Freyr - 01.09.1946, Qupperneq 30
272
FRE YR
7. og 8. gr. séu óbreyttar frá fyrri samþykktum.
9. gr.
Framkvæmdastjórn fer með mál Stéttarsam-
bandsins milli aðalfunda. Eru ákvarðanir hcnnar
bindandi fyrir bændastétt landsins í þeim málum,
er um getur í 2. gr. Framkvæmdastjórnin getur
ráðið framkvæmdastjóra og ennfremur kvatt sér
til aðstoðar fulltrúa frá framleiðslufélögum
bænda. Um einstök atriði framkvæmda skal semja
reglugerðir, er hljóta fullnaðar afgreiðslu á að-
alfundi.
10. gr.
Framkvæmdastjórnin semur árlega skýrslu um
störf sín og skal hún lögð fyrir aðalfund Stéttar-
sambandsins. Þá skulu og lagðir fram endurskoð-
aðir reikningar Stéttarsambandsins.
11. gr.
Á aðalfundi Stéttarsambandsins skal samþykkt
fjárhagsáætlun sambandsins fyrir næsta ár og
kosnir tveir endurskoðendur reikninga.
12. gr.
Félagsgjöld til Stéttarsambandsins skal ákveða á
aðalfundi og skal stjórn Stéttarsambandsins semja
við búnaðarsamböndin um greiðslu gjaldsins til
gjaldkera Stéttarsambandsins fyrir 1. júní ár hvert.
Gjaldið miðast við tölu þeirra, sem kosningarrétt
hafa samkvæmt 7. grein.
13. gr.
Samþykktum þessum verður aðeins breytt á að-
alfundi Stéttarsambandsins og þarf til þess % hluta
fulltrúa á lögmætum fundi.
Breyting á 2. gr. fær því aðeins gildi, að stjórn
Búnaðarfélags fslands samþykki hana.
Bráðabirgðaákvæði falli burtu.
Framanskráðar breytingar á samþykkt-
um Stéttarsambandsins voru undirritaðar
af öllum nefndarmönnum með þeim fyrir-
vara: Að 24. grein laga Búnaðarfélags ís-
lands (bráðabirgðaákvæði) verði numin
úr gildi á næsta Búnaðarþingi. Einnig verði
þá samþykktar eftirfarandi breytingartil-
lögur við lög Búnaðarfélags íslands:
1. Aftan við 2. gr., I b, komi:
„Ennfremur mynda búnaðarfélög hrepp-
anna með sér sérstakt samband, er nefnist
Stéttarsamband bænda, sem fer með sérstök
hagsmunamál bændastéttarinnar samkvæmt
verkaskiptingu, er Búnaðarfélag íslands og
Stéttarsamband bænda hafa orðið ásátt um.“
2. Eftir fyrstu setningu 13. gr. komi orðin:
„Að undanteknum sérmálum Stéttarsam-
bands bænda“.
Þessa tillögur voru allar samþykktar í
einu hljóði, af öllum fulltrúum, að við-
höfðu nafnakalli.
8. Tillögur verðlagsnefndar: Framsögu-
maður sr. Gunnar Árnason, gerði grein
fyrir tillögum nefndarinnar, en þær voru
þessar:
a) „Fundur Stéttarsambands bænda að Hvann-
eyri, 3.—4. sept. 1946, felur stjórn Stéttar-
sambandsins að halda áfram óhvikulli bar-
áttu í verðlagsmálum bændastéttarinnar með
einbeittri afstöðu til ríkisvaldsins og með því
að skapa sem mestan samhug og samstarf
allra bænda í landinu.
b) Fundurinn felur stjórn Stéttarsambands
bænda að ganga ríkt eftir að bændum verði
greiddar þær verðuppbætur á landbúnaðar-
afurðir, sem enn eru ógreiddar frá fyrri
árum.
c) Fundurinn ítrekar þá yfirlýsingu stofnfund-
arins á Laugarvatni, að bændur eigi ótvírætt
siðferðislegan rétt til þess, að fá að minnsta
kosti það verð fyrir afurðir sínar á innlend-
um markaði, sem byggt er á þeim verðgrund-
velli, sem lagður var af sexmannanefndinni,
þar sem viðurkennt er að þar var aðeins
miðað við lágmarkskröfur annarra vinnandi
stétta.
Felur fundurinn stjórn Stéttarsambandsins
að leita nú þegar samninga við verðlagsnefnd
landbúnaðarafurða og ríkisstjórn um að kröfu
þessari verði fullnægt, jafnframt því sem
hann heitir á alla bændur í landinu að sýna
ekki þá lítilþægð, að sætta sig við lakari að-
búð en aðrar stéttir.
Jafnframt heitir fundurinn stjórn sinni full-