Freyr - 01.09.1946, Qupperneq 15
FREYR
257
Hliðarnar skyldu vera jafnar, lóðréttar
eða með mjög litlum fláa neðan til, en að
ofan skyldi fláinn aukast og að síðustu
mynda hrygg, sem hallaði vel af á báða
vegu, svo að vatn staðnæmdist hvergi.
Þá var það lokaverkið að tryggja hey-
fenginn fyrir skemmdum af völdum nátt-
úruaflanna og gegn ágangi búfjár. Heyin
voru þakin, hlaðið var í kring um þau.
Stundum létu menn sér nægja að tyrfa
hrygginn og tryggja gegn foki með hælum
og böndum.
Smátt og smátt urðu hlöðurnar al-
mennari, og þótt þær séu á flestum býlum
landsins nú orðið, er heyi þó einnig kom-
ið fyrir í heygörðum þann dag í dag.
Þetta er saga, sem allir þekkja. Það eru
atburðir liðins tíma, en veruleikans ljós
skín á ýmsa þeirra ennþá, árið 1946.
Frumstæðar heyvinnuaðferðir eru
þekktar ennþá, en þeim fer fækkandi frá
ári til árs, er nota þær.
Því fer fjarri að búið sé að ryðja þúf-
unum úr vegi, og það verður að vera
kappsmál allra aðila, að sem allra fyrst
verði aðeins nytjað ræktað land og slétt,
þar sem öllum nýtízkuvélum verður beitt
við heyvinnustörfin. Afköst vélanna, sem
hestum eða dráttarvélum er beitt fyrir,
eru margföld á við það, sem mannshönd-
inni er unnt að leysa, enda þótt unnið sé
af kappi og vinnudagurinn sé langur.
Hagnýting tækninnar, við heyvinnu-
störfin, á sína þróunarsögu. Myndasafn
það, er birtist með þessum fáu orðum,
ber að skoða sem vott þess er verið hefir,
en tækni sú, sem nú heldur innreið sína á
íslenzk sveitaheimili, er sums staðar orð-
in allútbreidd, annars staðar bíða menn
með óþreyju eftir henni.
í stað þeirra hjálparmeðala, sem mynd-
irnar sýna, koma nú dráttarvélar með á-
tengdum heyvinnutækjum, sem auðvitað
eru langtum afkastameiri en sú tækni, er
hingað til hefir verið notuð. En það virðist
eðlilegt að marka tímamótin með því að
birta í þetta sinn það, sem notað hefir
verið, og á næsta sumri hitt, sem er að
koma og það sem kemur þá.
Fjárskipti
SKOÐANAKÖNNUN
viðvíkjandi fjárskiptum á mœðisveikis-
svœðum.
Sem kunnugt er hafa fjárskipti farið
fram í Þingeyj arsýslu austan Skjálfanda-
fljóts, og samþykktir liggja fyrir um fjár-
skipti á þessu hausti á svæðinu frá Skjálf-
andafljóti að Glerá við Akureyri.
Víðar á mæðiveikissvæðum hefir verið
rætt um fjárskipti í fullri alvöru og hefir
Sauðfjársjúkdómanefnd þess vegna séð
ástæðu til þess að gangast fyrir skoðana-
könnun í þeim tilgangi að komast að raun
um hve útbreiddur áhugi manna er fyrir
framkvæmdum um skipulögð fjárskipti á
öllum mæðiveikissvæðum.
Ákvað nefndin því að atkvæðagreiðsla
skyldi fara fram á svæðinu frá Ytri-Rangá
vestur um land, að varnargirðingunum úr
Berufirði í Steingrímsfjörð, og svo á svæð-
inu norðanlands að Héraðsvötnum.
Sendi Sauðfjársjúkdómanefndin bréf til
allra oddvita þann 1. júní í sumar, þess
efnis, að leynileg atkvæðagreiðsla skyldi
fara fram í sambandi við kosningar á
sumrinu, og á þar til gerða atkvæðaseðla
skyldi settur kross fyrir framan já eða nei,