Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.1946, Side 3

Freyr - 01.09.1946, Side 3
XLI. árgangur Nr. 17-18 REYKJAVIK, SEPTEMBER 1946. Garnaveiki í saubfé Helztu ráð til varnar aukinni útbreiðslu sjúkdómsins JOHNINPRÓFANIR Nú eru bráðum liðin átta ár, síðan fyrst var byrjað að nota húðprófanir til útrým- ingar garnaveikinni hér á landi. Johnin frá einni stofnun í Englandi (Royal Veterinary College) reyndist vel, og er þessa nokkuð getið í bæklingi mínum um þetta efni 1939 (3). Næstu árin voru fram- kvæmdar húðprófanir á sauðfé í stórum stíl með þessu húðprófunarefni. Virtist góð- ur árangur af þessum prófunum fyrstu ár- in, og í mörgum fjárhópum tókst svo vel að hreinsa burtu garnaveika féð, að áhrif- anna gætti árum saman. En efnið reyndist ekki eins vel, þegar frá leið, og 1941 fékkst endurtekin staðfesting á því, að það dugði ekki lengur til þess að greina nema mjög lítið brot af sjúka fénu. Þetta var til- kynnt viðkomandi stofnun í Englandi og leitað upplýsinga um ástæður til þeirrar breytingar, sem virtist orðin á Johnininu. Ekki tókst að finna neina slíka ástæðu, en Níels Dungal prófessor, sem sigldi til Englands, meðal annars vegna þessa máls, fékk það persónulega upplýst, að slíkar breytingar á árangri við húðprófanir af Johnini, framleiddu nákvæmlega á sama hátt, væru þekktar, án þess að hægt væri að gefa nokkrar skýringar á fyrirbrigðinu. Húðprófanirnar stöðvuðust nú alveg, þar eð ekkert nothæft efni var fáanlegt, og einnig höfðu margir bændur misst trúna á þær vegna þessara mistaka. Árin 1938— 1941 var húðprófað á annað hundrað þús- und fjár á öllu landinu. Nú hefir garnaveikin breiðzt mjög út um landið og um leið magnazt til mikilla muna. Hvergi hefir tekizt að útrýma henni með öllu, jafnvel þótt gripið hafi verið til mjög róttækra ráðstafana, svo sem niður-

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.