Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2005, Page 21
20 ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005
ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 2005 21
Bllar DV
DV Bílar
Bílaútvarp sem skynjar
hreyfingar ökumannsins
Svo gæti farið í framtíðinni að þú
skiptir um lag á geislaspilaranum í
bílnum, eða um útvarpsstöð, ein-
faldlega með því
að Wnka kollin-
um til hliðar. Er
þetta tækni sem
verið er að vinna
í við háskólann í Glasgow í Skotlandi
en nú í síðasta mánuði kom á mark-
að í Japan tæki
sem skynjar
hreyfingu. Á
þetta ekki ein-
göngu við um
bflatæki, heldur
er það mun víðtækara. Tæknin
byggist á að tækið stjómist af
svokölluðu „hljóðskýi" sem skynjar
hreyfingar og sendir skilaboð til
tækisins. Þá þarf bara að passa upp á
að kinka ekki kolli í takt við lagið,
það er að segja ef þú vilt heyra það
alveg til enda.
Þarf að selja fleiri eintök
Til þess að framleiðslukostnaður
standi undir sér þurfa þúsund
eintök af Rolls Royce-bifreiðum
að seljast ári hverju. Síðasta ár
seldust ekki nema 792 eintök og
var þvi tap á rekstrinum. Rollsinn
hefur löngum verið talinn kon-
ungur bílanna enda útbúinn því-
líkum lúxusbúnaði að annað eins
þekkist ekki. Framleiðslan er í
1 eigu BMW og halda menn þar
enn i vonina um að sala bílsins
verði betri á komandi árum.
1 Keppinautur Rolls Royce, May-
bach sem framleiddur er hjá
Mercedes, seldi um 500 eintök
V af sínum bíl en hafði einnig
stefnt á þúsund. Þar segja
menn hins vegar að fram-
Oleiðsla bílsins skili hagnaði.
Kvennavagnar íTókýó
Frá og með mánu-
deginum mun kon-
um í Tókýó bjóðast
að ferðast í sér-
stökum kvenna-
vögnum í lestum
og sporvögnum þar
í borg. Á þetta að
koma í veg fýrir að hand-
óðir karllandar þeirra fái sínu
ffamgengt. Þreifingar karlanna eru
nokkuð mikið vandamál,
þá sérstaklega á anna-
tímum þegar vagn-
arnir eru yfirleitt
troðfullir og ekki auð-
velt að hafa hendur í
hári þeirra handóðu.
Hefur þessari ákvörðun
skiljanlega verið fagnað og
mun nú fremsti vagn í hverri lest
vera eingöngu fyrir konur.
DV hvetur fyrirtæki til að senda tölvubréf til að láta vita af góðum tilboðum, helst með myndum, á netfangið neytendur@dv.is. Neytendasíða DV birtist í blaðinu alla virka daga.
Virkar fjorhjola
dril á jeppanum?
Það kostar heilmikið að eiga bfl
og því eðlilegt að fólk reyni að
spara sér útgjöld. Hópur bfleig-
enda sleppir því að fara með bfl-
inn í km-skoðun, þ.e. þjónustu-
skoðun sem framkvæmd er með
vissu millibili. Ástæður geta verið
ýmsar en yfirleitt kosta þjónustu-
skoðanir talsvert, jafnvel tugi þús-
unda króna. í sjálfu sér væri ekkert
athugavert þótt þjónustuskoðun-
um á löggiitu verkstæði væri
sleppt ef bfleigandi teldi sig sjálfan
geta innt þetta verk af hend og
vissi að þar með verður þjónustu-
bókin ógild og lækkar mat á uppí-
tökuvirði bflsins við kaup á nýjum.
Verri afleiðingar geta hlotist af sé
þessu eftirliti, sem fólgið er í þjón-
ustuskoðun fagmanna, sleppt.
Sé um fjórhjóladrifinn jeppa að
ræða er liður í þjónustuskoðun að
prófa og tryggja að fjórhjóladrifið
virki. Sumir jeppaeigendur hafa
uppgötvað fyrir tilviljun að sú ör-
yggiskennd sem fylgir því að vera á
fjórhjóladrifnum bfl reyndist fölsk
þegar á reyndi. Þegar til átti að taka
reyndust sjálfvirkar driflokur á
framhjólum óvirkar og jeppinn því
bara með drif á afturhjólunum.
Regluleg þjónustuskoðun dregur úr
lflcum á að þetta gerist.
Valdrif
Til að auka spameymi eru fjór-
hjóladrifskerfi í mörgum jeppum
þannig að í venjulegum akstri er
drifið einungis á afturhjólunum og
nefnist valdrif til aðgreiningar frá
sítengdu fjórhjóladrifi. Til að auka
sparneytni valdrifs em driflokur
hafðar á hjólnöfum framhjólanna -
eins konar rillu-rennilokur sem
tengja og aftengja öxlana þannig að
hjólið snýr hvorki öxlum né drifi að
ffaman þegar ekið er í afturhjóla-
drifi (2H). Oft em driflokurnar sjálf-
virkar og ýmist knúnar með sogi eða
rafstraumi þannig að þær tengja
öxlana framhjólunum um leið og
fjórhjóladrif er valið með hnappi í
mælaborði.
í handbókum jeppa sem em
með sjálfvirkar driflokur er undan-
tekningarlaust mælt með að fram-
drifið sé prófað a.m.k. einu sinni í
mánuði með því að beita því og af-
tengja nokknim sinnum til þess að
koma í veg fyrir að lokurnar festist
opnar.
Ekkert fjórhjóladrif með fast-
ar lokur
Reynslan sýnir að oft em sjálf-
virkar driflokur ekki nægilega þéttar
og soga því í sig ryk, raka og jafiivel
vatn þar til þær standa fastar. Með
fastar lokur er ekkert fjórhjóladrif.
Séu lokumar fastar geta hjólnafim-
ar hafa rauðhitnað með tilheyrandi
skemrndum hafi verið ekið lengri
vegalengd með fjórhjóladrifið valið.
Þeir sem hafa lent í þessum hremm-
ingum, þegar verst stendur á, hafa
gjarnan skipt á sjálfvirku lokunum
fyrir handvirkar - jafnvel þótt þá
þurfi að fara út úr bflnum til að
tengja framdrifið (4H eða 4L).
Og klikki framdrifslokurnar
ekki þegar til á að taka getur raf-
knúinn mótor sem skiptir á milli
háa og lága drifsins í millikassan-
um verið óvirkur og því ekkert lágt
Sumir jeppaeigend-
ur hafa uppgötvað
fyrir tilviljun að sú
öryggiskennd sem
fylgir þvíað vera á
fjórhjóladrifnum bíl
reyndist fölsk þegar
á reyndi, Þegar til
átti að taka reynd-
ust sjálfvirkar drif- •
lokur á framhjólum
óvirkar og jeppinn
því bara með drifá
afturhjólunum.
fjórhjóladrif til staðar þegar mest
á reynir. í jeppum með handvirk-
an millkassa (stöng) er næsta
algengt að skiptibúnaðurinn sé
gikkfastur vegna notkunarleysis.
Það er því ekki úr vegi fyrir eigend-
ur fullvaxinna jeppa - með vor-
ferðir framundan, jafnvel í aur-
dmllu á blautum fjallavegum, að
láta kanna ástand fjórhjóladrifsins
- þannig að öryggið sé fyrir hendi
en sé ekki bara ímyndin ein - sem
mig grunar að sé tilfellið hjá fleir-
um en margan gmnar.
Leó M. Jónsson
véla tæknifræöingur,
www.leoemm.com.
Reykjavík er ekki mengunarlaus borg. Því fer fjarri. Það er þó-
nokkra daga á ári sem mengun af bílaumferð fer yfir viðmiðunar-
mörk. Aðalástæðan er þó ekki útblástur, eins og margur gæti hald-
ið, heldur nagladekk. Auk þess að tæta upp malbikið og vera helsta
orsökin fyrir dýru viðhaldi vega og gatna í borginni er sú rykmynd-
un sem á sér stað rakin til mikillar notkunar nagladekkja.
Tryggvi Felixson er fram-
kvæmdastjóri Landvemdar og segir
að undanfarin ár hafi verið gripið til
ýmissa aðgerða til að draga úr út-
blæstri bfla en ekkert hafi verið gert
vegna mengunar af völdum nagla-
dekkja. „Reglulega em gerðar mæl-
ingar á loftgæðum í Reykjavík og við
förum yfir viðmiðunarmörk þó-
nokkra daga á ári. Við eigum að
starfa eftir Evrópuviðmiðum en það
stefnir í að ástandið verði það slæmt
að það fari út fyrir eðlileg viðmiðun-
armörk. Stjórnvöld þurfa að bregð-
ast við því,“ segir Tryggvi. „Það virð-
ist vera mest af ryki í loftinu og
bendir það til þess að mengunin
komi upp úr malbikinu."
Hann segir að vissulega verði að
skoða þá hlið málsins sem snýr að
umferðaröryggi, enda hafi verið
gerðar fjömargar rannsóknir á því.
„Niðurstöðurnar em ekki allar á
einn veg en sumar benda ekki til
þess að ökumenn auki öryggi sitt
með því að aka á nagladekkjum. Það
er Ijóst að þeir sem nota bifreiðar
sínar svo að segja eingöngu í Reykja-
vík hafi litla þörf fyrir nagladekk. Það
er meiri þörf fyrir þau úti á landi þar
sem er hálka og mikill hliðarvindur."
Nagladekkjaskattur?
Erlendis hafa yfirvöld reynt að
sporna gegn notkun nagladekkja í
þéttbýli og neftiir Tryggvi dæmi Osló
í Noregi þar sem ökumenn þurfa að
greiða gjöld fyrir að aka á slíkum
dekkjum. „Þarna er sérstakur meng-
unarskattur sem hvetur menn til
Tryggvi Felixson Framkvæmdastjóri Land-
verndar vill draga úr mengun afvöldum bila.
þess að nota ekki nagladekk nema
þeir telji að það sé þeim nauðsynlegt
og auki öryggi þeirra mikið. Ég held
að Reykjavíkurborg hafi ekki laga-
heimild til að setja sérstakan dekkja-
skatt á bfla, til þess þurfum við að
breyta lögunum. Þar að auki væmm
við í sumum tilfellum að mismuna
borgarbúum frá landsbyggðinni þar
sem þörfin fyrir nagladekk er aug-
ljósari. Þá fara margir höfuðborgar-
búar oft út á land á veturna þannig
að þetta er ekki auðleyst mál. Ég
held þó að hægt sé að fullyrða að
nagladekk séu miklu meira notuð en
nauðsyn krefur."
Borgin hvetur til minni notk-
unar
Reykjavíkurborg hefur undan-
farin haust birt'auglýsingar þar sem
borgarbúar em hvattir til að skoða
hvort þeir telji sig nauðsynlega
þurfa nagladekk undir bifreiðar
sínar. önnur hlið á þessu máli er sú
að ökumenn vilja tryggja sig gagn-
vart tryggingarfélögum sínum sem
geta neitað að greiða fyrir tjón ef
bfllinn var ekki á almennilegum
vetrardekkjum.
„Sumardekk eru mun harðari en
vetrardekk og þegar þau lenda í
frosti verða þau alveg glerhörð,"
segir Tryggvi. „Vetrardekkin halda
mýkt sinni þrátt fyrir frostið. En val-
kostirnir við nagladekk eru sífellt að
verða fleiri og í mínu tilviki hafa
loftbóludekkin sem ég fékk mér í
haust reynst mér mjög vel.“
Hrein borg?
Ekki er öll mengun í borginni
rakin til noktunar nagladekkja en
talið er að um fjórðungur ryk-
mengunar komi ‘ úr útblæstri.
Helmingur kemur úr malbikinu og
eitthvað er um að efrii berist utan
að, til dæmis frá hálendinu. „Það
er eitthvað sem við ráðum ekkert
við, allavega ekki til skamms tíma
litið," segir Tryggvi. „Það er varla
lengur hægt að hugsa um Reykja-
vflc sem hreina og mengunarlausa
borg. Það er jafnvel hægt að sýna
fram á með aðferðum heilbrigðis-
fræða að einhver fjöldi Reykjavík-
Umferðin Geturveriðþung
eins og við öll vitum. Mengun
frá bllum feryfir viðmiðunar-
mörk marga daga á ári.
.JFH
SL • MMIWa
j j tta. L.JJ' 4 .. 1 —
t
urbúa verði veikur eða deyi jafnvel
fyrir aldur fram á hverju ári vegna
loftmengunar. Það hugsar enginn
um málið á þeim nótunum en á til-
teknum dögum segja heilbrigðisyf-
irvöld í borginni að fólk sem ekki er
hraust fyrir eigi ekki að vera á
þeim stöðum þar sem loftmengun-
in er mest. Það er oft löng leið frá
því að viðurkenna að þetta sé
vandamál þar til gripið er til ein-
hverra aðgerða. Ef til vill bíða allir
eftir því að stjórnvöld grípi í taum-
ana en í raun og veru er þetta
ákvörðun hvers og eins bfleiganda
um hvert hans framlag til mengun-
armála verður.“
Aðrir samgöngumöguleikar
Tryggvi segir að margir bendi á
saltið þegar umræðan berist að
bflamengunarmálum. „Það er þó
allt annað mál. Það er ýmislegt
hægt að gera til að stuðla að meng-
unarminni bflum og betri dekkja-
kostum. Stjórnvöld geta notað fjár-
hagslega hvata, sett nagladekkja-
skatt og þar fram eftir götunum. Þá
má einnig skoða möguleika sem
draga úr notkun einkabflsins, svo
sem með því að styrkja Strætó,
bæta hjólreiðaaðstöðu og jafnvel
hvetja fólk til að ganga styttri vega-
lengdir. Mjög margar ferðir bflsins
eru styttri en þrír kflómetrar og
slíka vegalengd er mjög hollt að
ganga. Menn mega ekki verða þræl-
ar bflsins, hann á að vera þjónn-
inn.“
eirikurst@dv.is
Stúdentar kynna
Volvo í Dallas
Það styttist í alþjóðlegu bflasýninguna í Dallas í Texas-fylki Bandarflcj -
anna og munu Volvo sýna þar sína bfla eins og margir aðrir ffamleiðend-
ur. Volvo tekur þó aðra steftiu í kynningu sinna bfla en flestir aðrir og
verða það stúdentar víðs
vegar frá Svíþjóð sem
muni standa fýrir svör-
um á sýningunni. Hafa
þeir þá gengið í gegn-
um sérstaka þjálfun
sem fyrirtækið hefur
staðið fýrir í sam-
starfi við sænska há-
skóla. Hefur þetta
reynst afskaplega vel
og víða vakið athygli en
250 stúdentar hafa nú
þegar gengið í gegnum þjálfunina og
tekið þátt í sýningum í Svíþjóð, Sviss, Þýskalandi, Hollandi, Bretlandi, á
Ítalíu, í Bandarflcjunum, Kína og víðar.
Hætt viö framleiðslu sportjeppa frá Smart-línu DaimlerChrysler
Sú tilkynning kom mörgum á
óvart að DaimlerChrysler ákvað að
hætta við framleiðslu á Smart-
blæjubfl og -sportjeppa (SUV). 2006
árgerðin af síðarnefndu tegundinni
hefði farið á Bandarflcjamarkað en
þess í stað ákváðu yfirmenn hjá
framleiðandanum að kynna fýrir
bandarískum neytendum tveggja
sæta Smart-smábflinn sem hefur
vakið athygli víða í Evrópu.
Bandaríkjamenn hafa löngum
verið þekktir fýrir kaggana sína og
því héldu yfirmenn hjá Smart að
það myndi ekki borga sig að reyna
að selja bflinn þar. En þeir hafa
fengið góð viðbrögð er þeir hafa
sýnt bflinn á bflasýningum og
ákváðu því að láta slag standa.
Smart-k'nan er hluti af Mercedes
Benz-deildinni innan Daimler-
Chrysler og hefur fjárhagslega átt
erfitt uppdráttar undanfarið. Þann
15. aprfl mun nýr aðalframkvæmda-
stjóri deildarinnar taka við störfum,
Rainer Schmúckle, og verður það
undir honum komið að draga sam-
an kostnaðarseglin og endurskipu-
leggja Smart-h'nuna sem hingað til
hefur ekki staðið undir sér.
Búist er við að fýrstu Smart-bfl-
arnir sem komi til Bandaríkjanna
verði af 2007 árgerðinni en ljóst er
að fýrstu skrefin verða tekin varlegá
enda nánast ógerningur að spá fýrir
um viðbrögð Kanans.
Smart-smábfllinn Hefur vakiö athygli í
Bvrópu en frgmleiðslan hefurþó ekki staðið
undirsér. Væntanlegur á Bandarikjamarkað.