Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1946, Síða 12

Freyr - 01.09.1946, Síða 12
254 FRE YR yi/innu Sumri hallar og vetrarforða handa bú- fénu er nú bjargað í garð. Með hverju ári sem líður breytist eitt og annað í verka- hring íslenzkra bænda, í háttum þeirra og umhverfi. Stundum eru breytingarnar örar, stundum hægfara. Til daglegu starfanna eru bændum nú í hendur fengin hjálparmeðul, sem gera þeim kleift að breyta umhverfinu á stutt- um tíma og afgreiða ákveðin störf á skemmri stund en áður gerðizt. Þetta gildir um heyvinnustörfin eins og svo margt annað. Gamlir menn og mið- aldra minnast þess enn, að bóndinn stóð með alla vinnumenn sína við sláttinn 14 —16 klukkustundir í sólarhring. — í tíð þeirra, sem nú lifa, voru vinnumenn á sveitaheimilunum ................ Þá var gaman að vera við heyskap, segja öldungarnir, sem lifa í endurminn- ingum liðins tíma. Þá stóðum við 8 á spildunni. Þá var búið í tjöldum, þegar heyjað var á engjum fjarri heimilinu og þá var bundið á tuttugu og fjörum hestum og það var hlutverk hraustra og snar- ráðra drengja að vera lestamenn. Þá var nú gaman að lifa. Frásögnin um hætti og athafnir í æsku þeirra, sem nú eru öldungar, er blandin rómantískri kennd, og líðandi stund getur ekki jafnast á við þá tíma, frá sjónarmiði þeirra. Það er satt, þá var fleira í heimili í sveitinni og heimilisstörfin ef til vill ekki eins bindandi og erfið, enda þótt vinnu- dagurinn væri langur um hásláttinn. Þúfnakollarnir voru kroppaðir með skammbeittum spíkunum eða flugbeittum einjárnungunum, eftir því hve snjallir einstaklingarnir voru að búa sér í hendur verkfæri þau, sem tilheyrðu starfinu. Svo kom sláttuvélin og jafnframt var þúfunum fækkað. í kargaþýfi var heyinu snúið, það var drílað eða fangað, og loksins sett í sæti, galta eða bólstra, þar sem greiðfæran blett var að finna. Að síðustu var það svo bundið í reipi og því bisað á klakk. Sátur, baggar, hestburðir, kaplar, eða Bítur Ijár í skára.

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.