Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, um leikinn gegn Juventus í kvöld.
Erum í hlutverki litla liðsins
Rafael Benitez, knattspymu-
stjóri Iiverpool, segist hafa trú á
því að leikmenn sínir getið slegið
Juventus út úr átta liða úrslitum
meistaradeildarinnar en viður-
kennir þó jafnframt í viðtali við
opinbera heimasíðu félagsins að
Liverpool sé litla liðið gegn
„Það er rnitt starf að
finna veikleikana í
liðiJuventus og færa
þá okkurínyt"
Juventus. Benitez segir að
leikmenn Juventus hafi mun meiri
reynslu og betri leikmenn og
meiðsli £ herbúðum Liverpool
þetta tfmabilið séu aðalástæðan
fyrir því að hann segir að Liverpool
sé litla liðið gegn Juventus.
„Juventus er með frábæra
leikmenn á borð við Pavel Nedved
og Alessandro Del Piero en það er
samvinna liðsins sem heildar sem
er þeirra sterkasti hluti. ítölsk 116
eru mjög erfiðir andstæðingar og
Juventus er þar fremst í flokki
ásamt AC Milan. Liðið er sterkt,
með frábæra leikmenn og mjög
agað og skipulagt. Ég er sann-
færður um að það yrði jafnvel
erfitt fyrir okkur að vinna ‘
Juventus þótt við væru með f
okkar sterkasta lið. Ég er þó ekki
að segja að það sé ómögulegt að
vinna Juventus núna því að það
er mitt starf að finna veikleikana
í liði Juventus og færa þá okkur í
nyt. Það mikilvægasta er að halda
markinu hreinu á Anfield. Með því
er ég ekld að segja að markalaust
jafntefli myndi vera góð úrslit fyrir
okkur því að við viljum vinna
leikinn en við þurfiim að sjá til
þess að Juventus skori ekki í
leiknum," sagði Benitez.
B«ai
Frá Villa til
Stuttgart
Nú er komið á hreint að
Þjóðverjinn
Thomas
Hitzl-
sperger
hjá Aston
Villa í ensku úr-
valsdeildirmi í
Knaltspyrnu mun
ganga til liðs við
þýska iiðið Stutt-
gart í sumar þegar
samningur hans
við Villa
rennur V""
Ut. * ‘
Hitzl-
sperger, sem er
22 ára að aldri,
irefur átt erfitt uppdráttar hjá
Aston Villa og ekki hefur ekki
náð að tryggja sér byrjunarliðs-
sæti þar á bæ. „Stjórn Stuttgart
hefur verið mjög liðleg í sam-
skiptum sínum við mig og ég tel
ákvörðun mína vera þá réttu í
stöðmrni og sé fram á bjarta
framtíð í Þýskalandi," sagði
Hitzlsperger sem mun líklega fá
samning til ársins 2007.
t
Hefur stolið
sviðsljósinu
Alex Stewart, bandaríski
leikmaður Keflavíkur í
kvennakörfunni
hefur stolið
sviðsljósinu frá
Ritu Williams í
úrslitaeinvíginu en
Keflavfk hefur 2-0
fomstu og getur
tryggt sér titilinn á
miðvikudaginn. Alex
er með 21,8 stig (13,2 £
deildinni), 10,4 fráköst
(4,6) og 8,4 stoðsend-
ingar (5,8) £
úrslitakeppninni og
hefur margsinnis tekið
af skarið á úrslitastundu I
(jöfnum og spennandi J
leikjum sem Keflavfk
hefur unnið alla, þann
sfðasta i framlengingu £
Grindavfk þar sem
Stewart skoraði öll 8 stig
Keflavfkur f
framlengunni. Auk þessa
hefur Stewart spilað góða
vörn á Ritu sem hefur þurft
55 skot og kostað til 13
töpuðum boltum til þess að
skora sfn 61 stig.
$
-\l
Ferillinn hjá
Olsen á enda
Sænska handboltagoðsögnin
Staffan Olsson gæti þurft að
leggja skóna á hilluna fyrr en
hann ætlaði vegna meiðsla sem
hann varð fyrir í leik Hammarby
og GUIF f sænsku úrvalsdeild-
inni í handbolta á sunnudaginn.
Olsson, sem hafði hugsað sér aö
hætta að loknu þessu tímabili,
meiddist á læri þegar hann var
að elta einn leikmann GUIF í
hraðaupphlaupi og sagði við
fjölmiðla eftir leikinn að nú væri
þetta sennflega búið.