Freyr - 01.09.1946, Síða 26
268
FRE YR
ræktun. Að sjálfsögðu eru þær misjafnar
að kostum og afkastamagni. Færeyskt
bygg, sem kallast „Höjvigs Sigurkorn“,
virðist skara fram úr öðrum tegundum
þar. Að uppruna er það „landsort“, reynt á
Sámsstöðum í fyrsta sinn 1945 og þrosk-
aðist þá prýðilega þrátt fyrir úrkomusamt
sumar.
Reynslan virðist benda á, að Höjvigs
Sigurkorn sé sú sterkasta tegund, sem hér
hefir verið prófuð og gefi uppskeru svip-
að og Dönnesbygg.
Af höfrum eru 5 tegundir í ræktun og
tilraunum, ásamt og hveiti, rúg og gras-
fræi. Af túnvingli einum er ekki minna en
20 stofnar í tilraunum.
Áður en horfið er frá garði á Sámsstöð-
um hlýt ég að skyggnast inn í nýja bygg-
ingu, sem reist hefir verið skammt frá
íbúðarhúsinu, nær þjóðveginum. Þetta er
íbúðarhús fyrir vinnufólkið.
Á þessu sviði er Klemenz eins framar-
lega og þeir, sem taldir eru oddvitar
þeirrar hreyfingar á Norðurlöndum, er
beita sér fyrir því, að búa vinnufólki í
sveitum sjálfstæð heimili, þar sem gift
fólk getur lifað sjálfstæðu fjölskyldulífi
í sérstakri íbúð eins og gerist í bæjunum,
enda þótt það sé vinnufólk í annarra
þjónustu — við landbúnaðarstörf.
Hér hefir verið reist hús yfir tvær fjöl-
skyldur, sem gert er ráð fyrir að þar vilji
dveljazt og skapa sér lífsframfæri við
landbúnaðarstörf á Sámsstaðabúi. Slík
stefna þarf að verða ráðandi hér á landi.
Hún getur orðið til þess að hefta flóttann
úr sveitinni. Mun ekki hægt að veita við-
unandi lífsskilyrði og heilbrigt uppeldi
þeirri kynslóð, sem elzt upp við slík kjör?
Það er spurningin, sem ég velti fyrir
mér þegar ég ek frá Sámsstöðum eftir
þjóðveginum, sem girðir „Hlíðina fögru“.
G.
Smíðaskólinn að Hólmi
Smíðaskólanum á Hólmi var sagt upp
22. júní s. 1. Almenn samkoma var þar á
staðnum við það tækifæri. Að lokinni
skólauppsögn voru skoðaðir smíðisgripir
nemenda og síðan stiginn dans fram eftir
nóttu. Hafði þá skólinn staðið frá ára-
mótum.
Nemendur voru úr Vestur-Skaptafells-
sýslu, Rangárvallasýslu, Árnessýslu,
Reykjavík og Dalasýslu.
Þetta var fyrsta árið, sem skólinn starf-
ar og má fullyrða, að vel hafi tekizt með
byrjunina. Smíðisgripir nemenda vöktu
sérstaka athygli allra er sáu.
Kennslu í verklegum efnum annaðist
forstöðumaður skólans, Valdemar Run-
ólfsson, sem jafnframt kenndi teikningu.
íslenzku og stærðfræði kenndi sr. Gísli
Brynj ólfsson, Kirkj ubæj arklaustri.
Þótt reynsla af þessu skólahaldi sé stutt,
bendir hún ótvírætt í þá átt, að sveitunum
geti orðið mikill styrkur að þessari stofn-
un. —
Ekki hefir enn verið ákveðið hið endan-
lega fyrirkomulag á skóla þessum á Hólmi,
en reynsla síðasta vetrar gefur bendingu
um það, hvernig því takmarki verður náð,
að stofnunin verði að sem beztum og al-
mennustum notum fyrir sveitirnar. Sá er
tilgangur Búnaðarfélags íslands, er hefir
falið sérstakri nefnd að hafa hönd í
bagga um allt, er við kemur þessari stofn-
un. — í nefndinni eiga sæti búsettir menn
í Vestur-Skaptafellssýslu og er formaður